Læknaneminn - 01.10.1995, Page 74
SUDAN
skýrsla um hvað hefur átt sér stað á meðan á
dvölinni stóð og einnig gerð áætlun fyrir næsta
hóp.
Hver þáttakandi þarf að greiða flugfarið út,
tryggingar og bólusetningar. Þetta getur því orðið
dágóð upphæð. Það er þó ætlunin að reyna að
semja við eitthvað flugfélag um afslætti. Ég fékk
afslátt hjá Flugleiðum til Amsterdam en þaðan
flaug ég til Kairó og síðan til Súdan. Ég sótti um
styrk hjá Sighvati Björgvinssyni þáverandi
heilbrigðismálaráðherra og borgaði ráðuneytið
flugið fyrir mig. Einnig leitaði ég til íslensku
lyfjafyrirtækjanna, en vegna samdráttar höfðu
þau ekki efni á að styrkja mig.
Ég var þarna í rúma 5 mánuði, fyrst voru tveir
Svíar með mér en á seinna tímabilinu var ég eini
útlendingurinn. Ég hafði með mér fullt af
notuðum skurðáhöldum sem Landspítalinn gaf,
fyrir milligöngu Jónasar Magnússonar, til
spítalanna í Khartoum. Þau komu að góðum
notum. Þetta var mikil og góð reynsla og mun
reynast mér vel í framtíðinni. Vinnan var bæði
skemmtileg og erfið. Eins og gefur að skilja lenti
maður í ýmsu. A þessum 5 mánuðum sá ég
ýmsar breytingar verða fyrir okkar tilstuðlan.
Þetta gaf okkur von um að við værum að gera
gagn.
Súdan er stærsta land Afríku, 2.506.000
ferkílometrar að flatarmáli. Landið teygir sig frá
Egyptalandi og Líbýu í norðri og suður til Zaire,
Úganda og Kenýa. Eþíópía og Eriþrea liggja
austan við landið en hluti af Norður-Súdan nær
að Rauðahafi. Vestan við Súdan er síðan Chad og
Miðafríku lýðveldið. í landinu er að finna
eyðimerkur nyrst og regnskóga syðst. íbúar eru
25 milljónir, þar af eru 3-4 milljónir flóttamenn.
Súdanska þjóðin er samsett af 500 mismunandi
þjóðflokkum. Hver þjóðflokkur hefur sína siði,
lifnaðarhætti og trúarbrögð. Fóikið er misdökkt
og flokkar sig sjálft í gula, græna og bláa, þar
sem blár er dekkstur. 75% þjóðarinnar eru
múhameðstrúar, en hinir eru kristnir eða trúa á
stokka og steina. Islam er ríkjandi í norðurhluta
landsins og litast lifnaðarhættir af því. Fólkið þar
talar arabísku en fyrir sunnan tala menn ýmiss
konar mál frá Afríku. Núverandi ríkisstjórn er
mynduð af stjórnmálaflokki sem nefnist Múslim-
bræður. Mikil spilling viðgengst og mannrétt-
indabrot eru mjög algeng. Þeir sem að voga sér
að andmæla stjórninni hverfa sporlaust. Mest
allir peningarnir fara í borgarastyrjöld sem ríkir í
suður hluta Súdan. Hinn almenni borgari skiptir
engu máli og enginn getur lifað af kaupi sínu,
hvað þá framfleytt stórri fjölskyldu.
Margar hjálparstofnanir vinna í landinu, en
vegna lélegs stjórnarfars er þeim oft gert lífið
leitt. Sem dæmi má nefna fá þeir bóluefni frá
UNICEF handa öllum, en enginn sér um að
dreifa því til fólksins. Það þarf því að sækjast
eftir því sjálft. Það er bæði erfitt vegna lélegra
samganga, en einnig vegna þess að sumir hafa
enga trú á bóluefnum og eru jafnvel hræddir við
það. Heilbrigðiskerfið er í molum. Þeir sem eiga
peninga geta fengið ágætisþjónustu, en hinir
verða að bjarga sér sjálfir. Læknarnir eru þó
flestir vel menntaðir og læknanámið er nokkuð
gott þarna.
Aður en við byrjuðum eyddi ég nokkrum tíma
á spítalanum í Khartoum. Þar uppgötvaði ég
mikilvægi heilsugæslu og heilsuverndar. Það var
grátlegt að horfa upp á það sem átti sér stað
þarna. Burtséð frá ömurlegum aðstæðum á
sjúkrahúsum og skorti á hjálpargögnum, þá var
ástandið hrikalegt. Vanþekking almennings á
mörgum grundvallaratriðum heilbrigðis var mjög
áberandi. Alls konar misskilningur var í gangi
sem er í mótsögn við heilbrigða skynsemi. Ungu
stúlkurnar voru t.d. hræddar við að vera bólu-
settar gegn stífkrampa af ótta við að verða
ófrjóar. Það eitt að börn þurfi að borða o.fl.
virtust sumir hafa óljósa hugmynd um. Ein
móðirin kom með 18 mánaða gamlan son sinn,
sem leit út fyrir að vera 5 mánaða. Hann hafði
verið á brjósti eingöngu til 17 mánaða aldurs, en
núna samanstóð fæða hans af 1/2 eggi og
hrísgrjónavatni á morgnana og 1/2 kexköku á
kvöldin ásamt 1/2 glasi af mjólk. Móðir hans leit
alls ekki illa út og það var ekki hægt að sjá að
64
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.