Úrval - 01.02.1962, Síða 114
122
ÚR VAL
tíma. Og jafnmargir verða 72
ára og hinir, sem ná ekki þeim
aldri.
En líkurnar til að geta haldið
upp á aldarafmælið eru ekki
nema einn á móti 500. Helmingi
fleiri konur en karlar ná þessum
háa aldri — og naumast nokkur
án þess að hafa lágan blóðþrýst-
ing.
Læknar segja, að lágur blóð-
þrýstingur og kvenhormónar sé
einhver bezta vörnin gegn hættu-
legustu sjúkdómunum.
Hjartasjúkdómar (oft samfara
taugaspennu) og æðasjúkdómar
eru nú orsök tveggja dauðsfalla
af hverjum þrem. Liftrygginga-
skýrslur sýna samt, að það er
ekki óalgengt að konur komist
á níræðisaldurinn, enda þótt
fyrir hendi sé hár blóðþrýsting-
ur og taugaþensla.
Kirtlastarfsemi konulíkamans
er flóknari en karla, og því eru
konur gjarnari á að fá ýmsa smá-
kvilla, en oft er það, að konan
einungis bognar, þar sem við-
nám karllikamans brotnar.
Ef gerður er samanburður á
langlífi kvæntra karla og ó-
kvæntra, þá kemur eftirfarandi í
ljós: Dauðsfallatalan á hvaða
aldri, sem er, sýnir, að þeir ó-
kvæntu falla örar í valinn •— eða
eftir hlutfallstölunni 1% á móti
einum. Ekkjumenn eru hér með
svipaða tölu og þeir ókvæntu,
en fráskildir eiga metið: þeir
falla helmingi örar en þeir
kvæntu.
Hjónabandið virðist næstum
eins heillavænlegt til langlifis
fyrir konur sem karla.
Öllum skýrslum ber saman um,
að langlífasta starfsstéttin sé
bændur. Ekki er hægt að full-
yrða neitt um ástæðuna til þessa,
en margir nefna þessar orsakir:
í sveitinni eru menn lausir við
ys og þenslu fjölbýlisins, þar er
loftið hreinna og minna um slys.
Næstir bændum í röðinni hvað
langlífi snertir, koma ýmsir em-
bættismenn, og eru þar prestar
og kennimenn mjög framarlega.
Undantekning eru þó rómversk-
kaþólskir prestar.
Fólk með stúdentspróf er lang-
lífara en þeir, sem ekki hafa þá
menntun. Og háskólaborgarar
virðast skjóta íþróttafólki aftur
fyir sig.
Vandaðu mál þitt
Lausn á orðunum á bls. 87.
1. sláni. — 2. þjóta. — 3. raki.
— 4. hress. — 5. hnuplari. •—• 6.
grúfa. — 7. klöpp. — 8. tóbaks-
ponta. — 9. þakbrún. — 10. tyggja.