Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2021, Blaðsíða 127
HELGA HILmISDóTTIR
126
Eins og áður sagði voru drengirnir fimmtán ára gamlir þegar hljóðrit-
unin átti sér stað. Þeir eru nemendur í tíunda bekk hvor í sínum grunnskól-
anum á höfuðborgarsvæðinu en þekkjast vel. Þar sem langt er á milli heimila
þeirra hittast þeir þó ekki dagsdaglega en fara oft saman í tölvuleiki þar sem
þeir geta talað saman. Samtölin snúast oft um sjálfan leikinn en einnig ræða
þeir önnur málefni eins og skólann, framtíðardrauma, föt og tækjabúnað
sem þá langar að kaupa sér, eða samskipti við aðra vini og kunningja. Leikja-
tölvan hefur því mjög mikið félagslegt gildi fyrir vinina tvo og virðist vera
mikilvægur liður í því að viðhalda sambandi á milli drengjanna.
Samtölin fara fram eftir skóla og báðir drengirnir sitja einir í herberginu
sínu og spjalla í gegnum leikjatölvu. Þótt þeir noti aðallega tölvubúnaðinn
til að eiga í samskiptum eru þeir jafnframt með síma við höndina sem þeir
nota til að senda hvor öðrum ljósmyndir, stutt myndskeið, mím (e. meme)
og tengla. Þessar aðstæður eru kunnuglegar enda njóta miðlar eins og You-
Tube, TikTok og Instagram mikilla vinsælda meðal ungra Íslendinga í dag.
Umskráning samtala og gagnagrunnar
Samtölin voru skráð í umskráningarforritið Elan sem hannað var fyrir tákn-
málsfræðinga á vegum max Planck-stofnunarinnar í Hollandi en forritið er
notað í samtalsrannsóknum víða um heim. umskráningarforritið Elan sýnir
hljóð- og myndbandsupptöku og tengir hana við umskráninguna. Einnig
býður forritið upp á að kallað sé eftir textaskrá með öllum skráðum ein-
ingum ásamt tölum yfir fjölda tilvika, en það er einmitt slík skrá sem liggur
til grundvallar þessari grein.
Við umskráningu samtalanna var tekið tillit til allra hljóða sem heyr-
ast á upptökunum, eins og tíðkast innan samskiptamálfræðinnar.32 Hvert
orð eða brot úr orði var merkt inn og skráð, og það sama gildir um söng,
hlátur, andvörp, innöndun, rop og geispa, svo fátt eitt sé nefnt. Einnig voru
þagnir mældar af mikilli nákvæmni og að lokum var öllum nöfnum breytt
og þau fjarlægð úr hljóðskrá. Þar sem markmiðið er að setja samtölin inn
í leitarbæran gagnagrunn var þó leitast við að halda ákveðnu samræmi við
skráningu gagna. Haft var að leiðarljósi að gagnagrunnurinn ætti að geta
nýst í ýmiss konar rannsóknir hvort sem þær snúast um orðaforða, hljóð-
dóttir og kann ég henni bestu þakkir fyrir. Samtölin sem hér eru til rannsóknar
skráði höfundur greinar.
32 Gail Jefferson, „Glossary of transcript symbols with an introduction“, Conversa-
tion Analysis. Studies from the First Generation, ritstjóri Gene H. Lerner, Amsterdam:
John Benjamins, 2004, bls. 13–31.