Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1960, Blaðsíða 152
1960
— 150 —
þess, að neinn hefði komið þar
inn. Ályktun: Við krufningu
fannst mikil, fersk blæðing í h.
heilahveli, og hafði hún eyðilagt
mikinn part af heilanum þeim
megin. Enn fremur fannst mikil
blæðing i maganum, og stafaði
hún frá ferskum smásárum, sem
sýnilega voru alveg ný. Þetta
hvort tveggja hefur gert fljótlega
út af við manninn, einkum heila-
blæðingin.
48. 19. ágúst? Karl, 81 árs.Maður þessi
hafði verið til lækninga hér í bæn- 51.
um um nokkurt skeið. Hinn 18.
ágúst, er hann var að hátta, hafði
hann dottið skyndilega niður á
gólfið og var þegar örendur.
Alyktun: Við krufningu fannst
gömul kölkun og lokun á v. krans-
æð og tiltölulega ferskur blóðkökk-
ur í h. kransæð, sem lokaði henni
alveg. Þessi ferska æðastífla hef-
ur fljótlega gert út af við mann-
inn.
49. 23. ágúst. Karl, 61 árs. Maður
þessi hafði ætlað að fara að dytta
að liúsi 22. ágúst. Hann hafði
reist stiga við húsið, en af því að
stiginn var of stuttur, setti hann
stigann á borð. Þegar maðurinn
var kominn upp í stigann, hrundi
borðið niður, og hann datt niður 52.
og mun hafa komið með höfuðið
á steinstétt. Farið var með mann-
inn í sjúkrahús, rétt eftir að þetta
gerðist, um kl. 10.30, en í sjúkra-
húsinu andaðist hann tæpum fjór-
um tímum seinna. Ályktun: Við
krufningu fannst mikið brot á
höfuðkúpunni. Hnakkabeinið var
þverbrotið, og hafði blætt mikið
út frá því, bæði undir höfuðsvörð-
inn og eins dálitið yfir heila-
bastið. Mikil blæðing fannst h. m.
á gagnaugahluta heilans, og hafði
heilinn þar marizt á stóru svæði
og mikið blætt úr. Sýnilega hafði
dauði mannsins hlotizt af þessu
mikla mari og blæðingunni á heil-
anum. Enn fremur fannst ferskt,
lítið magasár rétt niður við neðra
magamunnann.
50. 24. ágúst. Karl, 46 ára. Maður
þessi fannst látinn á kassa við
höfnina 23. ágúst. Tók nokkurn
tíma að upplýsa, hver hann væri,
þar sem engin skjöl fundust á
honum. Spýjupollur var undir
höfði mannsins, og andlit hans
var allt atað i spýju. Ályktun:
Við krufningu fannst mikil spýja
í vélindi og einnig í barkakýli,
barka og niður eftir öllum berkj-
um. Auk þess bar líkið merki
þess, að maðurinn hefði kafnað.
Er sýnilegt, að maðurinn hefur
kastað upp og kafnað í spýjunni.
31. ágúst. Kona, 78 ára. Kona þessi
hafði í mörg ár verið heilsuveil
og m. a. veil fyrir hjarta. Hún
hafði þó jafnan haft nokkra fóta-
vist, en lítið getað gengið. Um
klst. áður en hún dó, kvartaði
hún um verk fyrir brjóstinu.
Skömmu síðar fékk hún uppsölu.
Var þá símað eftir lækni, en kon-
an var dáin, áður en Jæknirinn
kom. Ályktun: Við krufningu
fundust einkenni um svæsna bólgu
i brisinu með blæðingum i, og er
helzt útlit fyrir, að það hafi orð-
ið konunni að bana, þvi að slíkt
getur gengið mjög fljótt. Bæði
nýru voru mjög rýrnuð af æða-
kölkun, svo að nýrnastarfsemin
hefur verið mjög léleg.
31. ágúst. Karl, 52 ára. Ekki hafði
verið kunnugt um neinn sjúkdóm
hjá þessum manni, og hann virtist
hafa verið heill heilsu, þegar hann
sást síðast, hinn 26. ágúst. Hann
bjó einn i herbergi, og eru líkur
til þess, að hann hafi látizt að-
faranótt 27., vegna þess að blöð
höfðu ekki verið hreyfð síðan hjá
honum. Var talið, að hann mundi
hafa farið burt úr bænum, en er
að var hugað, fannst hann lát-
inn, hinn 30. ágúst, liggjandi i
rúmi sínu. Þegar likið fannst, var
það allsnakið, nema hvað það var
í sokkum. Ekki fannst neitt, sem
benti á það, að maðurinn hefði
tekið inn lyf. Ályktun: Við krufn-
ingu fannst sprunga á hjartanu,
þannig að 2 cm langt gat var a
v. afturhólfi hjartans, og hafði
blóðið fossað þar út um og valdið
skjótum bana. Þessi sprunga staf-