Úrval - 01.02.1962, Page 117
SKÓGAR ALDANNA
125
vexti, grænmeti og blóm. Bein
hans hvítna í einum garðinum,
og minnisvarSinn er sígræn tré.
Skógarhögg er mikið stundaS
á þessum slóSum. ÞaS þarf mikla
kunnáttu til aS fella risafuru,
svo vel fari. ÞaS þarf aS koma
í veg fyrir aS fallþunginn, sem
jafngildir 150 tonnum, valdi
skemmdum á trénu sjálfu og
umhverfinu.
Risafura verSur æ eftirsóttari
til ýmissa hluta. Þrjú hundruð
feta hátt risafurutré gefur af sér
300 þúsund fet af borðviSi, en
úr því timburmagni er hægt aS
byggja þrjátiu fimm-herbergja
einbýlishús.
Risafuran er sterkt byggingar-
efni miðað við þunga, og ein
skæðasta maurategundin, ter-
mítar, vinnur ekki á lienni. Af
þeim sökum er risafuran tilvalið
efni i girSingarstólpa og bryggju-
staura. Og ótaldir eru allir smá-
hlutirnir og skrautmunirnir.
Hvort sem við litum á risa-
furuskóg í öllu sínu veldi eSa
efniviðinn, sem hann leggur til,
getum við ekki annaS en dáðst
að þessu sköpunarverlci náttúr-
unnar.
Ferðalangur einn, sem hefur
kannað marga staSi vítt um heim,
hefur látið sér um munn fara
eftirfarandi orS: „Ég mundi ekki
vilja skipta á tækifærinu til að
heimsækja risafuruslsóg og öllum
hinum ferðalögunum minum.
Þessir skógar finnst mér vera
tilkomumesta sjónin, sem manni
býSst hérnamegin grafar.“
Ættu systkinabörn að Ranga í hjónaband?
Hvers vegna ekki? Svo framarlega sem foreldrarnir eru sæmi-
lega heilbrigðir, er ekki meiri hætta á þvi, að börn hjóna, sem
eru systkinabörn, verði vangefin eða vangerð, en hverra ann-
arra venjulegra hjóna. Enda þótt slík börn eignist við og við
vangefin eða vansköpuð börn, er ástæðan ekki sú, að foreldr-
arnir séu skyldir. — Faraóarnir og Ptólemearnir egypzku og
Inkar hinir fornu í Perú eignuðust snillinga vegna skyldleika-
hjónabanda. 1 ætt Bachs eru 28 miklir tónlistarmenn. Ástæðan
til þess er talin vera sú, hve mikið var um hjónabönd innan
þeirrar ættar, sem bjó yfir slíkum gáfum. — Det Bedste.
FORDÓMAR eru afsprengi fávísinnar.
Hazlitt.