Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Blaðsíða 115
— 113 —
1960
VI. Geðveikir, fávitar, daufdumbir, málhaltir,
heyrnarlausir, blindir, atvinnusjúkir,
áfengissjúklingar og deyfilyfjaneytendur.
Töflur XV—XVI.
Skýrslur um geðveika, fávita, dauf-
dumba, málhalta, heyrnarlausa, blinda
og deyfilyfjaneytendur hafa borizt að
nafni til úr öllum héruSum nema Flat-
eyjar, Bíldudals, Djúpavikur, Hólma-
víkur, Blönduós og SiglufjarSar.
Sem ætíS fyrr er skýrslugerS þessi
mjög ófullkomin og sundurleit. í Rvik
er ekki enn gerS tilraun til aS skrá
aðra en fávita, daufdumba og blinda.
Skráningu atvinnusjúkra, áfengissjúk-
linga og deyfilyfjaneytenda er og
oaumast nafn gefandi, þar sem við-
ieitni er þó höfð við að hafa reiður
a slíkum sjúklingum. En mjög viða er
auðsjáanlega engin tilraun gerð til
Pess, þar á meðal á þeim stöðum, þar
sem mestrar uppskeru væri að vænta,
Þ- e. í Rvík og grennd.
Um geðveika:
Akranes. Geðveikir eru skráðir 3,
°’an hinn sami og siðast liðið ár. Munu
a!lir hafa fengið rotmeðferð í Reykja-
vik og tveir með nokkrum árangri.
Um f á v i t a :
Rvik, Kunnugt er um 162 fávita í
eraðinu, 96 karla og 66 konur, en
vafalaust eru þeir talsvert fleiri.
Um h e y r n a r 1 a u s a :
Hafnarfj. Heyrnarlausan þekki ég
engan, en nokkrir, bæði karlar og kon-
ur, hafa bilaða heyrn, flest eftir otitis á
barnsaldri. Einn mann veit ég um,
járnsmið, sem hefur bilaða heyrn, sem
talin er stafa af hávaða í smiðjunni,
og fellur hann víst undir atvinnusjúka.
Heyrnartæki veita mörgum hjálp, en
margir kvarta yfir, að þeim finnist
óþægilegt að nota þau.
Um á f e n g i s s j ú k 1 i n g a :
Akranes. Áfengissjúklinga hef ég
skráð 8, og er það með flesta móti.
Ber ekki að líta svo á, að áfengis-
sjúklingum hafi fjölgað, heldur að
þessir allir hefðu átt að vera skráðir
áður, og ætti sennilega að skrá fleiri.
Hafnarfj. Áfengis- og deyfilyfjaneyt-
endur eru engir skrásettir. Áfengis-
neytendur finnast flestir meðal sjó-
manna, þótt aðrir komi þar einnig við
sögu. Deyfilyf eru auðvitaö notuð í
töluverðum mæli, en allt eru það
sjúklingar undir eftirliti lækna, og ég
álit ekki, að um grófa misnotkun sé að
ræða.
VII. Ymis heilbrigðismál.
!• Heilbrigðislöggjöf 1960.
hpui a.r’”.u v°ru sett þcssi lög, er til
m \ ri§pislöggjafar geta talizt (þar
^ijórn ^^uur auglýsingar birtar í A-deild
Lög nr. 6 3. marz, um breyting á
ogum nr. 24 29. marz 1956, um
2 al.mannatryggingar.
°g nr. 13 31. marz, um breyting
a logum nr. 24 29. marz 1956, um
aimannatryggingar.
3. Lög nr. 27 21. maí, um breyting
á lögum nr. 47 23. júni 1932, um
lækningaleyfi o. fl.
4. Lög nr. 31 25. maí, um breyting
á sjúkrahúsalögum, nr. 93 31. des.
1953.
5. Lög nr. 38 7. júni, um breyting
á lögum nr. 7 1959, um breyting
á lögum nr. 19 1955, um breyting
á lögum nr. 124 22. desember
1947, um dýralækna.
15