Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Blaðsíða 149
— 147 —
1960
sínu. Hann hafSi verið drykk-
felldur, en ekkert bragðað áfengi
sl. 9 mánuði, þangað til í byrjun
maí, að hann fór á drykkjutúr.
Hann fékk þá snert af lungnabólgu
og hætti drykkju um tíma, en aila
vikuna, áður en hann dó, hafði
hann verið drukkinn. Hann var
þó talinn hafa verið alls gáður
morguninn, sem hann lézt. Ekki
fannst neitt, sem benti til þess,
að maðurinn hafi tekið inn eitur.
Vínlykt fannst af líkinu, og hit-
inn mældist 31 °C í endaþarmi.
Ályktun: Við krufningu fannst
útbreidd lungnabólga i báðuin
lungum, berkjur fullar af slími og
auk þess bjúgur í lungunum.
Einnig fannst nokkur stækkun á
hjarta og stór hóstarkirtill. t blóði
fannst 2,02%o alkohól og í maga-
innihaldi 2,04%o. Er sýnilegt, að
maðurinn Iiefur verið mjög ölvað-
ur, er hann lézt. Lungnabólgan,
ásamt meðfylgjandi blóðeitrun,
mun hafa verið hin raunverulega
dánarorsök. Sennilegt er, að mað-
urinn hafi sofnað í ölvímu á
klósettinu, fallið fram á hné sér
og það ástand þrengt svo að önd-
un og blóðrás, að nægt hafi til
að gera út af við hann.
9. júní. Meybarn, 5 mánaða.
Barnið fannst örent í barnavagni,
sem var inni í svefnherbergi
nióðurinnar. Hafði móðirin vakn-
að kl. 3.00 um nóttina, þar eð það
var mjög órólegt. Hún hafði lagt
það i barnavagn til að geta ruggað
því. Þegar faðir barnsins vaknaði
uni kl. 7.30, var barnið látið.
Ályktun: Við krufningu fannst
útbreidd bólga í hárberkjunum og
blettalungnabólga i báðum lung-
um, sem mun hafa leitt barnið til
bana.
11. júní. Karl, 43 ára. Maður þessi
hafði verið mikill drykkjumaður
Irá unga aldri. Hann var mikið
úrukkinn, daginn áður en hann
lézt, og hafði hafzt við ásamt öðr-
um manni í skúr i Reykjavík.
Hafði fleira fólk komið og drukk-
•ð þarna í skúrnum, þar sem mað-
ur þessi lá á legubekk, og var
eftir nokkra stund tekið eftir því,
að maðurinn lá þarna meðvitund-
arlaus. Farið var með hann í
Slysavarðstofuna, en hann var lát-
inn, er þangað kom. Ályktun: Við
krufningu fannst mikil berkju-
bólga og mikil fitulifur, sem sýni-
lega hefur stafað af langvinnri
áfengisneyzlu. Maðurinn var mik-
ið drukkinn, er hann lézt, í blóði
2,02%c alkohól, og er sennilegt, að
ölvunin ásamt berkjubólgunni
hafi gert út af við hann vegna
þess, hve lifrin var skemmd.
37. 20. júní. Karl, 10 ára. Drengur
þessi hafði farið á bát með eldra
pilti, og ætluðu þeir út í eyjar á
Vestfjörðum. Um klukkutíma sið-
ar sást báturinn á hvolfi skammt
undan landi, og rétt á eftir fannst
drengurinn drukknaður i flæðar-
málinu. Lík eldra piltsins hafði
ekki fundizt, þegar krufningin
var framkvæmd. Ályktun: Við
krufningu fundust greinileg merki
þess, að drengurinn hafði komið
lifandi í sjóinn og drukknað.
Áverkar á höfði gætu hafa hlotizt
af þvi, að drengurinn hafi skollið
utan í bátinn, er honum hvolfdi.
38. 24. júní. Karl, 64 ára. Maður þessi
hafði komið nýlega úr ferðalagi
og kvartað um þreytu. Hann lagð-
ist til svefns undir miðnætti. Þeg-
ar komið var til hans seinna hluta
dags daginn eftir, fannst hann lát-
inn í rúminu. Ekki var vitað til,
að hann hefði verið neitt veikur
undanfarið, en eitthvað hafði
hann þó kvartað um mæði. Álykt-
un: Við krufningu fannst stór
skemmd í heila, sem mun hafa
stafað af æðastíflu, og hefur það
verið banamein mannsins. Auk
jiess fannst útbreidd berklabólga
i báðum lungum og opin skemmd
í öðru lunganu. Var sýnilegt, að
maðurinn hafði haft smitandi
berklaveiki um langan tíma.
39. 27. júní. Karl, aldur vantar. Mað-
ur þessi var talinn hafa drukknað,
daginn áður en krufningin fór
fram. Ilafði verið á bát á Haga-
vatni ásamt tveim öðrum mönn-
um, en bátnum hvolfdi, og lentu