Úrval - 01.02.1962, Síða 46
54
ÚR VAL
sem hún var uppi á. Hún er
síðust þeirra þriggja stórbrotnu
kvenna miSalda íslands. Vatns-
fjarðar-Kristín er tengdamóðir
hennar, Grundar-Helga er lang-
amma manns hennar. Samkvæmt
einhverjum huldum rðkum eru
nöfn þeirra saman fléttuð, nöfn
þessara kvenna, sem sakir skör-
ungsskapar og hvers konar fyrir-
mennsku hefur verið forðað frá
gleymsku og tortímingu i vitund
þjóðar vorrar.
Sigrún BlöndaJ.
Merkasta brúðargjöf Elizabetar drottningar.
KONA af háum stigum en blásnauð á heima í einu af út-
hverfum Lundúnaborgar. Við skulum kalla hana Mrs. Stockwell.
Sakir sinnar hágöfugu ættar var hún boðin til að vera viðstödd
brúðkaup E’lizabetar drottningar, sem þá var prinsessa. Hún fór
þegar að velta fyrir sér, hvað hún gæti keypt og gefið. Það
var mikið vandaverk fyrir hana. Loks fann hún tafl, fagurt
mjög en ódýrt, sýnilega skorið út af hreinum þjóðhaga. Það
kostaði aðeins 15 shillinga, hæfilega dýrt fyrir Mrs. Stockwell.
Hún keypti það, ritaði á nafnspjald sitt og bað þess, að Það yrði
sent til Buckinghamhallar. Hún vænti þess, að i öllu gjafaflóð-
inu mundi þessi lítilmótlega gjöf hennar hverfa.
Svo var það eftir brúðkaupið, að gjafir, sem hennar hátign
fékk, voru settar fram til sýnis. Mrs. Stockwell kom þar og
gladdist, er hún kom hvergi auga á gjöfina sína. Einhver starfs-
maður hefði ef til vill lagt hana til hliðar af miskunnsemi í
garð gefandans, hvers nafn auðvitað fylgdi með gripnum, En
þá tók hún skyndilega eftir því, að hópur manna stóð í kringum
glerkassa og einhver leiðsögumaður talaði og talaði. 1 glerkass-
anum var taflið frá henni. Maðurinn sagði: „Þetta er ómetan-
legt tafi, og hefur verið glatað í heila öld. Þrjár kynslóðir kon-
ungsfjölskyldunnar hafa sent út sérfræðinga til þess að leita
að því, en án árangurs. En Mrs. Henry Stockwell fann það og
nú er hér fyrir framan ykkur, eitthvert dýrasta og merkasta
manntafl í heimi.“
Mrs. Stockwell vafði sneplóttum pelsinum sinum að sér næsta
glöð og hvarf frá án þess að láta á sér bera.
— Shake Well before Using.