Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2022, Blaðsíða 71
AlDA BjöRK VAlDImARSDóTTIR
70
opinberlega og í netmiðlum var sagt að þær sem hafi verið óaðskiljanlegar
í kringum 2000 hafi nú loksins náð saman aftur í andláti Hefners.63 Á sama
tíma voru viðbrögð margra femínista, svo sem Susan Brownmiller og Gloriu
Steinem, á sjöunda og áttunda áratugnum rifjuð upp en einnig frásögn leik-
stjórans Peter Bogdanovich á ábyrgð Playboy-veldisins í morðinu á fyrrum
ástkonu hans Dorothy Stratten sem hafði gifst manninum sem myrti hana,
Paul Snider, til þess að fá frið fyrir ágangi Hefners. Á setrinu hafi henni verið
gefið dóp og hún þvinguð til kynlífs með mörgum körlum. Stratten hafi
skrifað ljóð um setrið þar sem hún lýsti því sem stað þar sem allt hafi verið
til staðar nema ást: „Þetta Disneyland […] þar sem fólkið er tækin.“64
Blaðamaðurinn Suzanne moore rifjaði það upp eftir andlát Hefners í
The Guardian að hún hafi löngu áður kallað hann „pimp“ eða melludólg og
hann hótaði að lögsækja hana. Hefner væri andstæða kvenfrelsis og Playboy-
setrið hafi verið „dýragarður/kvennabúr/vændishús.“ Endurnýjanlegu ljós-
kurnar hans þurfu að lúta útgöngubanni, fengu frá honum vasapening og var
bannað að fá heimsóknir eða eignast kærasta.65
Holly madison hefur opnað sig um tímann sem hún var í sambandi sínu
við Hefner en árið 2015 gaf hún út bókina Down the Rabbit Hole um reynsl-
una af því að búa á setrinu. Hún notar orðið Stokkhólmsheilkenni til að lýsa
upplifun sinni af kynferðissambandi sem hafi einkennst af kúgun, stýringu
og valdamismun, þar sem allar konurnar þurftu að vera með sama útlit og
eiturlyf voru notuð til að fá konur til að stunda kynlíf. Hefner á að hafa
svarað henni á þennan veg þegar hún vildi ekki taka lyfin sem henni voru
rétt: „yfirleitt er ég ekki hlynntur dópi, en þú veist að á áttunda áratugnum
voru þeir vanir að kalla þessar pillur „læraopnara““.66 Dagarnir hafi verið
þaulskipulagðir frá morgni til kvölds og þær neyddar til kynferðislegra at-
hafna. Stúlkurnar máttu ekki tjá sig þegar Hefner var í viðtölum eða tala um
63 Greg Evans, „Kim Kardashian and Paris Hilton Have Been Brought Together by
Hugh Hefner‘s Death“, Indy 100, 29. september 2017, sótt 1. mars 2022 af https://
www.indy100.com/news/kim-kardashian-paris-hilton-hugh-hefner-death-playboy-
reunion-friendship-twitter-text-messages-7973761.
64 Peter Bogdanocich, The Killing of the Unicorn. Dorothy Stratten 1960–1980, new
York: William morrow, 1984, epub, loc, 51: „This Disneyland […] where people are
the games“.
65 Suzanna moore, „I Called Hugh Hefner a Pimp, he Treatened to Sue. But That’s
What He Was“, The Guardian, 28. september 2017, sótt 1. mars 2022 af https://www.
theguardian.com/commentisfree/2017/sep/28/hugh-hefner-pimp-sue-playboy-
mansion.
66 Holly madison, Down the Rabbit Hole. Curious Adventures and Cautionary Tales of a
Former Playboy Bunny, HarperCollins, epub útgáfa, 2015, loc. 47.