Læknaneminn - 01.10.1995, Page 150
ÁRSSKÝRSLA
FJÁRMÁL
Þegar ógreiddir reikningar fráfarandi stjórnar höfðu verið
greiddir stóð félagið nánast á núlli. Bæta þurfti fjárhagsstöðu
félagsins tafarlaust, og var samstundis hafist handa. M.a. annars var
lögð áherslu á söfnun styrkja til standa straum af ýmsum
kostnaðarliðum, s.s. kennslumálaráðstefnu sem og hópslysaæfingu
ofl. Stúdentasjóðurinn, það illvíga skrifræðisbákn var reynt að
mjólka eins og mögulegt var. Fengum við nú mun meira út úr
sjóðnum en árið áður. Einnig var reynt að hagræða eins og nokkur
kostur var á ýmsan hátt, sbr. ljósritun, árshátíð, símaskrá F.L. ofl.
Einnig kom ágóói af Læknanemanum í góðar þarfir. Skemmst er
frá þvi að segja að aðgerðir þessar tókust vel og stjórn F.L. skilar
góðu búi til næstu stjórnar.
ÝMIS MÁL
Stærsta hópslysaæfing
Stærsta hópslysaæfing sem F.L. hefur nokkru sinni staðið fyrir.
Æfingin framkvæmd í samvinnu við 5 björgunarsveitir af
höfuðborgarsvæðinu sem og Björgunarskóla Landsbjargar.
Þáttakendur voru 150 talsins, 90 læknanemar og 60 manns frá
hjálparsveitunum. Sett var á svið mikið flugslys í Skerjafirðinum.
Stúdentaskiptin
Stúdentaskiptin eru í sókn, og einnig eru læknanemar í auknum
mæli teknir að nýta sér þá styrki sem í boði eru til náms erlendis, ss.
ERASMUS og NORDPLUS
Ráðningarstjóri og aðstoöarráðningastjóri
Ráðningarstjóri og aðstoðarráðningastjóri héldu örugglega um
framkvæmd ráðningakerfisins, svo að samráð við stjórn F.L. þurfti
því ekki nema i undatekningartilfellum.
LOKAORÐ
Hér hefur verið tæpt á því helsta sem F.L. hefur haft með höndum á
síðasta starfsári. Við höfum prófað ýmislegt nýtt í félagsmálum sem
og haldið í gamlar hefðir. Hér hafa margir lagt hönd á plóginn og
vil ég f.h. stjórnar F.L. þakka öllum embættismönnum félagsins
fyrir vel unnið starf. Að lokum fá stjórnarmeðlimir kærar þakkir
fyrir ánægjulegt samstarf og skemmtilegan tíma.
fyrir hönd stjórnar F.L.
Arnar Þór Guðjónsson
formaður Félags lœknanema
Ný félagsskírteini
Stjórn F.L. gekkst fyrir útgáfu félagsskírteina með nýju sniði.
Nýju skírtcinin eru plasthúðuð í kreditkortaformi, og þar að auki
persónumerkt.
Kennslumálaráðstefna
Kennslumálaráðstefna var haldin á um miðjan vetur og skilaði
sér í mikilli umræðu um kennslumál. Auk þess var rituð ítarleg
samantekt um niðurstöður ráðstefnunnar, sem birt var í
Læknanemanum, send til allra kennara deildarinnar, sem og rædd í
kennslunefnd- og deildarráði læknadeildar.
Félag læknanema sá um kvnningu.
Félag læknanema sá um kynningu á læknanámi fyrir
Háskólann á háskólakynningu í marsmánuði. Var fólk almennt
mjög áhugasamt um námsfyrirkomulag sem og aðra þætti er að
læknanáminu snúa.
Vísindaferð var farin til Vestmannaeyja,
Vísindaferð var farin til Vestmannaeyja, fyrstu helgina í
nóvember. Var skipulagning hennar til fyrirmyndar og á fulltrúaráð
hrós skilið fyrir framkvæmdina.
Nýstálegur fræðslufundur í Háskólabíó.
Stjórn F.l. og Kennslumála- og fræðslunefnd í samvinnu við
Hreyfimyndafélagið gengust í sameiningu fyrir nýstálegum
fræðslufundi i Háskólabíó. Þar flutti lyrrv Morfis-kóngurinn Hlynur
N. Grímsson fyrirlestur tengdan Dracúla, og svo var kvikmyndin
sýnd á eftir.
Iþróttamót, aðrir fræðslufundir og árshátíð F.L.
Iþróttamót, aðrir fræðslufundir og árshátíð F.L. voru með
hcfðbundnu sniði.
Kynningarball
Kynningarball var haldið í september mán. sl. í samvinnu við
hj úkrunarfræðinema.
140
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.