Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2022, Blaðsíða 86
„HVER VIll VERðA HREIn mEY AFTUR?“
85
vörðungu um barnið sitt: „hún ætlar sér ekki að verða ein af þeim mæðrum
sem ekki geta haldið uppi fullorðins samræðum.“108 lýsingin kallast á við
leiðinlegu mæðurnar í þættinum „The Baby Shower“ sem vinkonurnar
heimsækja sér til mikillar mæðu. Kannski má sjá ákveðna íhaldssemi í því að
miranda giftist Steve, manni sem hún hefur ekki mikinn áhuga á og mögu-
lega giftast þau vegna þess að þau eiga barn saman. Og þegar drengurinn er
orðinn næstum fullorðinn í framhaldsþáttunum And Just Like That, leyfir
hún sér að stofna til ástarsambands með hinu spennandi Che Diaz sem koll-
varpar lífstíl sem er orðinn venjubundinn og andlaus.
joanna di mattia leggur áherslu á það í grein sinni „What’s the harm in
beliving“ að Sex and the City þættirnir varpi ljósi á ómöguleika þess að skil-
greina hinn eina rétta á póstfemínískum tíma.109 Í þessum anda má benda á
orð Carrie sem á öðru ári þáttaraðarinnar varpar fram eftirfarandi spurn-
ingu: „Er mögulegt að trúa á ást við fyrstu sýn í borg sem er jafn kaldhæðin
og new York?“110 Di mattia segir að í annarri bylgjunni hafi sú skoðun verið
ráðandi að ævintýraprinsinn tilheyri karlveldinu og sé skapaður til að gera
konur óvirkar og viðkvæmar og hann hafi átt að bjarga þeim. nútímalegar
konur hafi hins vegar brotist undan þessari ánauð og þurfi ekki lengur á
honum að halda til þess að gera hinn hamingjusama endi mögulegan.111
Sex and the City snýst öðrum þræði um það hvort nauðsynlegt sé að trúa
á hinn eina rétta? Er hugmyndin skaðleg eða fölsk? Þættirnir sýna heim þar
sem leiðin að altarinu er orðin ófær og skýringin sem þeir bjóða upp á virðist
vera sú að karlar viti ekki til hvers er ætlast til af þeim bæði í opinberum
hlutverkum og í einkalífinu. Hin sjálfstæða, orðheppna, kynferðislega frjálsa
kona gerir það að verkum að erfiðara er orðið að skilja í hverju karllæg for-
ysta felst og hún þarfnast því endurskilgreiningar.112
Þrotabú karlmennskunnar
Í póstfemínískum frásögnum virðist karlmennskan stundum komin í þrot.
Kvenhetjuna dreymir ekki lengur um að vera tekin með valdi, vera bjargað
af karlhetjunni og draumurinn um hina eina sönnu ást er orðinn fjarlægur
108 Sex and the City, „Anchors Away“ (5:1).
109 joanna di mattia, „„What’s the Harm in Believing?“. mr Big, mr Perfect, and the
Romantic Quest for Sex And the City‘s mr Right“, Reading Sex and the City, bls.
17–32, hér bls. 17.
110 Sex and the City, „The Chicken Dance“ (2:7).
111 joanna di mattia, „What’s the Harm in Believing?“, bls. 17–18.
112 joanna di mattia, „What’s the Harm in Believing?“, bls. 18.