Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2021, Blaðsíða 244
RANNSÓKNIR Á STAFRÆNU MÁLSAMBÝLI …
243
helsta einkenni landsins: hinu gríðarlega víðlendi eyþjóðarinnar sem er þó
einangruð. Tilfinningin sem andstæðurnar víðátta~einangrun veldur sést
hvað best á þessu samtali Vigdísar og Egils:
„Kannski fengjum við innilokunarkennd ef þetta væri ekki svona,“
sagði Vigdís.
„Innilokunarkennd? Af hverju? Í fimmhundruð fermetrunum
ykkar á nesinu?“ Egill glotti og virtist njóta þess að fara í taugarnar
á þeim. Hann öfundaði Hrafn af húsinu sem hann átti, af pen-
ingunum, bílunum, sumarbústaðnum á Þingvöllum, að minnsta
kosti síðan hann stóð frammi fyrir því að missa allt sem hann hafði
hlaðið að sjálfum sér.
„Allir Íslendingar lifa lífi sínu með hliðsjón af víðáttunni hérna
uppfrá, auðninni,“ sagði Vigdís. „Líka við sem komum hingað
sjaldan.“ (65)
Eyðimörkin í bók Steinars Braga er eins og glerstrendingur sem brýtur nið-
ur málefni sem varða efnahaginn og samfélagið, ekki síður en Overlook-hót-
elið sem er gegnsýrt af hryllilegri fortíð og felur um leið í sér ýmis kennileiti
í sögu bandarísku þjóðarinnar. Hálendið er að sama skapi mettað af hræjum
kynslóðanna sem sandur tímans hefur sópað yfir en ekki afmáð.
„Eru nokkur gljúfur hérna eða sprungur?“ sagði Anna. „Viltu ekki
setja á þig belti, Egill.“
„Eða sandbleytur,“ sagði Vigdís.
„Úff. Sem við hverfum ofan í, meinarðu?“
„Já, eins og kviksyndi. Það hafa fundist hestar hérna frá mið-
öldum, vel varðveittir í drullunni. Og menn.“
„Jeppi væri þá sannarlega happafengur. Með fjórum farþegum,
hundi, gemsum, sms-skilaboðum og tannfyllingum. Tuttugasta og
fyrsta öldin stimplar sig inn til seinni tíma rannsókna!“ Þær hlógu.
(12)
Í hliðstæðunni sem birtist í fararskjótunum tveimur í tilvitnuninni, hestinum
og jeppanum, felst eitt af grundvallaratriðum gotnesku stefnunnar: hvern-
ig samtíminn speglast í fortíðinni. Þá vantar bara sjálft húsið. Það liggur í
augum uppi að sandarnir eru ekki hús, en þó má líta svo á að það séu smíð-
aðir nokkurs konar veggir utan um hálendið á fyrstu blaðsíðu skáldsögunnar.
Í bókinni er náttúran afmörkuð með fjórum svörtum veggjum, líkt og