Læknaneminn - 01.10.1995, Blaðsíða 152
ARSSKYRSLA
bundið. I Deildarráði var málið hins vegar afgreitt á þann hátt að
skipuð var sérstök tölvuvæðingarnefnd sem ekkert hefur spurst af
síðan.
Ráðstefna uni „Problem Based Learning“
I nóvember í fyrra fóru tveir nefndarmeðlimir til Maastricht í
Hollands á rástefnu um þetta fyrirbæri sem er kennsluaðferð sem
mikið er að ryðja sér til rúms í háskólum erlendis. T.d. er
læknadeildin í Harvard alfarið með þessu sniði. Læknisfræði er
talin sérstaklega vel til þessarar kennslu fallin enda snýst starf
lækna fyrst og fremst um það að greiða úr vandamálum á einn eða
annan hátt. I stuttu máli sagt gengur þessi hugmyndafræði út á það
að þekkingar er aflað með það fyrir augum að greiða úr einhverju
vandamáli og námsefnið ekki flokkað í einstakar kennslugreinar
eins og líffærafræði, lífeðlisfræði o.sv.frv. Boðið er upp á þriggja
mánaða kúrs fyrir erlenda stúdenta við læknadeildina í Maastricht
þar sent kennt er eftir þessu formi og hvet ég áhugasama eindregið
til þess að kynna sér málið
Varðhundastarfsemi
Hlutfallslega stærstur hluti af starfi formanns nefndarinnar fór
þó í baráttu fyrir hærri (réttari) einkunnum ákveðins hóps
læknanema sem undirritaður þó tilheyrði. Sú vinna fólst í söfnun
undirskrifta í þrígang, samningu mótmælabréfa upp á samtals 2500
orð, samtals þremur korterum inn á skriftstofu harðsnúnasta
prófessors i Læknadeild, stefnumótum við kennara, fjölda-
mótmælafundi með kennurum og nemendum sem 5 nemendur sáu
sér fært að mæta á (vegna tímasetningar prófessorsins), að þurfa að
vakna klukkan 8 morguninn eftir árshátíð félagsins auk ótaldra
andvökunátta. Eftir tæplega tveggja mánaða tuð og tafs skilaði
þessi vinna sér þó í hækkun á meðaleinkunn í viðkomandi fagi um
0.47.
Fræðslufundir
Fyrsti fræðslufundurinn fjallaði um framhaldsnám í
læknisfræði og ameríska læknaprófið. Sigurður Guðmundsson
talaði um fyrrnefnda atriðið og Agúst kynnti ameríska prófið en
hann hafði nýverið tekið bæði prófin. I febrúar steig bókmennta-
og læknisfræðingurinn HlynurNíels Grímsson á stokk í Háskólabíó
og hélt stórskemmtilegan fyrirlestur um blóðþyrstan greifa frá
Transylvaniu, Dracula að nafni. Megininntakið í fyrirlestrinum var
útlistun á erótík í meistaraverkinu Dracula eftir Bram Stoker og
einnig tók hann fyrir túlkun F.F.Coppola á skáldsögunni. I kjölfar
fyrirlestursins var kvikmyndin sýnd. Þessi atburður var skipulagður
í samráði við Hreyfimyndafélagið. Fundur um starfsemi Rauða
Krossins á stríðshrjáðum svæðum var haldin í mars og hafði Pálína,
deildarhjúkrunarfræðingur á slysó framsögu urn málið en hún hefur
verið á svokallaðri veraldarvakt Rauða krossins í mörg ár.
Hópslvsaæfing
1 samvinnu viö Björgunarskólann og björgunarsveitir á Stór-
Reykjavikursvæðinu var í mars sett upp flugslys á
Reykjavíkurflugvelli. Léku læknanemar þar fórnarlömb af einstakri
innlifun og skiptu sér einnig í leitarflokk, sjúkraflutningamenn og
greiningarsveit. Aður hafði Jón Baldursson fjallað um skyndihjálp,
og aðilar frá Björgunarskólanum kynnt verkaskiptingu á vetvangi
hópslyss og uppsetningu æfingarinnar. Æfingin heppnaðist í alla
staði frábærlega og er stefnan að halda uppi samvinnu við Björg-
unarskólann og setja upp æfingar á tveggja ára fresti. Hitt árið
teljum við tilvalið til þess að hafa skyndihjálparnámskeið og verður
það þá hlutskipti komandi nefndar að skipuleggja það.
