Læknaneminn - 01.10.1995, Side 22

Læknaneminn - 01.10.1995, Side 22
MA951001 GOTT FÓLK - Áhrifavaldur í lífi margra Veldu íslenskt magalyf sem stenst fyllilega samanburö við frumlyfið(1> og er auk þess ódýrara<2) Veldu fyrst það besta Omezól omeprazol Framleiöandi: Lyfjaverslun íslands hf., Borgartúni 7, 105 Reykjavík SYRUHJUPHYLKI; A 02 B C 01 Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum INN 20 mg. Eiginleikar Lyfiö blokkar prótónupumpuna (K+,H+-ATPasa) í paríetalfrumum magans. Lyfiö dregur þannig úr framleiðslu maga- sýru, bæöi hvíldarframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frá- sogast frá þörmum á 3-6 klst. og er aðgengi nálægt 35% eftir ein- stakan skammt, en eykst í 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur né sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding í blóði er um 95%. Helmingunartími lyfsins í blóði er u.þ.b. 40 mínútur, en áhrif lyfsins standa mun lengur en því samsvarar og er talið, að verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfið umbrotnar algerlega. Umbrot eru aðallega í lifur og skiljast umbrotsefnin að mestu út með þvagi. Ábend- ingar: Sársjúkdómur í skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bak- flæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar greiningar séu staðfestar meö speglun. Langtímanotkun við bólgu í vélinda vegna bakflæðis eða við síendurteknum sárum í maga eða skeifugörn. Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en í 3 ár. Frábendingar Engar þekktar. Meöganga og brjóstagjöf: Ekki er ráðlagt að gefa lyfið á meðgöngutíma og viö brjóstagjöf nema brýn ástæða sé til. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru frá meltingarvegi svo sem niðurgangur, ógleði og hægðatregða; einnig höfuðverkur. Algengar (> 1%); Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleöi, uppköst, hægðatregða, kviöverkir og aukinn vindgangur. Sjaldgæfar (0,1-1%): Almennar: Svimi, syfja, þreyta. Taugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir. Húö: Útbrot, kláði. í stöku tilvikum hefur eftirfarandi verið lýst í tengslum við ómeprazól meðferð, en orsakasamband er ekki sannað: Liðverkir, vöðvaþreyta, vöövaverkir. Tímabundið rugl og æsingur, þunglyndi og ofskynjanir. Munnþurrkur, bólga í munni, sveppasýkingar í munni. Breytingar á lifrarenzýmum, encephalopathia hjá sjúklingum með lifrarbilun, lifrarbólga með eða án gulu. Stækkun á brjóstkirtlum. Fækkun á hvítum blóðkornum og blóðflögum. Bjúgur. Þokusýn. Breytingar á bragðskyni. Aukið Ijósnæmi, erythema multiforme, hárlos. Aukin svitamyndun. Hiti, berkjusamdráttur. Nýrnabólga. Milliverkanir Ómeprazól getur minnkað umbrotshraða díazepams, warfarlns og fenýtóíns í lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarín eóa fenýtóín og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta. Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um eiturverkanir í mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar um meðferð eru því ekki þekktar. Skammtastæröir handa fullorönum Sýruhjúphylkin á að gleypa heil meö a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma má innihald hylkjanna í t.d. skeið og taka lyfið þannig inn en innihaldið má ekki tyggja. Gæta skal þess aö geyma hylkin í vandlega lokuöu glasi. Skeifugarnarsár. Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 2 vikur í viðbót. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svaraö annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Magasár. Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meöferö áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bakflæöis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúkl- ingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum í tvær lyfjagjafir. Langtíma meöferö vegna bakflæöis I vélinda eöa vegna síendurtekins sársjúkdóms ímaga eöa skeifugörn: Venjulegur skammtur er 20 mg einu sinni á dag, sem má hækka í 40 mg á dag, ef þörf krefur. Skammtastæröir handa börnum Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Pakkningar: 14 stk. kr. 3.953.-, 28 stk. kr. 7.546.-. (2) Tilvísanir: (1) Dugger III, H.A. et al.: Bioequivalence evaluation of 20 mg omeprazole capsules. Pharmaconsult, Flemington, N.J., USA. (2) Lyfjaverðskrá II, Heilbrigðis- og tryggingamálaráöuneytið, 1. apríl 1995.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160

x

Læknaneminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.