Morgunblaðið - 26.03.1988, Síða 14

Morgunblaðið - 26.03.1988, Síða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988 „Fullorðnir eiga að bera virðingu fyrir bömimum“ Anne-Cath Vestly Norski rithöfundur- inn Anne-Cath Vestly í viðtali Norski barnabókahöfundurinn Anne-Cath Vestly er stödd hér á landi í boði Norræna hússins og á morgun, sunnudag, les hún úr bókum sinum á sérstakri dagskrá helgaðri verkum hennar. Dag- skrá þessi er liður í Norskum bókadögum sem nú standa yfir í Norræna húsinu. Velkist ein- hver í vafa um hver Anne-Cath Vestly er, þá nægir að nefna Óla Aleksander fílibomm-bomm- bomm, börnin átta og ömmu þeirra, litlabróður og Stúf, Ár- óru, Gúru og nú síðast Kaos sem reyndar er ekki búið þýða á islensku. Já einmitt, Anne-Cath Vestly er höfundur allra þessara bóka sem óhætt er að fullyrða að allflestir íslendingar hafa komist í kynni við á einn eða annan hátt. Það var á miðvikudagsmorgun- inn sem ég hitti þau hjónin Anne- Cath Vestly og Johan Vestly að máli í kaffistofu Norræna hússins. Þau höfðu komið til landsins kvöld- ið áður og varð tíðrætt um fjallasýn- ina og veðrið meðan á viðtalinu stóð. Anne-Cath Vestly er nú á sextugasta og áttunda aldursári en ekki er neinn bilbug á henni að fínna. Hún hefur nú sent frá sér bók árlega allar götur frá árinu 1953 og síðasta ár var engin undan- tekning frá þeirri reglu. Auk 36 sögubóka hefur Anne-Cath Vestly skrifað 4 leikrit, eitt þeirra að minnsta kosti, Húsið í skóginum, hefur verið flutt hér á landi. Þó tónninn í þessu viðtali sé alvarlegur er samt greinilegt að gamansemin er ekki langt undan hjá þeim hjón- um báðum. Anne-Cath tekur það meira að segja sérstaklega fram að ekki megi taka alvöru hennar i þessu viðtali allt of alvarlega. Við- talið er helgað Anne-Cath einni, en engu að síður er rétt að taka fram, að ýmislegt þurfti að skeggræða þeirra á milli áður en endanlegt svar var fengið við spumingunum í viðtalinu. Fyrsta bókin um Óla Alek- sander kom út árið 1953, hver var kveikjan að þessum miklu afköstum á ritvellinum? „Upphafið nær alveg aftur til þess er ég var barn og ungling- ur, en þá þjáðist ég mjög af feimni. Þessa feimni komst ég yfir með þvi að taka þátt i leik- listarstarfi og skrifa stutta leik- þætti og einræður sem ég lék sjálf. Þannig ieiddist ég út í leik- listarnám sem ég stundaði við Studio Teatret i Oslo á árunum 1945-1950. Eftir það fór ég vinna við Norska rikisútvarpið og sá um gerð þátta fyrir börn. Og það var við gerð þessara bamatíma fyrir útvarpið sem Óli Aleksand- er leit fyrst dagsins ijós.“ Óli Aleksander hefur þá verið vel þekktur i Noregi þegar fyrsta bókin kom út? „Já, ég var búin að lesa nær alla fyrstu bókina, Óla Aleksander fílibomm -bomm-bomm, í útvarpið árið áður. Það er dálítið skemmti- legt að minnast þess frá þessum tíma að Arbejderbladet gerði könn- un á því hver væri vinsælastur í Noregi á meðal bama. Efstur varð Alf Praysen, Thorbjem Egner í öðm sæti og Óli Aleksander fíiibomm-bomm-bomm varð í þriðja sæti.!“ Óli Aleksander er stórborgar- barn, sem býr i stórri ibúðablokk með foreldrum sinum. Hvernig féll þessi lýsing að hugmyndum fólks um barnasögur á árunum rétt upp úr 1950? „Viðbrögðin vom margvísleg, allt frá hneykslan og til mikillar ánægju. Sterkustu viðbrögðin fékk ég þegar þangað er komið í sög- unni er Óli Aleksander eignast syst- ur. Ég hneykslaði marga með því að segja að hún hefði komið. úr maganum á mömmu Óla en ekki með storknum. Margir áttu erfitt með að sætta sig við svona hrein- skilni. Aðstæðumar í sögunni vom einnig óvenjulegar. Bamabækur á þessum tíma fjölluðu yfirleitt um sveitalíf og dýrin í sveitinni. Óli Aleksander býr í borginni óg það var nýstárlegt. Nú snýr þetta þver- öfugt, því 1953 gengu hestvagnar enn um götur Oslóborgar og því er lýst í bókunum um Óla Aleksand- er. Hestvagnar sjást ekki lengur og bækumar því kannski orðnar svolítið gamaldags." Sögurnar þínar hafa allar orðið til sem framhaldssögur í útvarp sem þú lest sjálf, áður en þær birtast á prenti? „Já, ég hef séð um bamatíma í norska ríkisútvarpið í öll þessi ár. Það er rétt, að flestar sögumar mínar hafa fyrst heyrst í útvarpi en ekki alveg allar. Ein að minnsta kosti birtist fyrst sem framhalds- saga í tímariti áður en hún kom út í bókarformi. Þetta er meðal annars ein af ástæðunum fyrir þessum af- köstum sem þú varst að minnast á. Mér hefur alltaf leiðst tilhugsun- in um að endurflytja gamalt efni.