Námsaðstoð
Þessi nýjung hófst í fyrra að frumkvæði Námsráðgjafar
Háskólans. Ljóst er að þessi þjónusta beinist fyrst og fremst að
nemendum í numerus clausus. Þjónustan var lítið sem ekkert notuð
í fyrra en þá vorum við með fasta tíma. Nú var þjónustan kynnt
öllum nýnemum sértstaklega og gefin upp símanúmer nefndar-
meðlima og hafa nokkrir látið í sér heyra.
Fyrir hönd fræðslu-og kennslumálanefndar
Einar K. Hjaltested
SKVRSLA
STÚDENTASKIPTANEFNDAR
Starf stúdentaskiptanefndar var með hefðbundnum hætti í ár.
Starfsárið hófst með kynningarfundi fyrir stúdenta í Læknagarði
þar sem möguleikar á skiptum voru kynntir og skiptst var á sögum
úr fyrri ferðum. Yfir vetrarmánuðina fer fram undirbúningsvinna
fyrir sumarið, þ.e. tekið við umsóknum, samningar gerðir við
stúdentaskiptanefndir erlendis, sótt um styrki fyrir nefndina og
skipulag ferða og afþreyingar fyrir skiptinema sem koma hingað.
Stúdentaskiptanefnd er styrkt af heilbrigðismálaráðuneyti og
stúdentasjóði. I ár reyndum við að fá fleiri aðila til að styrkja
starfið, svo sem lyíjafyrirtæki, apótek, og læknastofur og gekk það
ágætlega. Peningunum er aðallega varið í ferðakostnað vegna
ráðstefna og í húsaleigu fyrir skiptinema sem koma hingað. I
staðinn fá íslensku skiptinemarnir frítt fæði og húsnæði erlendis.
Krafist er 6000 kr. staðfestingargjalds þegar sótt er um skipti og er
helmingur þess greiddur til baka þegar snúið er heim.
I sumar fóru 15 íslenskir læknanemar út í almenn skipti í einn
mánuð hvert. Auk þess fóru tveir út á okkar vegum í
rannsóknarverkefni fjórða árs sem tekur þrjá mánuði og ein stúdína
fór út í fimm mánuða þróunarverkefni. AIls tókum við á móti 26
erlendum læknanemum.
Stærra hlutfall eldri nema, þ.e. af fjórða og fimmta ári, fór út í
almenn skipti en áður hefur verið. Sennilegt er að það stafi af færri
aðstoðarlæknastöðum sem í boði eru. Minna má á möguleika sjötta
árs nema á að taka valmánuð erlendis á okkar vegum.
Töluverður áhugi er á að gera rannsóknarverkefni erlendis.
Við bjóðum upp á verkefni í mörgum löndum sem Læknadeild
samþykkir, en þvi miður vantar ýmiss vinsæl lönd svo sem
Danmörk, Bretland og Bandarikin. Því er mikilvægt að efla
samstarf við prófessoranet Erasmus-áætlunarinnar. Einnig væri
gott ef íslenskir læknar með sambönd við læknaskóla erlendis
hjálpuðu okkur að koma á samstarfi.
Alþjóðasamtökin IFMSA hafa lengi verið með ýmis
þróunarverkefni í boði. Stúdentaskiptanefnd hefur reynt að vekja
áhuga á þessum möguleika og í vetur fór einn nemi, Guðbjörg
Ludvigsdóttir, alla leið til Súdan þar sem hún vann að heilsuvernd í
sex smáþorpum. Meðal verkefna voru bygging og skipulag heilsu-
gæslustöðvar og fræðsla almennings um hreinlæti, sorpeyðingu,
malaríuvarnir og fleira. Hvetjum við aðra læknanema til að feta í
fótspor hennar.
Tvær ráðstefnur voru haldnar á árinu, önnur í Egyptalandi þar
sem skipst var á samningum og hin í Barcelona þar sem aðalfundur
IFMSA var haldinn. Fyrir ráðstefnuna í Barcelona var haldið
námskeið í „public health“ og sóttu það þrír nefndarmeðlimir.
Sumarstarfið var að venju unnið í samstarfi við verkfræði-,
142
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.