Strandapósturinn


Strandapósturinn - 01.06.1988, Page 133

Strandapósturinn - 01.06.1988, Page 133
Dómur Landsyfirréttar Með þessum dómi var málinu þó ekki lokið því til Landsyfir- réttar er því vísað og þar er það tekið fyrir og kveðinn upp dómur 18. janúar 1869. í dómi Landsyfirréttar er í upphafi rakin ákæra og héraðsdómur þessa máls, síðan segir orðrétt. „Héraðsdómarinn hefur heimfært þennan þjófnað hinna ákærðu undir ll.gr í tilskipun frá 11. apríl 1840, en þessa skoðun hans getur Landsyfirrétturinn ekki aðhyllzt, því þessi lagagrein lýtur einungis að þeim þjófnaði frá skipbrotsmönnum sem eftir hinum eldri lögum tilsk. 21. mars 1705 og 20. febr 1789, var talinn stórþjófnaður, en þar til útheimtist að hið stolna væri 50 lóða silfurs eða 25 rd virði en næði hið stolna ekki þeirri verðhæð, varðaði það einfalds þjófnaðar hegningu. Þar eð nú hið stolna aðeins var rúmra 6 rd virði leiðir þar af, að hér getur ekki verið um stórþjófnað frá skipbrotsmönnum að ræða, og stendur því hegn- ing sú, sem þeir ákærðu eru dæmdir í, ekki í réttu hlutfalli við tilverknað þeirra, en þá ber að dæma sem seka í einföldum þjófn- aði. Hvað upphæð hegningarinnar snertir kemur, hvaðJóniJóns- syni viðvíkur, til greina, að hann, eftir því sem réttargjörðirnar bera með sér, virðist að hafa verið frumkvöðull að því að tína saman tólkarmolana og fela þá síðan eins og hann einn fénýtti sér hið stolna eftir á, án þess að þeir ákærðu, Guðmundur Jónsson og Arngrímur Alexíusson, tækju nokkra hlutdeild í því, og þar að auki stal Jón Jónsson einnig skóflunni og hafði hana heim með sér í þeim tilgangi að hagnýta hana. Jón Jónsson hefur þannig unnið til meiri hegningar en þeir Guðmundur og Arngrímur, og virðist hegning hans hæfilega metin eftir málavöxtum til 15 vandarhagga refsingar og ber undirréttarins dóm, hvað hegninguna snertir, þessu samkvæmt að breyta. Hvað þar næst Guðmund Jónsson og Arngrím Alexíusson snertir er brot þeirra eins og áður er sagt þar í fólgið, að þeir tíndu með Jóni Jónssyni saman tólkarmola í fjörunni og földu þá en nutu síðan einskis af tólknum eins og þeir heföu algjörlega gleymt tilverknaði sínum, enda er sannað að þeir voru mjög drukknir, þegar þeir unnu verkið. Þeim hafa og geflst góðir vitnisburðir 131
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148

x

Strandapósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Strandapósturinn
https://timarit.is/publication/1641

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.