Læknaneminn - 01.10.1995, Síða 116
SJÓNBRAUTIR
4-6 (.iV, og greinist illa nema tekið sé meðaltal af
talsverðum fjölda ertinga af þessu tagi. Það er
einnig töluvert „viðkvæmt“ fyrir öllum að-
stæðum, s.s. fókus og sjónlagi hins prófaða, og
andstæðum (contrast) í áreiti, sem aftur gefur
möguleika á að meta alla þessa þætti.
Augnhreyfingar hafa hins vegar lítil sem engin
áhrif á stærð eða lögun svars (33), ef undanskilin
eru svör sem eru „menguð" (contaminated) af
vöðvasvörun. Til að skrá PERG þarf mikla
mögnun (8-10.000 falda), og einnig þarf að taka
meðaltal af mörgum skráningum, a.m.k. 200-
300, til að fá áreiðanlegt svar til klínískra nota
(við bestu aðstæður er hægt að nota færri). Til að
útiloka vöðvasvörun er höfð sérstök „rútína“ í
tölvuforriti til að hafna slíkum svörum úr
meðaltali, sem eru mun stærri að spennu og hafa
aðra tíðnivídd en hið raunverulega PERG.
Augnhreyfingar auka því þann tíma senr tekur
að skrá hvert svar. Skráð er rafsvar við
hornhimnu í um 250 msek. eftir ertingu (þ.e.
„pattern reversal“). Þetta byggir augljóslega á
góðri samvinnu og þolinmæði sjúklings, sem
þarf að halda vel athygli og „einblína" á
áreitismynstrið.
Mynd 1 sýnir dæmi um mynstur-ERG sem
við skráðum frá tveimur einstaklingum með
eðlilega sjón, annar eftir leiðréttingu á sjónlagi
með kontakt-linsum, og með þeim aðferðum sem
við höfum lýst hér (mjúkar kontakt-linsur voru
hafðar í og virtust á engan hátt hefta skráningu).
Hornhimnuskautin voru höfð á hornhimnu við
jaðra linsanna. Venja er að láta fólk fjarlægja
kontakt-linsur og mæta með gleraugu í skrá-
ningar af þessu tagi (Prager o.fl., 1990), en okkur
virðist það engu máli skipta! Eins og sjá má af
Mynd 1: Mynstur-sjónhimnurit (PERG)
skráð frá tveimur einstaklingum með
eðlilega sjón, annar án leiðréttingar á
sjónlagi (efsta skráning), hinn (tvcer
neðri skráningar) nœrsýnn en leiðrétt
með mjúkum kontakt linsum er voru í við
skráningu. Ertingar-tíðni (reversal rate)
á skákborðsmynstri var ávallt 7
reversals/sek, dreyfitíðni 8.5 cycles per
degree (gráða sjónhorns), skerpa
(contrast) 94%. Tekin voru meðaltöl af
300 ertingum. Meðalbirtumagnfrá
skjánum er féll á augu var 30 cd/m2 við
töku tveggja efstu skráninga, en 20 cd/nf
við töku á neðstu skráningu. Areitin í
heild spönnuðu 14 gráður sjónhorns,
nema við töku á neðstu skráningu 9
gráður sjónhorns. Einstaka þættir
(components) eru merktir inn á efstu
skráningu. Takið eftir mun í mögnun, og
að svörin eru keimlík í útliti við sömu
ertingu milli einstaklinga. Neðsta
skráning sýnirfram á að P50 og N95 eru
aðskildir þcettir, þar sem við minnkaða
birtu og stœrð áreitis hverfur P50 en eftir
situr N95. P50 er mun háðari birtumagni
en N95 og talin eiga rætur í miðgróf
(macula), en N95 í sjóntaug. Með því að
auka birtumagn í 40 cd/m2 en nota sömu
stœrð fcest eingöngu P50 (ekki sýnt á
mynd). (Eysteinsson og Arnarsson, áður
óbirt).
Mynstur-ERG (PERG)
P50
106
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.