Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2021, Side 100
„BROOO, wTF!?!?“
99
Mynd 1: Ljósmynd af 2000-könnuninni.
Mynd 2: Skjáskot af 2020-könnuninni.
Mynd 3: Stafræn táknmynd sem hluti af svari.
Mynd 2: Skjáskot af 2020-könnuninni.
Áhrif stafrænnar tækni í svörum unglinga
Hér verða svör við vefkönnuninni í brennidepli og fjallað um helstu breyt-
ingar sem þar koma fram og tengjast stafrænni tækni. Líkt og þegar hefur
komið fram verður hér fjallað um þrjá af fjórum meginþáttum í greiningu
á netsamskiptum, það er táknfræðilega uppbót, skilvirkni og notkun stafa-
tákna, en ekki verður fjallað sérstaklega um talmálsupplifun.
A) Táknfræðileg uppbót
Í svörum sínum við vefkönnuninni nota nemendur einkum þrjár leiðir til að
bæta upp fyrir atriði sem glatast í ritmáli: stafamargföldun, táknmyndir og
hástafi.
Fjölmörg dæmi um stafamargföldun (e. reduplication) koma fyrir í svörum
við vefkönnuninni. Slíkt er afar fátítt í svörum við 2000-könnuninni og má
því túlka sem skýrt dæmi um áhrif stafrænnar tækni á rithátt. Lyklaborð gera
notendum kleift að halda inni tökkum og margfalda þannig stafi að vild, og
sömuleiðis má með góðu móti endurtaka stafi með notkun snertiskjás með
því að ýta ítrekað á sama takkann. Vegna smæðar og næmni búnaðarins má
þó jafnframt gera ráð fyrir því að stundum slæðist stafir óvart með.
Í 2000-könnuninni nefndu 26 þátttakendur orðið girl sem slanguryrði yfir
stúlku og þá kom það fyrir í 6 ólíkum ritmyndum: girl, girla, görl, girls, girly og
girlfriend. engin þessara ritmynda sýnir dæmi stafamargföldunar. Í 2020-könn-
uninni nefndu 112 þátttakendur sama orðið sem slanguryrði yfir stelpu og þá
kom það fyrir í 15 ólíkum ritmyndum. Af þessum 15 ritmyndum sýna 10 þeirra
dæmi um stafamargföldun: giirl, girlllll, girll, gurrrrl, gurlll, guuurl, girlzzzz,
girlzzzzz, giiirl og giiiirl. Af þessu má ráða að notendur lyklaborða og snertiskjáa
leiki sér að því að margfalda stafi til dæmis í því skyni að skapa tiltekin hughrif,
túlka framburð eða vísa í dægurmenningu á borð við sjónvarpsþætti og tónlist.
eins og dæmin gefa til kynna virðast orðin ýmist lengd í því skyni að líkja eftir
mæltu máli24 (til dæmis guuurl) eða leika sér að því sjónrænt (til dæmis girlzzzz).
24 Sbr. hugmyndir Androutsopoulos um talmálsupplifun í netsamskiptum. Jannis
Androutsopoulos, „Language change and digital media“, bls. 145–160.