Strandapósturinn - 01.06.1988, Page 131
lega sannað að þeir haustið 1866 áður en uppboð var haldið á
Dröngum á skipinu Anna Emilie frá Danmörku er þar hafði á
land rekið hafi af góssi tilheyrandi greindu skipi með leynd tekið
hérumbil fjóra fjórðunga tólgar virt á 6 ríkisdali og 24 skildinga og
borið saman og dysjað í grjóti á Drangahlíð í því skyni að koma
þeim undan almannafæri og til þess að hagnýta sér þá, en að
aðeins hinn ákærði Jón Jónsson á Eyri hafi síðan vitjað tólgar
þessarar og einn af þeim þremur orðið hennar aðnjótandi. Einnig
er það með eigin játningu Jóns bónda Jónssonar og samhljóða
vitnisburðum sannað að hann hafi heimildarlaust á Drangahlíð
tekið járnskóflu virta á 48 sk tilheyrandi ofangreindu skipstrandi
og flutt heim til sín í því skyni að hagnýta sér hana.
Ennfremur er það með eigin játningu Guðmundar vinnu-
manns Guðmundssonar frá Ingólfsfirði sem kominn er yfir lög-
aldur sakamanna og aldrei að undanförnu hefur sætt ákæru eða
hegningu fyrir lagabrot en gegn hverjum einnig mál þetta réttvís-
innar vegna er höfðað og samhljóða vitnisburðum sannað að
hann hafi til þess fenginn af Jóni Jónssyni á Eyri farið norður á
Drangahlíð og sótt með honum meðal annars áðurgreinda tólg og
í laun fyrir ferð sína fengið einn fjórðung þar af. Hvað snertir
brot þriggja hinna fyrstnefndu ákærðu þá hlýtur það beinlínis að
skoðast sem þjófnaður og þar hann er framinn á skipbrotsfé,
verður ei hjá því komist að beita fyrir hann þyngri refsingu en
fyrir einfaldan þjófnað. Þegar nú meta skal hegninguna fyrir
hvern einstakan hinna ákærðu verður hún jöfn fyrir þá Guð-
mund bónda Jónsson á Melum og Arngrím vinnumann Alexíus-
son á sama bæ þar eð brot þeirra er hið sama, og virðist hún með
tilliti til þess, að þeir að undanförnu hafa hegðað sér ráðvandlega
og hafa sýnt að gróðahugur sá sem samfara hefur verið tólgartök-
unni eftir á bráðlega horfið, þar sem þeir alls engu hafa framar
skeytt hinum stolnu munurn og einskis þeirra orðið aðnjótandi og
með hliðsjón af tilskipan 11. apríl 1840 samanborið við sömu
tilskipan l.gr., í sambandi við tilsk 24. janúar 1838 4.gr hæfilega
ákveðin 27 vandarhögg, hvar hjá þeim ber að vera háðum sérdeil-
islegri gæslu lögreglustjórnarinnar í átta mánuði.
Hvað viðvíkur broti Jóns bónda Jónssonar á Eyri þá hefur hann
129