Saga - 2013, Page 67
Sumir bréfritara nítjándu aldar gerðu sér grein fyrir þessari tíma-
vídd og ræddu hana jafnvel í bréfum sínum. einn þeirra var séra
Sigfús Jónsson á Tjörn á vatnsnesi, sem skrifaði Jakobínu Jónsdóttur
systur sinni á Hólmum í Reyðarfirði árið 1864 og lýsti því hve erfitt
væri að „láta stirðan pennastaur fara að „mynda ræðu“ sem ekki
getur borist þér fyrir augu eða eyru fyrr en eptir svo lángan tíma, að
hún verður orðin sem deyandi bergmál“ í stað þess að tala við hana
augliti til auglitis. Þessar „tómlegu og stuttu bréflegu samræður“
fannst Sigfúsi þó betri en engar því hann vildi „ekki vera án þess að
heyra þær frá einstökum vinum og vandamönnum.“20
Mæðgurnar á Hallfreðarstöðum ávörpuðu ekki tímann á sama
skáldlega máta og Sigfús þótt þeim væri ljós fjarlægðin milli þeirra
og Páls, bæði í tíma og rúmi. Þar var þáttur póstsamgangna mikil-
vægur, eins og nánar verður vikið að, en ekki var öruggt að bréf
bærust viðtakanda í réttri tímaröð því þau voru send eftir ýmsum
leiðum og mishröðum. Þar með riðlaðist allt samhengi bréfanna.
Þótt öðrum þræði megi líta á hvert bréf sem sjálfstæða einingu,
einmitt vegna áðurnefndra tímasniðs- og nútíðareinkenna, eru þau
skrifuð í samhengi við fyrri bréf (eða samband bréfritara og viðtak-
anda, sé verið að hefja bréfaskipti) og í þeim felast spurningar eða
málefni sem leyst er úr eða rædd í bréfunum sem á eftir koma. ekki
verður annað séð en það hafi verið eitt meginmarkmið bréfaskrif-
anna að gefa Páli raunsanna mynd af lífinu fyrir austan og helst í
réttri tímaröð. Þess vegna eru fréttir oftast sagðar þaðan sem frá var
horfið í síðasta bréfi og beinlínis vísað til þess, eins og Malene gerir
t.d. í bréfi 1819: „Sidan eg skrifadi þier seinast hefur fatt til tídinda
borid hier“. Bréfinu lýkur hún með eftirskrift sem vísar til tveggja
annarra mikilvægra þátta bréfaskrifa, sem eru póstsamgöngur og sú
félagslega athöfn sem bréfaskriftirnar voru: „skrifadu þegar getur
og ferdir falla, þettad skrifa eg með posti norður og verdur vist timi
þangað til það kiemst til þín, alt fólkid hropar upp og bidur ad
heilsa þier 1000 sinnum sæll“.21
Þá ferð fellur
Árið 1824 fékk Páll tólf bréf frá allra nánustu fjölskyldu sinni austur
á Héraði: tvö bréf frá móður sinni, fimm frá ömmu, tvö frá hvorri
kvennabréfin á hallfreðarstöðum 65
20 Lbs. Lbs. 3180 4to. Sigfús Jónsson til Jakobínu Jónsdóttur 3. apríl 1864.
21 Lbs. Lbs. 2411 a 4to. Malene Jensdóttir til Páls Pálssonar 7. janúar 1819.
Saga haust 2013 NOTA_Saga haust 2004 - NOTA 23.6.2020 15:04 Page 65