Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2021, Blaðsíða 155
FINNuR FRIðRIKSSON OG ÁSGRÍmuR ANGANTýSSON
154
íslenskra barna sem alast upp í tví- eða fjöltyngdu umhverfi,34 auk þess sem
málvíxl tvítyngdra Dana á Íslandi hafa verið athuguð.35 Hvað varðar málvíxl
í rafrænum samskiptum og/eða á samfélagsmiðlum hafa þau ekkert verið
skoðuð í íslensku samhengi, eftir því sem næst verður komist. Í þessari grein
er því haldið út á að mestu óplægðan íslenskan akur.
3 Aðferðir, gögn og greining
Þeim gögnum sem hér er unnið með var safnað innan ramma stærra
rannsóknarverkefnis sem var ætlað að veita innsýn í þá sjálfsmynd sem
íslensk ungmenni á framhaldsskólaaldri birta af sjálfum sér á Facebook.36
Einn liður í þeirri mynd er málnotkun ungmennanna í stöðuuppfærslum (e.
status update) og athugasemdum (e. comment) á facebook-síðum sínum og í
þeim skilaboðum sem þau senda sín á milli í gegnum messenger, spjallfor-
ritið sem tengt er Facebook. Hér er horft sérstaklega til málnotkunar ung-
mennanna í þessum samskiptum og þeirra málvíxla sem þar birtast.
Til að afla gagnanna var leitað til tveggja framhaldsskóla vorið 2015, ann-
ars vegar hefðbundins bóknámsskóla og hins vegar skóla sem býður upp á
bæði bóknám og ýmiss konar verknám. Var það gert til að tryggja sem mesta
breidd í nemendahópnum. Leyfi var fengið til að fara í skólana á skólatíma
og líta inn í kennslustundir hjá bekkjum og námshópum til þess að kynna þar
verkefnið og biðja þá nemendur sem höfðu áhuga um að taka þátt í því. Þeir
sem gáfu sig fram fengu í kjölfarið kynningarbréf og skrifuðu undir upplýst
samþykki sitt. Þess var gætt að nemendurnir kæmu af sem flestum náms-
brautum og/eða -leiðum, til að tryggja ákveðna fjölbreytni, en að öðru leyti
var ekki hugað sérstaklega að bakgrunni þeirra fyrir utan það að eingöngu
var leitað til nemenda sem voru orðnir sjálfráða, þ.e. orðnir 18 ára. með
þessu móti fengust alls 92 nemendur til þátttöku, 48 nemendur úr öðrum
skólanum og 44 úr hinum, og skiptingin var sú sama hvað varðar kynin, þ.e.
48 stúlkur og 44 drengir.
34 Alma Sól morelli, Tvítyngi er í góðum málum: Skilgreining á tvítyngi og greining þess í
ítalskri-íslenskri fjölskyldu, BA-ritgerð í íslensku sem öðru máli við Háskóla Íslands,
2019, http://hdl.handle.net/1946/32775; Sigrún Sveinsdóttir, „Ég er fullorðin á
ensku…“: Máltaka, mál og sjálfsmynd þrítyngdrar stúlku, BA-ritgerð í almennum mál-
vísindum við Háskóla Íslands, 2011, http://hdl.handle.net/1946/8775.
35 Þóra Björk Hjartardóttir, „Bein ræða og málvíxl hjá tvítyngdum Dönum“, bls. 13–36.
36 Verkefnið hafði vinnuheitið „Sjálfsmyndarsköpun íslenskra ungmenna á samfélags-
miðlum“. Finnur Friðriksson og Andrea Hjálmsdóttir, „Birtingarmyndir sjálfsins
á Facebook“, fyrirlestur fluttur á Ráðstefnu um íslenska þjóðfélagsfræði 18. apríl
2015.