Læknaneminn - 01.10.1995, Page 86
STÚDENTASKIPTI
sínum að annarri starfsenri en vísindaráðstefnum.
A þinginu var stigið stórt skref í átt að því að
styrkja svæðisbundin samtök læknanema. Staða
samtaka læknanema í Afríku, Suður Ameríku og
Evrópu var skilgreind innan IFMSA en verka-
skiptingin milli IFMSA og þeirra samtaka hefur
verið nokkuð óljós í gegnunr tíðina.
Starfið á þinginu er skipt í tvennt, annars
vegar funda allir fulltrúar saman og hins vegar er
hópnum skipt niður í nefndir með ákveðin
verksvið. A stóru fundunum sem allir fulltrúarnir
sátu var mest verið að ræða stjórnskipuleg atriði
en mikilvægasta starfið er unnið í nefndar-
vinnunni. Þegar unnið var í nefndum háði það
okkur talsvert hvað við vorunr fá og nefndirnar
margar. Við þurftum því að deila okkur niður á
nefndarfundina þannig að tíminn nýttist sem
best.Nefndirnar er sanntals sex, SCOPE, SCOEE,
SCOPH, SCORP, SCOAS og SCOME.
SCOPE - STANDING
COMMITTEE ON
PROFESSIONAL EXCHANGE.
SCOPE er senniiega sú nefnd innan IFMSA
sem er íslenskum læknanemum hvað kunnust.
Verksvið þessarar nefndar er að skipuleggja hin
almennu stúdentaskipti milli landa og á síðasta
ári voru þar um 6.000 læknanemarnir sem fóru í
stúdentaskipti á vegum nefndarinnar. Nefndin er
sú stærsta innan IFMSA þar sem nánast öll
aðildarríkin taka einhvern þátt i skiptastarfinu.
I Barcelona var rætt um mikilvægi þess að
farið væri eftir reglum félagsins og að tímamörk
umsókna og staðfestinga þeirra væru virt.
Fulltrúar sjö nýrra landa kynntu félög sín og þá
möguleika á stúdentaskiptum eða einhliða
verkefnum sem þau hafa upp á að bjóða.
Armenía kemur inn með stúdentaskipti og
ber þar hæst endurhæfingarlækningar. Eftir
jarðskjálftann mikla sem var í Armeníu fyrir
nokkrum árum voru byggðar miklar endur-
hæfingarmiðstöðvar til að taka á vandanum og
telja Armenar sig nú geta boðið mjög fram-
bærileg verkefni á sviði endurhæfinga.
Nepal hefur nú þegar átt skipti við Svíþjóð og
Holland og býður erlenda nema velkomna.
Möguleikar eru á að fá að vinna við heilsugæslu
úti í sveitum landsins.
Suður-Afn'ka býður heilsugæslu og fræðslu-
verkefni frá og með næsta ári.
Taiwan leggur áherslu á verkefni á sviði
ófrjósemi og glasafrjóvgunar.
Tanzanía býður einhliða stúdentaskipti í
verkefnum í heilsugæslu. Tanzanía hefur áður
verið með stúdentaskipti við Holland.
Rúmenía býður hefðbundin skipti.
Tatarstan, senr er í Rússlandi, býður hefð-
bundin skipti.
SCOPE berst nú fyrir þvi að klínísk stúdenta-
skipti á vegum félagsins verði viðurkennd sem
hluti náms í sem flestum læknaskólum aðildar-
landanna. Víða er það skylda að taka hluta
klíníska námsins utan skólatímans, við aðrar
sjúkrastofnanir og jafnvel í öðrum löndum og
hafa nrargir nýtt sér samtökin í þessum tilgangi.
Þetta gerir þær kröfur að aðildarfélögin haldi
uppi vissum lágmarkskröfum hvað snertir
framboð á skiptiplássum svo og þær kröfur til
nemanna að þeir taki skiptin alvarlega og noti
þau til að læra. I Læknadeild H.I. er nánast
ekkert valtímabil og íslenskir læknanemar eru
ekki hvattir sérstaklega til þess að taka hluta
námsins við aðra skóla. Þessu mætti ef til vill
breyta þannig að íslenskum læknanemum verði
gert auðveldara að stunda hluta síns náms við
aðra læknaskóla og þá er IFMSA kjörinn
vettvangur til að skipuleggja slíkt.
Kosið var um besta sumarstarfið og var
Egyptaland þar í fyrsta sæti, ísland var í öðru
sæti og Svíþjóð í því þriðja. Þetta er mikilvæg
viðurkenning á okkar sumarstarfi þar senr þetta
ætti að verða til þess að auka eftirspurnina eftir
því að komast til Islands. Það gerir það auð-
veldara fyrir okkur að koma á skiptum við þau
lönd sem íslenskir læknanemar hafa áhuga á að
fara til.
76
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.