Læknaneminn - 01.10.1995, Blaðsíða 67
TÖLVUNET
fremst rekja tii þessa nýja og aðgengilega
andlits. Vefurinn sjálfur vex neð ógnar-
hraða, fyrir 2 árum voru alls um 100
vefstaðir (web sites) en menn hafa áætlað
að fyrir lok þessa árs verði þeir komnir
yfir 40000.
HELSTU
NOTKUNARMÖGULEIKAR.
Tölvupóstur (e-mail) -
Þetta er mjög þægileg aðferð, sem á hratt
vaxandi vinsældum að fagna. Tölvu-
póstföng hjá Reiknistofnun hafa formið
nafn@rhi.hi.is og hægt er, hvaðan sem er í
heiminum, að senda bréf á slíkt póstfang.
Til að geta notað tölvupóst þarf maður að
hafa slíkt tölvupóstfang, tölvu með
tölvupóstforriti og tengingu við Reikni-
stofnun, lághraðamótald dugir ágætlega.
Reiknistofnun útvegar ágæt tölvupóstforrit
eins og t.d. Eudora.
Fréttahópar (newsgroups á USENET) -
Flestir hópar sem snerta læknisfræði eru
undir formerkinu SCÍ.mad. Þessa hópa er
auðvelt að nálgast með forritunum News-
Reader eða Netscape (með textaaðgangi
má nota skipunina nn).
Umræðuhópar (listservs, discussion
groups) -
I læknisfræði eru í gangi yfir 300 slíkir
hópar um hin margvíslegustu efni.
Gögn, aðgengileg með hjálp ftp eða
gopher-
A tlestum þeim stórtölvum sem tengdar
eru Heimsnetinu eru gögn sem eru
aðgengileg með hjálp ftp eða gopher.
Munurinn á þessum tveimur aðferðum er
sá að með ftp er hægt að sækja gögn (skrár
eða forrit) á aðrar tölvur en ekki er hægt
að skoða gögnin; með gopher er hins
vegar hægt að rekja sig frá einni tölvu til
annarrar og skoða gögnin. Gögn sem eru
aðgengileg með hjálp gopher eða ftp er
einnig hægt að nálgast með Netscape.
Telnet staðir -
Tölvur sem hægt er að tengja sig við og
vinna eins og um útstöð sé að ræða.
Dæmi: telnet dialog.COm til að tengjast
gagnabankanum Dialog.
Veraldarvefurinn (World Wide Web) -
Þetta er sá hluti gagna á Heimsnetinu sem
vex hraðast. Það sem gerir Vefinn svona
vinsælan eru hin aðgengilegu gögn sem
þar er að finna á formi hypertextskjala.
Þar að auki er hægt með forritinu Net-
scape að nálgast gögn og þjónustu með
aðgerðunum gopher, telnet, ftp og ýms-
um fréttaþjónum.
Gagnabankar, t.d. Dialog -
útgáfufyrirtækið Knight-Ridder er nú
eigandi að tveimur stórum gagnabönkum,
Dialog og Data-Star. Þessir gagnabankar
hafa verið tengdir saman og eru þar með
orðnir að lang stærsta gagnabanka í heimi.
Gagnabanki samanstendur af mörgum
gagnasöfnum en eitt slíkt safn er MED-
LINE. Við getum notað Heimsnetið til að
tengjast gagnabanka eins og Dialog, nieð
skipuninni telnet dialog.com, en við
komumst ekki lengra nema við höfum gert
samning við Dialog og fengið aðgangsorð.
Aðgangur að gagnasafni eins og MED-
LINE er hvergi ókeypis. Aðgangsorð í
gagnabanka er yfirleitt ókeypis en notkun
hvers og eins er síðan mæld í tengitíma og
magni gagna sem við sækjum, og við
fáum sendan reikning mánaðarlega.
Gagnasöfn (MEDLINE,
EMBASE, SciSearch, o.fl.) -
Þegar við höfum tengt okkur við gagna-
bankann, gefið aðgangsorðin og verið
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.
57