Læknaneminn - 01.10.1995, Side 65
TÖLVUNET
en ekki með myndrænum notendaskilum. I þessu
tilviki þarf notandinn að kunna fáein undir-
stöðuatriði UNIX-stýrikerfisins (innan við 10
skipanir), sem er lítið mál en hefur örugglega
felt notendur frá.
Hinar miklu og ört vaxandi vinsældir Heims-
netsins á síðustu 1-2 árum, má skýra með
tilkomu forritanna Mosaic og Netscape sem gefa
myndrænt og þægilegt notendaviðmót á Veraldar-
vefnum en hann nær til verulegs hluta af því sem
er að finna á Heimsnetinu (þessi hugtök verða
skýrð hér að neðan).
HEIMSNETIÐ.
Saga Heimsnetsins verður ekki rakin hér en
þess í stað reynt að útskýra hvað það er og á
hvern hátt hægt er að nota það. í sem stystu máli
má segja að Heimsnetið sé mikill fjöldi stórtölva,
um alian heim, sem tengdar eru saman með
símalínum, ljósleiðurum eða gervihnattasam-
bandi. Á Reiknistofnun er slík tölva með
nafninu Hengill. Þessar stórtölvur nota UNIX-
stýrikerfið og geyma mismikið af gögnum sem
varðveitt eru á mismunandi formi. Mikill fjöldi
smátölva er síðan tengdur hverri móðurtölvu og
eru þannig tengdar Heimsnetinu (alls um 30
milljónir). Með hjálp margs konar forrita, sem
flest eru geymd á móðurtölvunum, getur
smátölvunotandinn nálgast þessi gögn sem
geymd eru á stórtölvum um allan heinr. Þegar við
erum tengd við Hengil og gefmn skipanir eins og
gopher eða ftp erum við að keyra forrit senr
gera viss gögn aðgengileg. Biðmerki (prompt)
Hengils er % og þegar það birtist á skjánum
getum við slegið inn skipanir.
NOKKRAR SKILGREININGAR.
Archie - Forrit sem framkvæmir
orðaleit i efnisyfirliti og skráarnöfnum
staða með ftp-þjónustu.
Cyberspace - Orðið kemur úr vísinda-
skáldsögu og á að lýsa öllum tölvugögnum
veraldar.
Eudora - Vinsælt og mjög þægilegt
tölvupóstforrit.
Fetch - Forrit fyrir Mac sem notað er
til að finna og sækja ftp-gögn.
Ftp (file transfer protocol) -Ein af
elstu þjónustunum á Heimsnetinu sem
notuð er til að dreifa skrám (gögnum eða
forritum). Ef sækja á skrá á aðra tölvu er
þetta algengasta aðferðin. Við % á Hengli
er einfaldlega gefin skipunin ftp.
Gopher - Gömul þjónusta á Heims-
netinu til að leita uppi og skoða skrár. Við
% á Hengli er gefin skipunin gopher.
Þessi aðferð er nú hægt að víkja úr sessi
fyrir Veraldarvefnum (World Wide Web).
Home page - Heimasíða, síða á
Veraldarvefnum (getur reyndar verið
margar blaðsíður) sem veitir grunn-
upplýsingar um einhverja stofnun, fyrir-
tæki, þjónustu eða einstakling.
HTML (HyperText Marcup Language) -
Eins konar, mjög einfalt, forritunarmál
sem notað er við umbrot gagna á
Veraldarvefnum.
http (HyperText Transport Protocol) -
Forskeyti fyrir vistfang á Veraldar-vefnum;
sjá URL.
Hypertext - Aðferð sem notuð er m.a.
við skipulag og samtengingu gagna á
Veraldarvefnum. Aðferðin byggist á því
að í skjali eru orð sem eru merkt (í Mosaic
og Netscape eru þau lituð og undirstrikuð)
og sé klikkað með músarbendli á slíkt orð
er maður fluttur yfir í annað skjal sem
þetta orð vísar til.
Internet - Heimsnetið, Internetið eða
bara Netið samanstendur af samtengingu
flestra tölvuneta í heimi. Enginn einn aðili
hefur yfirráð yfir þessu tölvuneti sem
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.
55