Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.10.2021, Blaðsíða 239
SIgRÚn MARgRéT gUðMUnDSDóTTIR
238
allt undir í lokabeygjunni í upphafi sögu, sem lesa má sem líkingu fyrir hegð-
unina sem hrinti af stað hruninu. Háttalag Hrafns minnir á fjárhættuspilara
sem ætlar að bæta upp fyrir stórkostlegt tap með því að veðja öllu í einu til að
freista þess að vinna það upp. Hann sveigir bílinn allt of langt til hægri með
þeim afleiðingum að ungmennin skella á húsinu. Stelpurnar hvetja hann
áfram með því að gala kunnuglega frasa: „við hljótum að redda þessu“ (10)
og „[þ]etta á allt eftir að bjargast“ (10). Kröpp hægribeygjan snýst ekki bara
um að bjarga málunum heldur einnig um að láta óttann ekki læsa klónum í
sig og stúlkurnar eru kórinn sem táknar þjóðina, sem í hrokafullu sakleysi
lítur svo á að þetta ‚reddist‘ allt – þar að auki kunna farþegarnir að vera svo-
lítið sjóndaprir af græðgi.49
Taugafræði óttans
Orðatiltækið „fjármálamarkaðir eru knúnir af tveimur kröftugum geðs-
hræringum – græðgi og ótta“ hefur lengi loðað við Wall Street.50 Fjármála-
mógúllinn Warren Buffett tók það mjög alvarlega og sneri á andstæðinga
sína með því að vera „hræddur þegar aðrir v[o]ru gráðugir og einungis gráð-
ugur þegar aðrir v[o]ru hræddir“.51 Ræða gordons gekko í kvikmyndinni
Wall Street (leikstj. Oliver Stone, 1987) fjallar einnig um ávinning þess að
vera gráðugur. „græðgi í öllum skilningi; græðgi í líf, peninga, ást og þekk-
ingu er meginástæðan fyrir uppgangi mannkyns“.52 Eitt af því sem einkenndi
útrásarárin á Íslandi var óhóf sem fór fram úr öllu sem áður hafði sést, stjórn-
49 guðni Elísson ræðir um orð Höllu Tómasdóttur þar sem hún talar um sérstöðu
þjóðarinnar í tengslum við kaup Íslendinga á dönsku keðjunni Magasin Du nord.
Hún segir að sem þjóð séum við „nógu laus við innri hindranir til að okkur detti
svona lagað í hug, og höfum jafnframt það sem þarf til að láta það gerast í alvörunni.
Við ‘reddum’ hlutunum.“ Sjá „Vogun vinnur … Hvar liggja rætur íslenska fjármála-
hrunsins“, bls. 129. guðni nefnir einnig að erlendur mannfræðingur hafi valið orðin
hrokafullt sakleysi þegar hann var beðinn um að segja hvað helst einkenndi þjóðina.
Sama heimild, sama stað.
50 Sjá til dæmis guglielmo Maria Caporale o.fl., „Is market fear persistent? A long-
memory analysis“, Finance Research Letters 27/2018, bls. 140 –147, hér bls. 140.
51 Tilvitnunina er að finna víða, enda er hún löngu orðin fleyg, sjá til dæmis grein
Adams P. Brownlee, „Warren Buffett. Be Fearful when Others are greedy“, Investo-
pedia, 5. apríl 2019, sótt 3. desember 2021 af https://www.investopedia.com/articles/
investing/012116/warren-buffett-be-fearful-when-others-are-greedy.asp.
52 Wall Street, leikstjóri Oliver Stone, Bandaríkin: American Entertainment Partners,
1987: „greed, in all of its forms; greed for life, for money, for love, knowledge has
marked the upward surge of mankind.“