Ritið : tímarit Hugvísindastofnunar - 01.05.2022, Blaðsíða 176
ÞRAuTSEIGAR OG ÞORA!
175
slæðum og gengu í alvöruþrunginni þögn hring, eftir hring, eftir hring á
torginu í marga klukkutíma, viku eftir viku, mánuð eftir mánuð, ár eftir ár.
Hinum fangelsuðu og horfnu fjölgaði og í sama hlutfalli stækkaði hópur
kvenna með hvítar skuplur á torginu. Þær voru að mestu látnar óáreittar og
ekki var á þær ráðist. Það að vera kona og móðir í kaþólsku landi veitti þeim
ákveðna friðhelgi. Í syrgjandi mæðrum fólst ekki ógn og jafnvel ekki þótt
þær væru margar samankomnar á sama stað. Þær voru enda óvopnaðar og
vörn þeirra og skjöldur var ljósmynd á pappaspjaldi. Þær tóku með sér vini
og ættingja, og smám saman vaknaði áhugi umheimsins á málstað þeirra.
Þegar heimsmeistaramótið í knattspyrnu var haldið í Argentínu árið 1978
flykktist þangað fjöldi frétta- og blaðamanna og athygli þeirra var vakin á
þessum vikulega gjörningi. Fiskisagan flaug og gagnrýni á stjórnarhætti her-
foringjastjórnarinnar endurómaði um allan heim. Það fór að molna undan
„la junta“ eins og herforingjastjórnin var alla jafna kölluð og var henni loks
bolað burt og boðað til kosninga árið 1983.50
Slæðukonurnar brutu blað í réttindabaráttu kvenna um alla Rómönsku-
Ameríku. Sannleiksnefnd var sett á laggirnar og fjölmargar mæður, eigin-
konur, systur og ömmur fengu skelfilegar fréttir. Aðrar vita enn þann dag
í dag ekkert um örlög ástvina sinna og nokkrar þeirra koma enn saman á
Maítorginu í Buenos Aires á fimmtudögum.51 Til baráttu þeirra er vitnað
aftur og aftur þegar konur annars staðar í álfunni taka sig saman og standa
upp úr stólunum og krefjast úrbóta á aðstæðum sínum. Námuverkakonur í
Bólivíu,52 farandverkakonur í Perú,53 indíánakonur í Mexíkó og Brasilíu,54
50 Gabriela Gomes, La política social de los regímenes dictatoriales en Argentina y Chile,
Buenos Aires: CLASCO, 2016.
51 Sjá heimasíðu hreyfingarinnar á https://madres.org/ og viðtöl og umfjöllun um
mikilvægi baráttunnar á https://www.cultura.gob.ar/aniversario-de-las-rondas-de-
las-madres-8977/. Sótt þann 28. ágúst 2022.
52 Frumbyggjar telja um 20% íbúa Bólivíu og 68% skilgreina sig blandaða mestísóa.
Námuverka- og frumbyggjakonur hafa oft gripið til fjöldaaðgerða í Bólivíu. Vinsæl
baráttuleið þeirra er að loka helstu vegum til höfuðborgarinnar La Paz með því að
bera grjót á vegi og hamla þannig umferð. Þær setjast svo á hrúgurnar og fara hvergi.
Til frekari upplýsinga sjá skýrslur Sameinuðu þjóðanna. Sótt þann 28. ágúst 2022 af
https://lac.unwomen.org/es/noticias-y-eventos/en-la-mira/derechos-y-activismo-
de-las-mujeres-indigenas.
53 Samkvæmt frétt frá viðskiptaráði Perú voru 71% vinnuafls í landinu á óformlegum
vinnumarkaði árið 2019. Stór hluti þess hóps eru konur. „El 71,1% de trabajadores
en el país son informales“, Perucámaras, 1. apríl, 2020. Sótt þann 28. ágúst 2022 af
https://www.perucamaras.org.pe/nt380.html.
54 Mikilvægur áhrifavaldur í þeirri baráttu er indíánakonan Rigoberta Menchú, frá
Gvatemala, sem vann til Friðarverðlauna Nóbels árið 1992. Menchú hafði tekið