Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Blaðsíða 143
— 141 —
1960
hafi ó sínum tíma snert neðri
hluta lobus frontalis i hægra
heilahveli. Hins vegar fannst eng-
in kúla eftir skotið og engar menj-
ar eftir skotið í höfuðbeinum, ekki
heldur i augnþakinu né gagnauga-
beini, þar sem skotið hefði átt
að fara i gegn eftir lýsingunni
frá sjúkrahúsinu. Mjög er ósenni-
legt, að beinið hefði gróið svo, að
ekki sæjust nein ummerki eftir
skotið. Blæðingar sem þessi i
heilanum eru langoftast afleiðing-
ar af slysum, en þar sem hér
fundust engar menjar eftir skot,
verður ekki fullyrt um uppruna-
lega orsök blæðingarinnar. Mikro-
skopiskt sást vefurinn í heilanum
necrotiskur á stóru svæði og mik-
ið af segm. leukocytum innan um
necrotiska vefinn, og margar smá-
æðar sáust fullar af leukocytum.
Histologisk diagnosis: Sennilega
blæðing út frá gamalli ígerð.
1. marz. Kona, 20 ára. Hafði kom-
ið til læknis fyrir tveim vikum og
kvartað um svima, ógleði og mátt-
leysi, sömuleiðis verki í vinstra
handlegg og fótlegg. Þegar þetta
lagaðist ekki, var hún lögð inn á
sjúkralnis til athugunar. Ekkert
sérstakt kom i Ijós við skoðun,
en sjúklingurinn kvartaði um
svima, mikinn þorsta og verk í
vinstra fótlegg. Neurologisk skoð-
un gaf neikvæðan árangur, sömu-
leiðis augnskoðun. Ályktun: Við
krufningu fannst vinstra nýra
alveg ónýtt, ekkert nema ein
blaðra, en hægra nýra var blöðru-
nýra, samsett af mörgum smá-
blöðrum, og hafði komið sýking
1 bað, þannig að gröftur var meira
°g minna út um allt nýrað. Hef-
ur stúlkan sýnilega lifað lengi á
bessu eina nýra, sem þó var mjög
lélegt fyrir frá fæðingu, og þegar
bólgan hefur komið í það, hefur
hún fengið þvagblæði og m. a.
j bjúg i heil ann.
k. marz. Karl, 67 ára. Maður þessi
haíði fundizt látinn 1 herbergi
sínu, og var talið, að hann mundi
hafa látizt fyrir u. þ. b. hálfum
solarhring. Ályktun: Við krufn-
ingu fannst algjör lokun ó annarri
grein vinstri kransæðar, ramus
circumflexus, en blóðkökkur var
i hinni greininni, ramus descen-
dens. Þar sem vinstra hjarta hefur
aðallega lifað á þeirri grein, hef-
ur maðurinn dáið snögglega, er
hún lokaðist.
12. 8. marz. Kona, 37 ára. Kona þessi
fannst látin á gólfinu í stofu heima
hjá syni sínum, er hann kom heim
að næturlagi. Þessi kona bjó með
manni sinum á neðri hæð i sama
húsi. Maður konunnar hafði ver-
ið ölvaður um daginn, og hafði
konan þá sagt, að hún mundi ekki
fara heim, heldur fara út að
skemmta sér. Sonur hennar fór
út um kvöldið, og er hann kom
heirn eftir miðnætti, fann hann
móður sína liggjandi á gólfinu í
stofu sinni, og var hún látin.
Riffill var undir konunni og all-
stór blóðpollur undir höfði kon-
unnar, sem lá á grúfu. Virtist svo
sem hún hefði oltið fram úr divan,
sem var rétt hjá henni, og niður
á riffilinn. Við krufningu fannst
skotsár á höfði, og hafði kúlan
farið inn í höfuðið h. m. fyrir
framan eyrað og komið út í fram-
anverðum hvirflinum, rétt v. m.
við miðju. Kúpubeinin voru mol-
uð út frá þessu skoti og mikil
skemmd á hægra heilahveli. Af
útliti innskotsopsins virðist mega
ráða, að skotið hafi riðið af mjög
nálægt, og hefur það sýnilega
stefnt neðan frá og upp eftir, þvi
að innskotsopið benti greinilega
til þess. Benti allt til, að um sjálfs-
inorð hafi verið að ræða.
13. 11. marz. Óskírt sveinbarn, þriggja
daga gamalt. Barn þetta hafði
fæðzt í fæðingarheimili hér í
Reykjavik. Það var með skarð í
vörinni. Eftir fæðinguna var það
dálítið blátt í andliti og náði ekki
eðlilegum lit. Það hafði grátið
rösklega til að byrja með, en svo
hafði dregið af því, og barnið dó
um miðnætti. Ályktun: Við krufn-
ingu fundust margar sprungur í
heilatjaldinu, þar sem tjald litla
heilans liafði sprungið á mörgum