Læknaneminn - 01.10.1995, Page 70

Læknaneminn - 01.10.1995, Page 70
TOLVUNET US National Library of Medicine (NLN): http://www.nlm.mli.gov/ US National Institute of Health (NIH): http://www.nih.gov/ HVERNIG VERÐUR FRAMTÍÐIN? „Það er erfitt að spá, einkum um framtíðina“ sagði einhver. Þetta á svo sannarlega við um Heimsnetið og Veraldarvefinn, sem fáir höfðu heyrt talað um fyrir 2-3 árum, en eru nú á allra vörum og verða trúlega komin inn á annað hvert heimili í landinu fyrr en varir. Hjá undirrituðum hófst „upplýsingabyltingin“ fyrir 10 árum þegar ég fékk mitt fyrsta mótald og gat farið að leita sjálfur í MEDLINE; síðan þá hefur mér ekki fundist ég vera einangraður frá umheiminum. Það sem nú er rétt að byrja er annars eðlis og miklu stærra í sniðum og kemur þar að auki tii með að ná inn á flestar skrifstofur, stofnanir og heimili innan fárra ára. A Vefnum er ekki ennþá að finna mikið magn af bitastæðum upplýsingum í læknisfræði en þetta breytist daglega og komin er í gang þróun sem heldur áfram með sivaxandi hraða. Veraldarvefurinn er að sjálfsögðu ekkert lokastig heldur, hann heldur áfram að þróast og þar að auki hljóta að koma fram nýjar aðferðir til að dreifa gögnum á Heimsnetinu. Enn ein nýjung, sem er á næstu grösum, er ótalin en það er Samnet Pósts & síma (ISDN). Um er að ræða nýja tækni, sem ætlunin er að taka í notkun hér á landi í lok þessa árs, og byggist á því að sendingar um símakerfið verða á stafrænu formi. í þessu nýja kerfi verða mótöld óþörf (annað tæki kemur í staðinn), flutningshraðinn verður 4-8 sinnum meiri en nú og hægt verður að tala í símann þó að tölvan sé tengd Netinu. HEIMILDIR. Hér þarf aðgát, sem stafar af því hversu hröð þróunin er. Bækur og rit sem eru meira en 1 -2 ára gömul eru flest gagnslíti 1 eða gagnslaus. í Bóksölu stúdenta er alltaf að finna fjölda bóka um þetta vinsæla efni. Hér á eftir eru talin upp nokkur rit sem undirritaður notar um þessar mundir, ásamt athugasemdum. Netscape. Quick tour: Stuart Harris og Gayle Kidder. Ventana Press, 1995. (Ágæt bók til að komast í gang með Netscape Navigator; 160 bls.). 1’he Internet: Resources in the field of medicine and health. Laurel A. Clyde. Lindin hf, mars 1995. (50 bls. ódýrt og mjög gagnlegt hefti). New Rider’s Official World Wide Web Yellow Pages. New Riders Publishing 1995. (Þetta er 670 bls. „símaskrá“, gefin út árlega og er nánast ómissandi fyrir þá sem vilja leita vítt og breitt á Netinu að ýmsum gögnum). The Internet Navigator: Paul Gilster. John Viley & Sons, 1994. (590 bls. bók fyrir þá sem vilja komast dýpra). Finding it on the Internet. The essential guide: Paul Gilster. John Viley & Sons, 1994. (300 bls. ágæt bók, nafnið lýsir innihaldinu vel). An introduction to the Internet. Course Manual. Laurel A. Clyde. Lindin hf, des. 1994. (100 bls. ódýrt og mjög gagnlegt hefti). Notkun Unix véla hjá Reiknistofnun. Magnús Logi Magnússon. Reiknistofnun Háskólans, ágúst 1994. (60 bls. hefti sem, þrátt fyrir nafnið, er að mestu leyti um Heimsnetið og einnig eru kenndar nokkrar algengar Unix- skipanir fyrir þá sem eru með lághraða tengingu við Hengil). Ymis tímarit, en þar má t.d. nefna: Internet and Comms Today, .net, Netguide og lnternet World. (Svona tímarit er gaman að skoða stöku sinnum til að lesa um það nýjasta sem er að gerast og fá vistföng nýrra og spennandi staða á netinu - ef maður hefur tíma). 60 LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.