Úrval - 01.02.1962, Side 152
160
Ú R YA L
fölar og teknar í stað þess að
vera rjóðar og feitar. Þunnar,
aðskildar varirnar voru þurrar
og þláleitar af áreynslunni við
að ná andanum. Augun voru
sokkin og hálflokuð. Ég opnaði
annað augað varlega með fingr-
inum. Það var alveg líflaust.
Ég andvarpaði úrkula vonar,
en þegar í stað kom einþeitnin
yfir mig. „Ekki að liætta.
Haltu áfram. Hún getur ekki
dáið.“
Hugsanir mínar bárust að
hinni ungu móður. Hafði hún
grátið sig í einhvers konar
örvilnunarsvefn eða starði hún
enn þá út í tómið fyrir framan
sig, án þess að geta i rauninni
gert sér grein fyrir þeim skelf-
ingum, sem dundu yfir barnið
hennar, — barn sem fyrir að-
eins fjórum dögum hafði verið
heilbrigt og kátt?
Sem ég sat á vöggunni, fór
ég að verða þess vör, hve illa
fór um mig. Ég var með ríg í
bakinu eftir meira en klukku-
stundar erfiða stellingu. Harðar
bríkurnar á vöggunni höfðu
þrengt að þlóðrásinni við hnén,
og fætur minir voru dofnir.
Handleggirnir, sem hálfhvíldu
á súrefniskassanum voru aumir
og stirðir.
Þá tók einbeitnin og vonin að
bila. Einhvern veginn virtist
þetta allt til einskis. Auðvitað
höfðu hjúkrunarkonan og dr.
Hamilton haft rétt fyrir sér þeg-
ar öllu var á botninn hvolft.
Áköf blygðunarkennd greip mig.
Hvernig dirfðist ég, átján ára
nýliði í hjúkrun, að bjóða byrg-
inn sérfræðingi í barnasjúkdóm-
um og reyndri hjúkrunarkonu,
þegar um líf og dauða var að
tefla? Ó, hví hafði ég nú verið
að þessu?
Samt gat ég ekki varizt þeirri
hugsun, að eitthvert óvenjulega
sterkt afl hefði ráðið gerðum
minum síðustu stundirnar, er
ég framkvæmdi hluti, sem ég
venjulega hefði alls ekki dirfzt
að framkvæma.
Suðið í súrefninu vakti mig
aftur af þessum hugsunum. And-
artak virtist mér sem hinn blái
hjúpur, sem hvíldi yfir andliti
barnsins, væri að fölna. —■ Nei,
það gat ekki verið. Barnið var
dáið. Það mundi aldrei vakna
aftur til lífsins þrátt fyrir alla
einbeitni mína, sagði ég við
sjálfa mig, og mér hafði næstum
tekizt að sannfæra mig. Samt
héldu hendurnar áfram þessum
hreyfingum, sem nú voru orðn-
ar eins og hluti af mér, þær
þrýstu á hrjóst barnsins og
slepptu svo takinu — aftur og
aftur.
Sjúkrahúsið var nú að vakna
eftir nóttina. Ungbörn j næsta
herbergi tóku að gráta; það