Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2018, Side 76

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.01.2018, Side 76
79 II. Um lögtöku Jónsbókar og eftirmál þess Til þess að skilja söguna af ferð Lofts Helgasonar til Noregs árið 1282 þarf að greina hana nákvæmlega innan átakanna sem urðu eftir að Eiríkur hafði tekið við völdum. Magnús konungur hafði sent Járnsíðu til Íslands og fengið hana aftur til endurskoðunar 1273 og haustið 1280 kom út til Íslands Loðinn leppur, erindreki Eiríks konungs, með lögbók sem hefur gengið undir heitinu Jónsbók.34 Loðinn ferðaðist um landið veturinn 1280 til 1281 með boðskap nýja konungsins ásamt Jóni Einarssyni, þeim sem Jónsbók er kennd við, en hann var lögmaður, lendur maður og embættismaður kon- ungs. Jónsbók var lögð fram á næsta þingi, sumarið 1281 og lögtekin. Jónsbók var endurskoðuð útgáfa af Járnsíðu en í sjálfu sér ekki ný lög- bók. Rétt leið til að ná fram lagabreytingum var að konungur legði fram tillögu sem Alþingi tæki til skoðunar og sendi aftur með athugasemdum sem konungur tæki til skoðunar. Að því búnu fengi Alþingi lögin aftur til umfjöllunar og sendi viðbrögð til konungs og voru engin lagaleg tak- mörk á því hve oft lögin yrðu send á milli aðila. Var þetta sama aðferð og þegar sættargerðin var í undirbúningi og þegar samningar náðust milli Norðmanna og Vilhjálms kardínála 1247. Ástæða þess að átta ár tók að yfirfara lögin tel ég að liggi í því að samningarnir voru flóknir og pólitískur þrýstingur mikill.35 Fræðimenn gera stundum ráð fyrir að Jónsbók hafi endurspeglað vilja Magnúsar konungs en Árna saga tekur af allan vafa um að Loðinn leppur var erindreki Eiríks konungs og fulltrúi hans stefnu: „Það sama sumar kom út Loðinn leppur í Vestmanneyjar með boðskap hins unga kóngs“ (71).36 öfugt við Járnsíðu, sem náði aðeins til veraldlegra 34 Jónsbók hefur margoft verið gefin út en þar sem er vísað til hennar hér er notuð þessi útgáfa: Jónsbók. Lögbók Íslendinga [Hver samþykkt var á alþingi árið 1281 og endurnýjuð um miðja 14. öld en fyrst prentuð árið 1578], Már Jónsson tók saman, Reykjavík: Háskólaútgáfan, 2004. 35 Sigurður Líndal hefur giskað á að strjálbýli landsins skýri hve langan tíma tók að yfirfara Járnsíðu, en bent jafnframt á að erfitt sé að finna þeirri lífseigu söguskoðun stað í heimildunum að Íslendingar hafi tekið Járnsíðu illa. „Hvers vegna var Stað- arhólsbók skrifuð?“, bls. 289. 36 Þessarar hefðar sér til dæmis stað þar sem Magnús Lyngdal Magnússon gerir ráð fyrir því að Jónsbók hafi end urspeglað áform Magnúsar konungs og þar með ágreining milli þeirra Árna biskups. Magnús segir: „Sam komu lag eða sátt í málinu náðist ekki fyrir dauða Magnúsar lagabætis árið 1280. Þá hafði hann lokið við að láta semja nýja lögbók fyrir Íslendinga, Jónsbók, sem Jón Einarsson og Loðinn leppur sigldu með út sama ár.“ Magnús Lyngdal Magnússon, „Inngangur“, bls. 59. Þessa sýn má rekja að minnsta kosti aftur til Árbókar Espólíns þar sem segir um komu Loðins og Jóns Einarssonar: „Þeir fóru med lögbók Magnúsar konúngs LOFTUR HELGASON FER TIL BJöRGVINJAR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180
Side 181
Side 182
Side 183
Side 184
Side 185
Side 186
Side 187
Side 188
Side 189
Side 190
Side 191
Side 192
Side 193
Side 194
Side 195
Side 196
Side 197
Side 198
Side 199
Side 200
Side 201
Side 202
Side 203
Side 204
Side 205
Side 206
Side 207
Side 208
Side 209
Side 210
Side 211
Side 212
Side 213
Side 214
Side 215
Side 216
Side 217
Side 218
Side 219
Side 220
Side 221

x

Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar
https://timarit.is/publication/1098

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.