Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2021, Page 225
SIgRÚn MARgRéT gUðMUnDSDóTTIR
224
er að skilja, eins og það sem landsmenn reiddu sig á fyrstu ár 21. aldarinnar
að minnsta kosti.14 Viðar segir:
Eitt einkenni á skáldskap Viktoríutímans var meðvitundin um
óstöðugleika skuldadrifins hagkerfis og angist vegna skorts þess á
jarðtengingu, angist sem ágerðist eftir því sem breska hagkerfið
virtist æ ofurseldara duttlungum hlutabréfamarkaða, spákaup-
mennsku, og efnahagsbólum.15
Viðar ræðir sérstaklega um Konur sem táknsögu um fjármálavæðinguna og
haldið sem lagt er á tímann í grein sinni, það er að segja hvernig „fjármála-
auðmagn“ nær valdi á sjálfsverunni og tímanum um leið.16 Með hliðsjón af
hugmyndum hagfræðingsins Elenu Esposito gerir hann grein fyrir því að
meira sé fólgið í lánasamningi en loforð um endurgreiðslu því að við undir-
ritun sé tími lántakanda festur í fjötra.
Samningur lántaka og lánveitanda felur […] í sér ákveðna mótun
eða bindingu tímans frá sjónarhóli sjálfsverunnar, bindingu sem
kristallast í loforðinu, sjálfviljugu en þó heftandi samkomulagi sem
njörvar framtíð sjálfsverunnar niður á klafa fyrri yfirlýsinga henn-
ar.17
Í skáldsögunni fær listakonan Eva afnot af lúxusíbúð í Skuggahverfinu, sér
að kostnaðarlausu – að hún heldur. Tilboðið er í anda reimleikahúsasagna;
of gott til að vera satt. Íbúðin er á vegum Kaupþings og í ljós kemur að hún
þarf að greiða hana dýru verði, það er að segja með því gefa sjálfræðið upp
á bátinn. Hún verður fangi í íbúðinni, sem Viðar tengir við „vald fjármála-
geirans yfir lífum venjulegs fólks“ í krafti húsnæðislánasamninga.“18 Með
14 Töluvert hefur verið rætt um forspárgildi bókarinnar fyrir íslenska fjármálahrunið
sem í vændum var þegar Steinar Bragi samdi hana. Eiríkur Örn norðdahl, „Lite-
rature in the Land of the Inherently Cute“, The Reykjavík Grapevine, 15. apríl 2011,
sótt 5. október 2021 af https://grapevine.is/mag/articles/2011/04/15/literature-in-
the-land-of-the-inherently-cute/. Eiríkur kallar Konur jafnframt kreppusögu (e.
crisis novel).
15 Viðar Þorsteinsson, „Fjármálavæðing og mótun tímans í Konum eftir Steinar Braga“,
nmgr. bls. 16.
16 Sama heimild, bls. 14.
17 Sama heimild, bls. 13. Viðar vísar í verk Elenu Esposito, The Future of Futures. The
Time of Money in Financing and Society, Cheltenham: Edward Elgar, 2011.
18 Sama heimild, bls. 12.