Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Blaðsíða 114
1960
— 112 —
skips og bryggju og drukknaði. 16
ára piltur lézt af voðaskoti i hríð.
Hvols. Eitt dauðaslys í héraðinu, en
þess er getið i skýrslum læknis á Hellu,
sem þjónaði fyrir mig, er það varð.
Önnur slys smávægileg.
Hellu. Fract. colli femoris 2 konur.
11 ára drengur varð undir dráttarvél,
sem valt með hann niður í fram-
ræsluskurð. Drengurinn var látinn,
þegar að var komið. Áverkamerki voru
á höfði og einkenni um compressio
thoracis (asphyxia). 12 ára gamall
drengur, sem vann í sláturhúsi, skar
sundur kreppisinar baugfingurs og
litla fingurs hægri handar.
Laugarás. Skozkur ferðamaður datt
af hesti i Brúará og beið bana af; mun
hafa höfu: kúpubrotnað. Tveggja ára
drengur ví rð undir dráttarvél. Var tal-
ið, að aftíHijól vélarinnar hafi farið
yfir brjóstl jsa drengsins. Hann var
illa haldinn eftir slysið, með lost og
átti erfitt um andardrátt. Var fluttur
á IV. deild Landsspítalans. Þar fannst
aðeins fract. claviculae, og jafnaði
drengurinn sig á skömmum tíma.
Dráttarvélaslysin eru alltið, og má
gegna furðu, að ekki skuli þó vera
meira um þau. Unglingar eru látnir
fara með vélarnar, og má oft sjá næsta
gáleysislegan akstur þeirra, t. d. minni
börnum hrúgað á vélina kringum ekil-
inn. Öryggisútbúnaður á vélunum (hús
eða gálgar) mjög fátíður. Fract. cranii
2, claviculae 5, malleoli 4, costae 1,
radii 1, humeri 2, navicularis 1, tibiae
1, zygomatici 1, lux. humeri 1, sub-
luxatio radii 2, acromio-clavicularis 1,
distorsiones 14, vuln. incisiva 29,
puncta 4, combustiones 17, corpus
alienum oculi 8, aliis locis 5, com-
motio cerebri 2.
Eyrarbakka. Mest smáslys, svo sem
skurðir, tog og mar, brunasár og að-
skotahlutir i auga.
Hafnarfj. Tveir bílar rákust á á
Álftanesvegi að nóttu. Annar þeirra
stóð Ijóslaus á veginum. Maður i þeim
bíl hlaut brot á rifjum, og kona lær-
brotnaði og skaðaðist í andliti. Bíl-
stjórinn á hinum bílnum hlaut brot á
C rifjum og bringubeini og pneumo-
thorax. Stúlka tók inn 20—30 svefn-
pillur i einu og féll i djúpan svefn.
Batnaði eftir magaskolun og stimu-
lantia. Kona datt á hálku og fékk
fract. radii. Kona datt á stofu-
gólfi og braut collum femoris sin.
Barn úr Hafnarfirði beið bana, er tveir
bílar rákust á í Kópavogi. Öldruð kona
varð fyrir bíl við biðskýli. Fékk áverka
á höfði og fór úr axiarlið. Drengur,
7—8 ára, varð fyrir bíl og beið bana
samstundis. Önnur slys voru minna
háttar af ýmsu tagi.
Kópavogs. Velflest slys fara á Slysa-
varðstofu Reykjavíkur til meðferðar.
Ég hef aðeins nokkrum sinnum gert
að minna háttar skurð- og höggsárum,
alls um 32.
í þessum 30 héruðum, þar sem um
slys er getið (slys i Reykjavík ekki
talin fram að undanskildum banaslys-
um), eru talin beinbrot og liðhlaup,
eins og hér greinir:
Beinbrot:
Fract. cranii ................. 8
— ossium faciei ........... 4
— columnae ................ 7
— costae (-arum).......... 32
— sterni .................. 2
— claviculae ............. 29
—- scapulae ................ 1
— humeri ................. 12
— antebrachii ............ 15
— radii .................. 47
ulnae .................. 9
—- manus v. digiti (-orum) 29
— pelvis .................. 5
— colli femoris v. femoris 19
— patellae ................ 1
— cruris .................. 6
— tibiae ................. 10
— fibulae ................. 7
— malleolaris ............ 10
— tarsi ................... 0
metatarsi v. digiti
(-orum) pedis........... H
L i ð h 1 a u p :
Lux. acromii ........
— humeri .......
— cubiti .......
—- (sublux.) radii
— digiti manus .
— patellae .....
300