Læknaneminn - 01.10.1995, Blaðsíða 147
SKÝRSLA STJÓRNAR
FÉLAGS LÆKNANEMA
1994-1995
Aðalfundur Félags læknanema var haldinn laugardaginn þann
15. okt. 1994 og lyktaði kosningum til stjórnar á eftirfarandi veg:
Formaður: Arnar Þór Guðjónsson
Ritari : Ingvar Hákon Olafsson
Gjaldkeri: Ingibjörg Guðniundsdóttir
Formaður Kennslumála-
og fræðslun: Einar Kr. Hjaltested
Fulltrúi 2. árs: Halldór Skúlason
Fulltrúi I. árs
(byrjaði e. jól) : Rafn Hilmarsson
Stjórnarfundir voru haldnir vikulega, nema sérstaklega stæði
á. Hér á eftir verður leitast við að skýra frá helsta því sem á daga
F.L. hefur drifið á árinu 1994-1995
SAMSKIPTI VIÐ STÚDENTARÁÐ,
STÚDENTASJÓÐ
OG ÖNNUR STÚDENTAFÉLÖG.
SHI og formannafundir
Samskiptin við stúdentaráð voru með hefðbundnum hætti,
formannafundir haldnir u.þ.b þrisvar sinnum á hvoru misseri. Voru
þeir fundir að mörgu leyti gagnlegir. Bæði voru þar rædd ýmis
klassísk mál ss. skipulagning félagslífins og þannig hlutir en einnig
ýmis framfaramál bæði kynnt og rædd. Má sem dæmi nefna nýjar
verklagsreglur fyrir Háskólann, aðstoðarmannakerfi, kennslu-
málaráðstefnu frantkvæmd og fyrirkomulag, einnig aðstöðumál
hvers konar sem og ýmis sameiginleg hagsmunamál. Semsagt
ágætir fundir en erfitt aö sækja þá því fundarboð bárust yfirleitt
samdægurs eða daginn eftir.
Félag deildarfélaga
Félag deildarfélaga sem stofnað var með miklum látum f. 2-3
árum síðan virðist endanlega heyra sögunni til. Starfsemi þessa
félags hefur legið niðri sl. ár og er það vel því tilgangur þessa félags
var alla tíð hálf óljós og starfsemi sú sem það átti að inna af hendi
fór aldrei almennilega af stað. Vonandi heyrir félag deildarfélaga
því sögunni til.
Dansleikjaliald í samvinnu við önnur deildarfélög
Félag hélt áfram samstarfi við félög; hjúkrunarfræðinema,
sálfræðinema, lyjafræðinema og stjórnmálafræðinema um
skipulagningu og framkvæmd dansleikja. Var m.a. haldið vel
heppnað jólabail á hótel íslandi í gríðarlegri samkeppni við þríeykið
laganema, viðskiptafræðinema og verkfræðinema sem voru í
Perlunni með sitt skrall. Er það æskilegt að halda þessu samstarfi
áfram, meðan vel gengur því þetta skilar okkur aurum í kassann.
Samstarf við Curator Félag hjúkrunarfræðinema
Samstarf F.l. við hjúkrunarfræðinema hófst f. tæplega tveimur
árum síðan og fer sífellt vaxandi. Hefur samvinna þessara félaga á
sviði félagsmála gengið ákaflega vel. Mæting á þá atburði sem
skipulagðir hafa verið er mjög góð, og er það kannski von til þess
að samstarf sem þetta geti í framtíðinni leitt til betra andrúmslofts
inni á deildum spítalanna, ekki veitir a.m.k. af!!. Síðastliðið ár hefur
bæði verið skipulagt sameiginlegt fræðslukvöld, einnig var leigður
salur og veitingar seldar á kostnaðarverði og boðsmiðar á ball á
eftir, sem og sameiginlegt kynningarball nú í haust. Þegar þetta er
ritað er þegar hafinn undirbúningar að næsta fræðslukvöldi þessara
deildafélaga.
Samstarf við félag lyfjafræðinema
Fyrir utan jóladansleik í samstarfi með m.a. lyfjafræðinemum,
þá vorum við einnig í samvinnu við þá I sambandi við árshátíðina.
Hún var haldin á Ömmu Lú og var dansleikurinn sameiginlegur
með lyfjafræðinemum. Var það vel heppnuð ráðstöfum, því að auk
þess að læknanemar og lyfjafræðinemar skemmti sér vel saman, þá
næst þarna fram ákveðin hagræðing vegna dreifingar kostnaðarins
á tvö deildarfélög í stað eins. Samstarf deildarfélaganna í
læknadeild er i raun nytsamlegt á mjög margan hátt því hags-
munamálin eru mörg þau sömu. Sem dæmi má nefna að svo til allar
deildir/ skorir innan Læknadeildar búa viö afar þröngan kost
aðstöðulega séð. Samstarf þessara nemendafélaga mætti því víkka
út og breikka til hagsbóta fyrir alla nemendur Læknadeildar.
BREYTINGAR Á STJÓRNKERFI F.L.
Eins og menn muna var stjórnkerfi gerbreytt á síðasta
aðalfundi. Embættismönnum var fækkað úr tæplega 70 í 44.
Breytingunum var ætlað að gera starfsemi félagsins skilvirkari,
þróttmeiri og umfram allt léttari í vöfum. Er það ljóst að að
breytingar þessar hafa tekist aimennt vel, öll boðskipti miklu
auðveldari, starfsemi stjórnar miklum mun léttari I vöfum sem og
afkastameiri. Einnig má nefna sameiningu fræðslunefndar og
kennslunefndar sem hefur skilað sér í einni mjög öflugri nefnd með
breitt verksvið í kennslu- og fræðslumálum læknanema. Einnig má
nefna Ijármál F.L. þar sem Gjaldkeri F.L. hefur nú betri yfirsýn sem
og yfirstjórn á Ijárreiðum félagsins eftir að hinar fjölmörgu nefndir
F.L. fyrir utan Læknanemann og stúdentaskiptanefnd voru sviptar
fjárræði. Fulltrúar yngri áranna eru virkir þáttakendur i starfi
stjórnar vegna breytinga á skipan stjórnar, t.d. gjaldkeri af 3. ári í
stað 5. ári).
Einnig hefúr tenging stjórnar sem og hinna ýmsu nefnda F.L.
tekist vel, sérstaklega við skipulagningu félagslífsins. Skipulagning
hinna ýmsu atburða F.L. hver um annan þveran, eins og áður var,
heyra því vonandi sögunni til.
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.
137