Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2021, Blaðsíða 146
Finnur Friðriksson og Ásgrímur Angantýsson
„Þá leyfir maður sér liggur
við að hlaupa tungumálanna á milli“
Íslensk-ensk málvíxl framhaldsskólanema
á samfélagsmiðlum
1 Inngangur
Íslenskt mál á sér langa og ríkulega ritmálshefð og málsamfélagið hefur
lengst af verið eintyngt að mestu leyti.1 Á undanförnum árum hefur verið
bent á að staða málsins sé ef til vill ekki eins traust og ótvíræð og áður,
meðal annars vegna alþjóðavæðingar, örrar tækniþróunar og sívaxandi
enskunotkunar á ýmsum sviðum þjóðlífsins.2 Í nýlegri ályktun Íslenskrar
málnefndar3 eru viðraðar áhyggjur af neikvæðum viðhorfum íslenskra ung-
menna til tungumálsins og í því sambandi vísað til þess að vinsældir íslensku
sem námsgreinar hafi dvínað og að enska komi mun betur út í þeim saman-
burði.4 Þá hafa rannsóknir leitt í ljós að börn og unglingar telja mikilvægt
1 Höfundar þakka ritrýnum og ritstjórum fyrir gagnlegar ábendingar og athugasem-
dir við fyrstu gerð þessarar greinar. Einnig eru Írenu Rut Jónsdóttur færðar þakkir
fyrir aðstoð við innslátt gagna.
2 Sjá til dæmis Amanda Hilmarsson-Dunn og Ari Páll Kristinsson, „The language si-
tuation in Iceland“, Current Issues in Language Planning 11: 3/2010, bls. 207–276; Sig-
ríður Sigurjónsdóttir og Eiríkur Rögnvaldsson, „Íslenska á tölvuöld“, Frændafundur
9, ritstj. Höskuldur Þráinsson og Hans Andrias Sølvará, Reykjavík: Háskólaútgáfan,
2019, bls. 47–56.
3 Ályktun um stöðu íslenskrar tungu, Íslensk málnefnd, 2020, https://islenskan.is/
images/Alyktanir-pdf/alyktun2020.pdf.
4 Rúnar Sigþórsson, Anna-Lind Pétursdóttir og Þóra Björk Jónsdóttir, „Nám, þátt-
taka og samskipti nemenda“, Starfshættir í grunnskólum við upphaf 21. aldar, ritstj.
Gerður G. Óskardóttir, Reykjavík: Háskólaútgáfan, 2014, bls. 161–196, hér bls.
173; Ólöf Björk Sigurðardóttir og Sigríður Sigurjónsdóttir, „Viðhorf íslenskra
Ritið
3. tbl. 21. árg. 2021 (145-176)
Ritrýnd grein
© 2021 Ritið, tímarit Hug vísinda stofnunar
og höfundar greinarinnar
Útgefandi:
Hugvísinda stofnun Háskóla Íslands,
Sæmundargötu 2, 102 Reykjavík
Birtist á vefnum http://www.ritid.hi.is.
Tengiliður: ritið@hi.is
DOI: 10.33112/ritid.21.3.6
Birt samkvæmt skilmálum
Creative Commons BY (4.0).