Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2021, Blaðsíða 34
STAFRæNT MÁLSAMBýLI ÍSLENSkU OG ENSkU
33
ílags- og málnotkunarkvarðarnir tíu í (5) í kafla 3.2.2 notaðir til þess að spá
fyrir um mállegu breyturnar. Þar sem innbyrðis fylgni (e. collinearity) er til
staðar á milli þeirra breyta var líkanasamanburði með ólíkum ílags- og mál-
notkunarbreytum beitt kerfisbundið og það líkan valið, af þeim fimm sem
keyrð voru, sem samræmdist gögnunum best þegar það var borið saman
við grunnlíkanið. Öll tölfræðiúrvinnsla, aðhvarfsgreiningar og spálíkana-
greiningar, var unnin í R.47
4. Niðurstöður
Í þessari grein gefum við yfirlit yfir helstu niðurstöður tölfræðilegrar grein-
ingar á gögnum úr netkönnun (N = 724) og viðtölum (N = 106) við 3–12
ára börn. Áherslan í greiningunni var á að hvaða leyti íslenskt og enskt ílag
barnanna og málnotkun skýrir svör þeirra við mállegum breytum, það er
íslenskan og enskan orðaforða og íslenska og enska málfræði. Í brennidepli
er meginumfjöllunarefni greinarinnar, það er möguleg áhrif stafræns ensks
ílags á íslenskufærni barnanna, en ensk málfræði var aðeins prófuð ítarlega
hjá 10–12 ára börnum í netkönnuninni. Í kafla 4.1 er fjallað um niðurstöður
netkönnunarinnar og í kafla 4.2 um niðurstöður viðtala og ítarlegri prófana
á börnunum, þar sem fyrst er gerð grein fyrir niðurstöðum ílagsmælinga og
síðan tengslum þeirra við mállegar breytur, orðaforða og málfræði. Eins og
komið hefur fram er tilgangur greinarinnar að svara rannsóknarspurning-
unum í (1), þar sem spurt er að hvaða leyti ílag og málnotkun barnanna
skýri svör þeirra við mállegum breytum og um sambandið á milli ensku- og
íslenskunotkunar barnanna. Í ljósi rannsóknarspurninganna er lögð áhersla
á tölfræðilegt samband á milli breytnanna í þeim niðurstöðum sem kynntar
eru hér frekar en lýsandi gögn.48
4.1 Netkönnun
Í þessum kafla er samband bakgrunns-, ílags- og viðhorfsbreytna við mál-
legar breytur í netkönnuninni kannað. Fyrst er fjallað um íslenskan og ensk-
an orðaforða og síðan er samband spábreytnanna við málfræðibreyturnar
skoðað.
47 R. Core Team, R: A language and environment for statistical computing, Vienna: R Fo-
undation for Statistical Computing, 2019, sótt 5. september 2021 af https://www.R-
project.org.
48 En sjá þó umfjöllun um niðurstöður barnanetkannananna, meðal annars með lýs-
andi gögnum, hjá Sigríði Sigurjónsdóttur og Eiríki Rögnvaldssyni, „Stafrænt sam-
býli íslensku og ensku“.