Læknaneminn - 01.10.1995, Page 88
STUDENTASKIPTI
munaðarleysingjahæli en þeim hefur gengið hægt
að skipuleggja það. Þó virðist sem einhver
skriður sé að komast á málið. Ef það kemst í
gang fljótlega þá hefðum við áhuga á að reyna
senda hóp af Islendingum þangað og þá gjarnan
fleiri en bara læknanema. Finnland ætlar að
reyna aftur að koma á laggirnar barnaveiki-
bólusetningarverkefni í Rússlandi, en tilraun til
þess rann út í sandinn í fyrra sökum lítilla
viðbragða af hálfu rússneskra læknanema-
samtaka.
SCORP - STANDING
COMMITTEE ON REFUGEES
AND PEACE.
Eins og nafnið gefur til kynna þá er SCORP
ætlað að vinna að friðarmálum og málefnum
flóttanranna. Nefndin vinnur í sanrvinnu með
alþjóðasamtökum lækna gegn kjarnorkuvá, að
því markmiði að stöðva kjarnorkutilraunir í
hernaðarskyni og útrýma öllum kjarnavopnum
veraldar.
Nefndin hefur einnig unnið að alþjóðlegri
herferð í samvinnu við SÞ og fleiri fyrir því að
banna jarðsprengjur. Otrúlegt magn jarðsprengja
er grafið í jörð á fyrrverandi átakasvæðum víða
um heim. Þær eru mjög ódýrar, kosta ekki nema
20-30 USD og því hefur verið komið fyrir miklu
magni af þeim í fátækari löndum heimsins.
Oftast eru styrjaldarátökin ekki langvarandi en
jarðsprengjurnar eru yfirleitt virkar í marga
áratugi. Því valda þær í flestum tilvikum áverk-
um á almennum borgurum, áverkum sem yfir-
leitt eru mjög alvarlegir. Ef tækist að ná fram
alþjóðlegu banni á notkun þessara vopna væri
því stigið stórt skref í átt að friðsælli heirni.
Þessi vinna hefur gengið nokkuð vel og margt
bendir til þess að innan fárra ára muni fást fram
slíkt bann.
í Barcelona var mikil umræða í SCORP um
mikilvægi þess að stuðla að vinalegri sam-
skiptum á milli óvinaþjóða. Talið var að IFMSA
gæti lagt sitt af mörkum með því að hvetja tii
þess að þeir sem hafi stúdentaskiptin á sinni
könnu reyni að staðsetja saman fólk frá ólíkurn
löndum. Þannig mætti koma fyrir ísraelsmanni
og Egypta í sömu borg og jafnvei saman í
herbergi.
Á vegum SCORP eru reknar flóttamanna-
búðir í Slóveníu, Súdan og Úganda. Samskipta-
örðugleikar hafa háð nefndinni, meðal annars
vegna þess að fráfarandi stjórnandi hennar er frá
Súdan og Ijarskipti eru ekki góð við það land.
Það skortir því nokkuð á að okkur hafi borist
fullnægjandi upplýsingar um rekstur búðanna á
vegum SCORP en vonandi ætti að vera hægt að
senda íslenska læknanema til starfa i þeim seinna
meir.
SCOAS-
STANDING COMMITTEE ON
AIDS AND SEXUALLY
TRANSMITTED DISEASES.
Island sat einn fund í SCOAS til þess að
kynna sér starf nefndarinnar og koma á tengslum
við stjórnendur hennar. Starfssvið hennar er eins
og nafnið gefur til kynna fyrst og fremst að vinna
að því að hindra útbreiðslu alnæmis. Þetta er
starf sem læknanemar í flestum löndum koma á
einhvern hátt nálægt. Því er það mjög gagnlegt
að þeir sem vinni að slíkum málum fái tækifæri
til að hittast og deila með sér reynslu. Við
fengum skýrslu þar sem tekið er saman er yfirlit
yfir hvað aðildarríkin hafa gert á þessu sviði og
hver reynslan hefur verið. Við lestur þessarar
skýrslu verður manni ljóst að þáttur íslenskra
læknanema í alnæmisfræðslu er ekki merkilegur
samanborið við starf læknanema í öðrum
löndum. Hluta skýringarinnar má eflaust leita í
þeirri staðreynd að alþjóðlegi alnæmisdagurinn
er 1. desember og þá eru Islendingar uppteknir
við önnur hátíðarhöld. Annað vandamál er að
almenningur hér er nokkuð vel upplýstur um
alnæmismál hér á landi og sjúkdómurinn er ekki
jafn mikið vandamál og hann er víða um heim.
En þó fólk hér á iandi sé vel upplýst þá er samt
78
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.