Læknaneminn


Læknaneminn - 01.10.1995, Qupperneq 77

Læknaneminn - 01.10.1995, Qupperneq 77
SÚDAN assistant“. Þeir hafa 3 ára nám að baki þar sem þeir læra að greina og með- höndla algengustu sjúk- dómana. Við höfðum hins vegar lækni, sem mun starfa þarna í 3 ár. Hlut- verk hans er að leiðbeina °g byggja UPP sem öflug- asta þjónustu. Starfs-fólkið kemur úr þorpinu og hefur ágætis menntun. Ljós- móðirin er mjög fær og ætlar að taka að sér mæðraverndina, en hún þarf þjálfun í því. Við erum búin að fá loforð um að þarna muni rísa bólu- setningarmiöstöð, sem mun þjóna næsta nágrenni. Einnig er næringaráðgjafi á staðnum. A rannsóknarstofunni er meinatæknir með háskólamenntun og getur hann framkvæmt nauðsynlegustu rannsóknirnar á blóði, saur og þvagi. Tveir hjúkrunarfræðingar munu starfa þarna, en sem stendur vinnur einn maður starf þeirra. Þarna er einnig apótek með flestum nauðsynlegum lyfjum. Til að efla þekkingu í þorpinu héldum við fyrirlestra í barna- og gagnfræðiskólanum um hreinlæti og algengustu sjúkdóma á svæðinu. Við reyndum að virkja þau og fá þau til þess að sinna vissum störfum heima fyrir. Einnig vorum við með verklega kennslu og fórum þá inn í þorpið og bentum þeim á hvað betur mætti fara og svo framveigis. Við fluttum fyrirlestrana á ensku, en læknanemar frá Súdan þýddu þá á arabísku. Þannig voru flest okkar samskipti við þorpsbúa. Við unnum mikið með konunum í þorpinu. Við hittum þær reglulega í umræðuhópum. Þar kynntum við okkur lifnaðarhætti þeirra, hjátrú og siði. Við notuðum tækifærið bæði til þess að fræða þær og að leiðbeina þeim. Til þess að fylgja máli okkar eftir heimsóttum við þær til að sjá hvort einhverjar breytingar hefðu átt sér stað. Það var margt sem betur hefði mátt fara bæði hvað hreinlæti og vinnuaðstöðu varðar. Dýrin eru út um allt og þar á meðal í eldhúsinu. Fólkið bograr rnikið yfir vinnu sinni svo manni verður íllt í bakinu af að horfa á það. Börnin skríða um leirgólfin ásamt dýrunum innan um margskonar óþvera eins og hráka, en flestir eru síhrækjandi út um allt. Einnig er þarna mjög góður starfskraftur, sem nýttist illa. Konurnar virðast t.d. hafa glatað kunnátu sinni í handavinnu og þurfa því að kaupa öll föt. Fólkið hefur meira en nóg af tíma og getur því auðveldlega bætt á sig vinnu. Eitt af markmiðum okkar er að bæta afkomu fólksins með því að auka getu þess til að bjarga sér sjálft. Alþjóða heilbrigðismála- stofnunin býður upp á aðstoð til að hjálpa fólki að hetja atvinnurekstur. Það lánar þeim peninga, sem það greiðir tilbaka á löngum tíma með litlum vöxtum. Það eina sem fólkið þarf að gera er að koma með áætlun um starfsemi og rekstur. Fyrirhugað er saumanámskeið fyrir konurnar. Innifalið í því er almenn fræðsla og reynt verður að kenna þeim ólæsu að lesa og skrifa. Markmiðið er að hver fjölskylda eigi eða hafi aðgang að saumavél til að geta saumað föt á sig LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg. 67
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140
Qupperneq 141
Qupperneq 142
Qupperneq 143
Qupperneq 144
Qupperneq 145
Qupperneq 146
Qupperneq 147
Qupperneq 148
Qupperneq 149
Qupperneq 150
Qupperneq 151
Qupperneq 152
Qupperneq 153
Qupperneq 154
Qupperneq 155
Qupperneq 156
Qupperneq 157
Qupperneq 158
Qupperneq 159
Qupperneq 160

x

Læknaneminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.