Læknaneminn - 01.10.1995, Page 148
ÁRSSKÝRSLA
DEILDARFUNDUR OG DEILDARRÁÐ
Deildarfundur
Deildarfundur er æðsta vald Læknadeildar. A deildafundi eiga
sæti ákveðið hlutfall stúdenta (nú 15 talsins). Deildarfundir eru
haldnir tvisvar til þrisvar á ári. Núverandi deildarforseti er próf.
Helgi Valdemarsson.
Deildarfundir í ár fóru að mestu leyti í það að endurráða gamla
lektora og dósenta og afgreiða dómnefndarálit þar um.
Deildarráð
Deildarráð er framkvæmdavald deildarfunda og tekur
ákvarðanir um llest mál er tengjast Læknadeild. Deildarráð fundar
á hálfsmánaðar fresti. Þar eiga sæti sex prófessorar deildarinnar
ásamt tveimur fulltrúum stúdenta, formanni og ritara EL. Hafa
nemendur tvö atkvæði af átta. Voru fulltrúar nemenda í deildarráði
mjög virkir í starfsemi þess og reynt var í ríkum mæli að vekja
athygli á hagsmunamálum stúdenta og benda á leiðir til úrbóta. A
hverju ári eru ótal eru ótal erindi afgreidd í deildarráði, hér á eftir
verður leitast við að fjalla um þau sem snúa að læknanemum beint.
Takmörkun á fjölda tilrauna í numerus clausus.
Deildarráð læknadeildar hafði fyrir nokkru samþykkt að lillögu
kennslustjóra að setja bæri hámarksíjölda leyfilegra tilrauna í
numerus clausus. Skemmst er frá því að segja að Háskólaráð felldi
þessa tillögu Læknadeildar í tvígang, á þeirri forsendu að um óþarfa
forræðishyggju sé að ræða af hálfu deildarinnar, svo að þessi tillaga
er einfaldlega úr sögunni.
Tutorakerfi
Handleiðarakerfi það sem verið hafði mörg ár í undirbúningi,
var hrundið af stað með miklum látum í byrjun ársins 95. Virtist
sem hinir nýskipuðu handleiðarar væru ákaflega misupplýstir um
þetta nýja kerfi. Fjölmargir læknanemar hafa nú þegar nærri ár er
liðið frá gildistöku þessa nýja kerfis ekki enn heyrt neitt frá
handleiðurum sínum. Þetta kerfi sem í sjálfu sér er ágæt hugmynd ,
er hálf mislukkað, a.m.k. eins og staðan er í dag, og virðist það líða
fyrir hálf klúðurslega skipulagningu af hálfu læknadeildar.
Ráðgjafanefnd fyrir læknanema
Læknadeild hefur komið á fót ráðgjafarnefnd fyrir læknanema.
í þessari eiga sæti dósent í heimilislækningum, dósent
geðlækningum sem og fulltrúi F.L. Hlutverk þessarar nefndar er að
virka sem nokkurs konar öryggisnet fyrir læknanema sem lenda í
hvers konar vandræðum í námi sínu. Nefndinni er ætlað
ráðgjafahlutverk fyrir þá sem til hennar vilja leita.
Rannsóknarverkefni og valtímabil
Þótt F.L. leggi það ekki í vana sinn að berjast fyrir launa-
hækkunum til handa kennurum sínum, þó þótti ótækt að bæði
kennarar sem taki nemendur í rannsóknarverkefni(lOv) sem og
kennarar sem taki að sér nemendur á valtímabilum á 5. og 6. ári
geri það alfarið í sjálfboðavinnu. Þetta stendur nú til bóta og á
sjálfsagt eftir að skila sér margfalt tilbaka í bættri kennslu.
