Úrval - 01.02.1962, Síða 89
ILMURINN
97
eru ekki auðfengnir peningar við
aS framleiSa ilmvötn. Þvi fyrir
hverja eina tegund, er öðlast
vinsældir, eru aS minnsta kosti
tuttugu, sem misheppnast, og ör-
fáar tegundir ná metsölu þegar
í staS. Af þeim má nefna Coty’s
L’Origan, sem fyrst kom fram
1905, Chanel No. 5 frá 1924 og
Lavin Arpege frá 1927.
Enginn veit með vissu, hvað
veldur þvi, aS einhver sérstök
ilmvatnstegund nær vinsældum,
en aðrar misheppnast. ÁlitiS er,
að Chanel No. 5 eigi fyrst og
fremst vinsældir sínar því að
þakka, að þar er þræddur með-
alvegur milli hins súra og sæta
ilms. Velflest vinsælustu ilmvötn
nútímans eru sömuleiSis mjög
nálægt þessum meSalvegi. En
ilmurinn sjálfur er ekki hiS
eina, sem þarna skiptir máli.
NafniS, umbúSirnar og auglýs-
ingarnar hafa einnig sitt aS
segja.
Þrátt fyrir æsandi nöfn eins
og My Sin, Intimate, Aphrodisia
Tailspin og alldjarfa auglýsingu
á spönsku ilmvatni, er heitir
Maja, þá virSist ekki hafa borgaS
sig aS höfða til kynhvatar í sam-
bandi viS ilmvötn. Fólk er ann-
aShvort feimið við eða á móti
því að biSja afgreiðslufólk um
ilmvatn með nöfnum eins og
Wild Desire eða Soul Kiss. Vel
má vera, aS viðskiptavinurinn
hafi eitthvaS slíkt í huga, en
upphátt biður hann um tegund-
ir eins og Cotillion, White
Shoulders, Chantilly, Desert
Flower eða Emeraude, svo nefnd
séu nokkur hófsamleg heiti á
vinsælum ilmvötnum.
Svo virðist sem vinsælt sé að
láta ilmvötn heita frönskum
nöfnum eða einhverjum nöfn-
um er minni á Frakkland —- sum-
part sakir þess hve Frakkar eru
frjálslyndir í ástamálum og sum-
part vegna þess að Frakkar hafa
lengi haft forystu í ilmvatns-
framleiSslu. Allt frá þeim degi,
þegar Katrín frá Medici kom
meS eigin ilmvatnsblandara (sem
einnig var lagtækur eiturbyrl-
ari) meS sér til Parísar, er hún
giftist Hinrik II, flóSi franska
hirðin i ilmvötnum. Parísar-
búar létu jafnvel gosbrunna
gjósa ilmvötnum viS hátíSleg
tækifæri. Madame de Pompa-
dour eyddi þúsundum dala í
ilmvötn, og Napóleon notaSi
marga tugi kölnarvatnsglasa á
mánuSi hverjum.
Um aldamótin stóðu Frakkar
ótvírætt langfremstir í fram-
leiSslu ilmvatna. Seinna, milli
1920 og 1930, fóru allmargir
frægir conturiers (dömuklæS-
skerar) aS sinna ilmvatnsfram-
leiSslu, og i búningsherbergjun-
um hvöttu afgreiSslukonurnar
hina riku viSskiptavini sina til