Úrval - 01.02.1962, Side 90
98
ÚRVAL
að reyna ilmvötn fyrirtækisins
og áttu þannig mikinn þátt í
útbreiðslu þeirra og vinsældum.
Þannig náðu vinsældum Patou’s
Joy, Worth’s Je Reviens, ilmvötn
Lanvins, Lelong og Chanel og
síðar Dior, Balmain og Fath.
Á þessu sviði hurfu Bandarík-
in alveg í skuggann fyrir Frökk-
um fram að siðari heimsstyrjöld-
inni. Meðan ó stríðinu stóð, fluttu
allmörg frönsk fyrirtæki starf-
semi sína vestur um haf. Sum
urðu með tímanum bandarísk
fyrirtæki. Og bandarisk ilm-
vatnsfyrirtæki fóru nú að dirf-
ast að hefja samkeppni við
franskar ilmvatnstegundir.
Nú á dögum er Avon Inc.
stærsti seljandi ilmvatna á ame-
rískum markaði, og þetta fyrir-
tæki er bandarískt að öllu leyti.
Evyan er nefn á öðru stóru
bandarisku fyrirtæki. En í heild
sinni er iðnaðurinn nú fransk-
amerísk samvinna. Coty ilm-
vötnin eru seld í Bandaríkjun-
um og einnig framleidd þar.
Lanvin og Chanel eru frönsk
fyrirtæki, en Lanvin lætur setja
köinarvatn og aerosol fyrir ame-
rískan markað á glös i Banda-
rikjunum, og Chanel lætur einnig
setja ilmvatn á glös þar. Hins
vegar láta bandarísku fyrirtæk-
in Revlon, Elizabeth Arden og
Fabergé setja ilmvötn sin í glös
í Frakklandi.
Aerosol í stórum og smáum
glösum nýtur mestrar sölu í
Bandarikjunum og selst meir en
helmingi meira en aðrar tegund-
ir kölnarvatns og steinkvatns.
Fragrance Foundation, fyrirtæki
nokkurt, sem unnið hefur að þvi
að gera ilmvatn eins algenga
neyzluvöru og varalit og sápu,
segir, að jafnvel konur, sem
aldrei taki upp ilmvatnsglös
sín nema á jólum og afmælisdög-
um sínum, líti á aerosol sem
sjálfsagðan hlut.
Og hvernig á svo að velja ilm-
vatn? Allan ilm á að máta rétt
eins og nýjan hatt. Efni úr húð
hvers einstaklings blandast ilm-
vatninu og breyta þess vegna
efnablöndu þess að nokkru.
Konur eiga því að finna sér ilm-
vatn, sem ekki missir ilminn
við efnin úr húð þeirra, heldur
verður enn meir töfrandi.
Til þess að reyna nýtt ilm-
vatn er gott að setja ofurlítið af
því á úlfliðinn og þefa af því
öðru hverju í nokkrar stundir.
Ef ihnvatnið heldur ilmi sínum
og öllum töfrum á húðinni í
fjórar stundir án þess að breyt-
ast, er óhætt að kaupa litíð magn
af því og nota um stundarsakir.
Nú, þegar ilmvötn, kölnar-
vatn og steinkvatn hafa náðsvona
mikilli útbreiðslu meðal kven-
þjóðarinnar, eru ilmvatnsfram-
leiðendur farnir að lita Iöngun-