Réttindi og aðbúnaður F.L. á Háskólasjúkrahúsinu
Landspítalanum
I kjölfar dæmalausrar framkomu stjórnenda Lsp. gagnvart
læknanemum kennslusjúkrahúsinu, sbr. mötuneytismál og
bílastæðamál var ljóst að e-ð róttækt varð að gera í réttindamálum
læknanema á Lsp. Mál af líkum toga hafa verið að koma upp nánast
annað hvert ár en aldrei verið leyst í eitt skipti íyrir öll. Vegna þessa
lögðu því fulltrúar læknanema í deildarráði fram tillögu þess efni að
tafarlaust verði hafist handa við að tryggja réttindi og aðbúnað
læknanema á kennslusjúkrahúsinu með samningum milli
landspítala og háskólans, slíkur samningur gæti síðan orðið
fyrirmynd hliðstæðra samninga við önnur kennslusjúkrahús.
Skemmst er frá því að segja að tillaga F.L. var samþykkt samhljóða
í deildarráði og skipuð hefur verið nefnd sem í eiga sæti Rektor
H.Í., deildarforseti Iæknadeildar, formaður félags læknanema og
fulltrúi ríkisspítala. Þessari nefnd er ætlað að koma þessum málum
í viðunandi horf.
Kennslumál og aðstaða
Niðurstöður kennslumálaráðstefnu F.L. voru í fyrsta sinn
sendar til allra kennara deildarinnar. Einnig voru niðurstöður
ráðstefnunnar rækilega kynntar i deildarráði. I þeirri umfjöllun var
reynt að leggja áherslu mikilvægi þess að læknanemar hafi aðgang
að tölvum í námi sínu sem og mikilvægi nútímalegra kennsluhátta
almennt. Segja má að viðhorf flestra deildarráðsmanna gagnvart
þessum áhersluatriðum olli okkur nokkrum vonbrigðum.
Lesstofumál
Vakin var athygli á lesstofuvandræðum og almennu
aðstöðuleysi læknanema á fjölmörgum deildarráðsflindum. Lagt var
fram minnisblað varðandi Iestofuþörf læknanema í klíniska náminu.
í þessu máli hafa deildarráðsmennlagt sig fram um að aðstoða
okkur, hvergi er þó ástandið nægilega gott og frekari úrbóta erörf.
Húsnæðismál
Mikill tími hefur farið í að skipuleggja þann hluta Læknagarðs
sem er ófrágenginn. Það er svo undarleg tilviljun (?) að í þessum
tiltölulega smáa hluta hússins er allri félags- og kaffiaðstöðu
læknanema ætlaður staður. Læknadeild og tannlæknadeild rífast þar
eins og hundur og köttur um hvern einasta rúmsentimeter, barátta
þar sem smærri deildin hefur yfirleitt betur. Ekki ein einasta áætlun
varðandi byggingu þessa húss hefur staðist. Steininn tók þó úr þegar
forráðamenn deildarinnar tóku að leggja ofuráherslu á byggingu
dýrahúss fyrir bróðurpartinn af naumt skömmtuðu framkvæmdafé
byggingarinnar. Þessu mótmælti stjórn F.L. harðlega, svo að því var
lofað að á árinu ‘95-’96 verði félagsaðstaða sem og kaffiaðstaða að
mestu leyti tilbúin. Svo að við fáum okkar aðstöðu a.m.k. ekki
seinna en mýsnar, rotturnar og síðast en ekki síst froskarnir hans
Þórs Eysteinssonar.
Lesstofur eru krónískt vandamál eins og fyrr. Sl. vetur misstu
6. árs nemar lesaðstöðu sína í kjallara Lsp. vegna stækkunar
göngudeildar. Formaður F.L. hefur verið í stöðugri lestofuleit síðan,
þrátt fyrir það er góð, varanleg lausn ekki fundin enn. 6. árs nemar
hafa fengið aðstöðu tímabundið á 13-A, en hafa þá aðstöðu iíklega
ekki nema til áramóta. Einnig höfum við 12-pIáss í Eirbergi á gamla
skóladagheimilinu, það húsnæði er þó heldur þröngt og óvistlegt.
Þó er jákvætt að við læknanemar höldum að öllum líkindum
lesaðstöðu í húsi ljósmæðraskólans, þrátt fyrir að ljósmæðraskólinn
sé að heija göngu sína á ný. Af þessu má Ijóst vera að læknanema
bráðvantar varanlega lesaðstöðu á kennslusjúkrahúsunum. Þetta er
mikilvægt hagsmunamál sem þolir enga bið.
138
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.