Læknaneminn - 01.10.1995, Page 22
MA951001 GOTT FÓLK -
Áhrifavaldur
í lífi margra
Veldu íslenskt
magalyf sem
stenst fyllilega
samanburö við
frumlyfið(1> og
er auk þess
ódýrara<2)
Veldu fyrst það besta
Omezól
omeprazol
Framleiöandi: Lyfjaverslun íslands hf., Borgartúni 7, 105
Reykjavík SYRUHJUPHYLKI; A 02 B C 01
Hvert sýruhjúphylki inniheldur: Omeprazolum INN 20 mg.
Eiginleikar Lyfiö blokkar prótónupumpuna (K+,H+-ATPasa) í
paríetalfrumum magans. Lyfiö dregur þannig úr framleiðslu maga-
sýru, bæöi hvíldarframleiðslu og við hvers kyns örvun. Lyfið frá-
sogast frá þörmum á 3-6 klst. og er aðgengi nálægt 35% eftir ein-
stakan skammt, en eykst í 60% við stöðuga notkun. Hvorki matur né
sýrubindandi lyf hafa áhrif á aðgengi lyfsins. Próteinbinding í blóði
er um 95%. Helmingunartími lyfsins í blóði er u.þ.b. 40 mínútur, en
áhrif lyfsins standa mun lengur en því samsvarar og er talið, að
verkunin hverfi á 3-4 dögum. Lyfið umbrotnar algerlega. Umbrot eru
aðallega í lifur og skiljast umbrotsefnin að mestu út með þvagi. Ábend-
ingar: Sársjúkdómur í skeifugörn og maga. Bólga í vélinda vegna bak-
flæðis. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome). Æskilegt er, að þessar
greiningar séu staðfestar meö speglun. Langtímanotkun við bólgu í
vélinda vegna bakflæðis eða við síendurteknum sárum í maga eða
skeifugörn. Ekki er mælt með notkun lyfsins lengur en í 3 ár.
Frábendingar Engar þekktar. Meöganga og brjóstagjöf: Ekki er
ráðlagt að gefa lyfið á meðgöngutíma og viö brjóstagjöf nema brýn
ástæða sé til. Aukaverkanir: Algengustu aukaverkanir eru frá meltingarvegi svo sem niðurgangur, ógleði og hægðatregða; einnig höfuðverkur.
Algengar (> 1%); Almennar: Höfuðverkur. Meltingarfæri: Niðurgangur, ógleöi, uppköst, hægðatregða, kviöverkir og aukinn vindgangur. Sjaldgæfar
(0,1-1%): Almennar: Svimi, syfja, þreyta. Taugakerfi: Svefntruflanir, skyntruflanir. Húö: Útbrot, kláði. í stöku tilvikum hefur eftirfarandi verið lýst í tengslum við ómeprazól meðferð, en
orsakasamband er ekki sannað: Liðverkir, vöðvaþreyta, vöövaverkir. Tímabundið rugl og æsingur, þunglyndi og ofskynjanir. Munnþurrkur, bólga í munni, sveppasýkingar í munni.
Breytingar á lifrarenzýmum, encephalopathia hjá sjúklingum með lifrarbilun, lifrarbólga með eða án gulu. Stækkun á brjóstkirtlum. Fækkun á hvítum blóðkornum og blóðflögum.
Bjúgur. Þokusýn. Breytingar á bragðskyni. Aukið Ijósnæmi, erythema multiforme, hárlos. Aukin svitamyndun. Hiti, berkjusamdráttur. Nýrnabólga. Milliverkanir Ómeprazól getur
minnkað umbrotshraða díazepams, warfarlns og fenýtóíns í lifur. Fylgjast skal með sjúklingum, sem fá warfarín eóa fenýtóín og getur verið nauðsynlegt að minnka skammta.
Eiturverkanir: Engar upplýsingar liggja fyrir um eiturverkanir í mönnum. Nákvæmar leiðbeiningar um meðferð eru því ekki þekktar. Skammtastæröir handa fullorönum
Sýruhjúphylkin á að gleypa heil meö a.m.k. 1/2 glasi af vatni. Tæma má innihald hylkjanna í t.d. skeið og taka lyfið þannig inn en innihaldið má ekki tyggja. Gæta skal þess aö
geyma hylkin í vandlega lokuöu glasi. Skeifugarnarsár. Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 2 vikur. Hafi sárið ekki gróið, má halda meðferð áfram í 2 vikur í viðbót. Hjá sjúklingum,
sem hafa ekki svaraö annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast innan 4 vikna. Magasár. Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi
sárið ekki gróið, má halda meöferö áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúklingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og sárið gróið, oftast
innan 8 vikna. Bólga í vélinda vegna bakflæöis: Venjulegur skammtur er 20 mg á dag í 4 vikur. Hafi bólgan ekki læknast, má halda meðferð áfram í 4 vikur til viðbótar. Hjá sjúkl-
ingum, sem hafa ekki svarað annarri meðferð, hafa 40 mg einu sinni á dag verið gefin og bólgan læknast, venjulega innan 8 vikna. Zollinger-Ellison heilkenni (syndrome): Venjulegur
skammtur er 60 mg einu sinni á dag. Finna þarf hæfilega skammta hverju sinni, en þeir geta verið á bilinu 20-120 mg á dag. Fari dagsskammtur yfir 80 mg þarf að skipta honum í
tvær lyfjagjafir. Langtíma meöferö vegna bakflæöis I vélinda eöa vegna síendurtekins sársjúkdóms ímaga eöa skeifugörn: Venjulegur skammtur er 20 mg einu sinni á dag, sem má
hækka í 40 mg á dag, ef þörf krefur. Skammtastæröir handa börnum Engin reynsla er af notkun lyfsins hjá börnum. Pakkningar: 14 stk. kr. 3.953.-, 28 stk.
kr. 7.546.-. (2) Tilvísanir: (1) Dugger III, H.A. et al.: Bioequivalence evaluation of 20 mg omeprazole capsules. Pharmaconsult, Flemington, N.J., USA. (2) Lyfjaverðskrá II,
Heilbrigðis- og tryggingamálaráöuneytið, 1. apríl 1995.