Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2021, Blaðsíða 129
HELGA HILmISDóTTIR
128
því er mikilvægt að kafa dýpra í efnið og skoða hvers konar orð liggja að baki
tölunum og hvort framandorðin koma fyrir ein og sér eða í stærri einingum.
Framandeiningar eftir flokkum
Farið var vandlega yfir hvert og eitt lesmálsorð sem flokkað var sem framand-
orð og athugað hvort það kemur fyrir með öðrum framandorðum eða eitt
og sér (það er í segðum þar sem önnur orð flokkast sem íslenskur orða-
forði). Framandorð sem eru notuð sem ein heild voru síðan flokkuð saman
í það sem í þessari grein er kallað framandeiningar (e. foreign units). Sam-
tals skiptust 1.988 framandorð því í 1.527 framandeiningar. Einingunum
má skipta í 5 flokka: 1) nafnorð og nafnliðir, 2) lýsingarorð, 3) sagnir, 4)
atviksorð og atviksliðir, 5) málnotkunarlegar tökur (e. pragmatic borrowing)
og 6) lengri segðir. Tafla 2 sýnir dreifingu framandeininga í flokka.
Tegund framandeininga n %
nafnorð og nafnliðir 756 49,5%
Lýsingarorð 76 5%
Sagnir (stundum með ögnum) 183 12%
Atviksorð og atviksliðir 10 0,6%
málnotkunarlegar tökur 401 26,3%
Heilar segðir 101 6,6%
SAmTALS 1.527 100 %
Tafla 2: Skipting framandeininga í flokka.
Eins og fram kemur í Töflu 2 flokkast tæplega helmingur allra tilvika sem
nafnorð eða nafnliðir, eða 49,5% af heildarfjölda allra framandeininga (til
dæmis shop, the second man). nöfn og nafnliðir eru því langstærsti flokkurinn
og eru þessi hlutföll að því leyti í samræmi við fyrri rannsóknir á nýlegum
aðkomuorðum í íslensku. Hlutfall nafnorða er því mun hærra ef einungis
er litið er til aðkomuorða en þegar orðaforðinn er skoðaður sem heild. Til
samanburðar má nefna að hlutfall nafnorða í OTB er 23,6%.35
35 Þess ber þó að geta að skipting íslensks orðaforða í orðflokka er algjörlega ósam-
bærileg skiptingu framandorða og samanburðurinn því aðeins til hliðsjónar. Orða-
forðinn í OTB, sem telur 519.186 lesmálsorð, skiptist í tíu flokka: nafnorð (23,6%),
lýsingarorð (6,9%), fornöfn (14,3%), greini (0,1%), töluorð (1,1%), sagnir (19,9%),
atviksorð (22,3%), samtengingar (11,6%), erlend orð (0%, n=293) og ógreind orð
(0%, n=129).