Læknaneminn - 01.10.1995, Blaðsíða 154
ÁRSSKÝRSLA
ARSREIKNInGUR RÁÐNINGAST.IÓRA F.L. 1994-1995
TEKJUR:
Greidd ráðningagjöld 19.840.-
Sektir 30.000.-
Utistandandi ráðningagjöld 242.440.-
Tekjnr samtals: 292.280.-
GJÖLD:
Frímerki, umslög,
Ijósritun og gíróseðlar. 24.835.-
Umframskrefá síma
aðalráðningastjóra
nóvcmber - júlí 7.847.-
Þjónustugjöld til banka 334.-
Símboði 20.595.-
Gjöld samtals: 53.612.-
TEKJUR UMFRAM GJÖLD 231.668.-
Með bestu kveðjum!
Steingerður Anna Gunnarsdóttir
SKÝRSLA FULLTRÚA LÆKNANEMA í
RANNSÓKNANÁMSNEFND
I vetur var fyrsta starfsár Rannsóknanámnefndar sem tekur við
af hlutverki BS-nefndar en er ætlað stærra hlutverk. I nefndinni
störfuðu auk undirritaðra: Gunnar Sigurðsson, Guðmundur
Þorgeirsson, Sveinbjörn Gissurarson og Þór Eysteinsson, en Helga
Ögmundsdóttir tók við af Þór nú á haustdögum. Hlutverk nefndar-
innar er að fjalla um umsóknir í doktors-, MS- og BS-nám við
Læknadeild, hafa umsjón með því og rannsóknaverkefnum ijórða
árs læknanema. A þriðja tug nema, úr læknisfræði eða stoðgreinum
hennar (s.s. líffræði og lyfjafræði), stunda rannsóknatengt nám og
fer þeim fjölgandi. Gróska er ríkjandi á þessu sviði og ánægjulegt
er að nokkrir læknanemar hafa eða hyggjast skrá sig i MS nám.
Til umræðu kom sú hugmynd læknanema um að þeir rnyndu
eftir að hafa lokið fjórða ári hljóta BS-gráðu. Hlaut hún ekki
brautargengi á þeim forsendum að það myndi rýra gildi vinnu þeirra
sem hafa hlotið hana hingað til og erfitt er að uppfæra menn aftur I
tímann. Hins vegar er það í raun ekki á valdsviði nefndarinnar að
ákveða þetta, en hún gefur að sjálfsögðu umsögn sem miðar að því
að halda uppi gæðum rannsóknatengds náms við læknadeild.
Að venju var haldin á vordögum ráðstefna þegar fjórða árs
nemar kynntu rannsóknaverkefni sín sem langflest voru unnin af
miklum metnaði og dugnaði. Þessi frábæra nýjung hefur fest sig í
sessi og sannað gildi sitt. Mæting var hins vegar ekki góð. Fáir
fastakennarar deildarinnar komu og læknanemar af öðrum árum
voru sjaldséðir. Jafnvel bar á lélegri mætingu fjórða árs nema,
dæmi voru um að þeir kæmu einungis til að flytja sitt crindi. Þetta
er alvarlegt mál þar sem þetta er einn af stórviðburðum ársins í
læknadeild og mikilvægt er að nemar læri að taka þátt i unrræðu
sem fylgja á kynningu rannsóknaverkefna.
Annars horfum við bjartsýnir fram á veginn, aukinn áhugi er
fyrir rannsóknum innan Læknadeildar, bæði meðal nemenda og
kennara, sem eykur veg hennar sem háskóladeildar.
Gunnar Bjarni Ragnarsson
Kristján Sldtli Asgeirsson
Þorsteinn Gunnarsson
SKÝRSLA LÆKNANEMANS
A aðalfundi F.L. í oktober 1993 var kosin tveggja manna
ritstjórn og nokkurra manna ritnefnd. I ritnefnd sátu Arnar
Astráðsson, Óskar Jónsson, Björn G.S. Björnsson og Ólafur
tngimarsson. Þótt þetta séu allt mætir menn þá fannst þeirn sem
þetta skrifar nauðsynlegt að fá til mótvægis kvenkyns læknanema.
Buðum við Guðbjörgu Ludviksdóttur og Þórunni Jónsdóttur sem
þekktust boðið. Hittist hópurinn nokkuð reglulega veturinn ‘93-’94
í boði ritstjóra og fengu einstaka hugmyndir sem að lokum voru
orðnar nokkrir tugir. Var þeim flestum ýtt úr vör og fylgt eftir að
mætti en einungis hluti þeirra varð að veruleika og birtust í
blöðunum tveim veturinn ‘94-’95.
Utgáfa 2. tbl. ‘94 gekk nokkuð snuðrulaust fyrir sig og voru
auglýsingatekjur nokkuð ríflegar og kostnaður jafnframt í lágmarki.
Utgáfa 1. tbl. ‘95 gekk einnig ágætlega en það var nokkuð stærra en
það fyrra og jafnframt meira um aðkeypta vinnu og því nokkuð
dýrara í framleiðslu. Þó skilaði útgáfan um 300.000,- kr. hagnaði
og er það vel, en jafnframt kallar það á betri skilgreiningu í lögum
F.L. í Itvað skuli nota féð, í hvers vörslu skuli það vera og hver skuli
bera ábyrgð á ráðstöfun þess. Það er skoðun okkar að umsjón með
fénu skuli vera jafnt á höndum ritsjóra sem formanni F.L. því þó
Læknaneminn sé í eigu F.L. þá ættu þeir sem afla ijársins að hafa
hönd í bagga með ráðstöfun þess. Jafnfram teljum við útgáfu þessa
það umfangsmikla að hún skuli gerð lögleg samkvæmt lögum um
virðisaukaskattskylda starfsemi og hefur jarðvegur þess verið
undirbúin en þarf að framkvæmast af komandi stjórn F.L. og
ritstjóra Læknanemans.
I skýrslu síðustu ritstjórnar kom fram að áskrifendum hefði
verið fjölgað mikið og fengju um 425 einstaklingar blaðið.
Gleymdist að taka fram að einungis 260 einstaklingar greiða
reglulega og eru því eiginlegir áskrifendur. Einnig kom þar frarn
að keypt hefði verið tölva og prentari en rétt er að ákvörðunin var
þeirra en framkvæmdin okkar (126.600). Af öðrum framkvæmdum
má nefna að keyptur var myndsími til afnota fyrir F.L. (52.000),
eldri tölublöð Læknanemans voru bundin inn (50.400) og um
200.000 látin F.L. til afnota.
Meö kveðju!
Helgi Hqfsteinn Helgason
Einar Örn Einarsson
144
LÆKNANEMINN 2. tbl. 1995 48. árg.