“ Þú hefur tekið á málum í bók- um þínum sem mikið hafa verið rædd í samfélaginu. í sögunum um Litlabróður og Stúf sem koma út rétt eftir 1960 fer mam- man að vinna úti og les til stúd- entsprófs utanskóla. í bókunum um Aróru skipta foreldramir um hlutverk, pabbinn er heima en mamman vinnur úti. Ertu mjög meðvitaður höftmdur? „ Nei, ég er það í rauninni ekki. Ég sest aldrei niður með fullmótaða hugmynd að sögu og vinn útffá því. Ég er heldur ekki meðvituð um boðskap bókanna minna. Stundum hef ég aðeins eina mynd í huga þégar ég er að byija. í sögunni um Áróru hafði ég t.d. aðeins mynd í kollinum af pabbanum, þar sem hann er að þvo upp. Framhaldið réðist síðan af sjálfu sér. Þannig er það oftast nær. Ég var t.d. skömmuð af gagnrýnendum fyrir að gera foreldra Áróru að mennt- asnobbum. Það var sagt að þáu væru svona ftjálslynd í krafti menntunar sinnar. í sögunni er pabbinn að skrifa doktorsritgerð jafnframt því að hann er heimavinn- andi. Það skemmtilega við þetta er að ég hafðl sjálfa mig til viðmiðun- ar í lýsingunni á pabbanum. Ég hef sjálf alltaf unnið svona; skriftimar hafa verið til viðbótar við heimilis- störfin. í bókunum um Litlabróður og Stúf fer mamman að vinna úti þegar telqur föðurins hrökkva ekki fyrir greiðslum af húsinu þeirra. Hún er einnig að lesa til stúdents- prófs.Þetta var á þeim tíma þegar mikill meirihluti mæðra voru heima- vinnandi. Ég fékk mikið af hring- Bláfjalladagur á skíðum Boðið verður upp á ókeypis skiðakennslu og barnagæslu BLÁFJALLANEFND í samstarfi við Mjólkurdagsnefnd stendur fyrir Bláfjalladegi i dag, laugar-, daginn 26. mars, ef veður leyfir, annars verður honum frestað fram á sunnudag. Markmið dags- ins er að leiðbeina fólki, bæði byijendum og lengra komnum, á skíðum og auk þess að bjóða uppá skemmtidagskrá í fallegu um- hverfí. Sveitarfélögin innan Bláfjalla- nefndar vilja með deginum vekja athygli á hversu rík áhersla er lögð á almenningsíþróttir og þar er skiða- iþróttin mikilvægur þáttur. í Bláfjöll- um eru alls 12 skiðalyftur á fimm mismunandi svæðum, þar af tvær stólalyftur. Flutningsgeta þeirra allra er um nfu þúsund manns á klukkustund. Göngubrautir verða lagðar merktar. Skíðakennsla verðúr fyrir þrjá mismunandi flokka, byrjendur, nokk- uð vana og vana, verður á svæðunum við Fram-lyftu, Breiðabliks-lyftur og ( Kóngsgili, SólSkinsbrekku og Suð- urgili. 60 til 80 kennarar verða á þessum svæðum. Bamalyftur eru við Breiðabliksskála og Bláfjallaskála. Svigbrautir fyrir almenning verða víða á svæðinu en margir hafa horft á keppendur æfa en ekki fengið tæki- færi sjálfir til að reyna sig. Skíðaganga og kennsla hefst stutt frá Bláflallaskála. Þar verður kennsla fýrir byijendur á klukku- stundarfresti 3 km, 5 km, 10 km gönguleiðir með tilsögn og umhverfi- slýsingu á Bláfjallasvæðinu. Farið verður m.a. með stólalyftunni í Kóngsgili upp á fjallabrún, en þaðan er útsýni stórkostlegt í allar áttir. Sérstök bamagæsla verður í gamla Bláfjallaskálanum og eiga böm að hafa með sér skíði eða sleða- búnað ef þau eiga. Harmoníkuleikarar koma í heim- - sókn og leika „skíðatónlist" fyrir gesti. Einnig munu svifdrekamenn sýna listir sínar. Veitingasala verður víða á svæð- inu og verða veitingar seldar á vægu verði. Skíðakennslan, bæði í svigi og göngu er ókeypis, einnig bamagæsl- an. Gott skíðafæri er nú í Bláfjöllum og verður svæðið opið frá kl. 10.00 til 17.00. Allir sem koma inn á svæð- ið fá afhenta dagskrá sem sérstak- lega hefur verið gerð í tilefni dags- ins. Bláfjalladagur verður í Bláfjöllum í dag, laugardag. Þá gefst fólki kostur á ókeypis skiðakennslu og bamagæslu. Einnig verður ýmislegt til skemmtunnar. Hinir nýju prófastar ásamt konum sínum og biskupi. Frá vinstri: Sr. Guðni Þór Ólafsson, Herbjört Pálsdóttir, herra Pétur Sigurgeirs- son biskup, Ragnhildur Jónasdóttir og sr. Flosi Magnússon. Prófastafundur Þjóðkirkjunnar: Skattalög ekkí hlið- holl hjónabandinu ÁRLEGUR prófastafundur kirkjunnar fór fram f Reykjavík dagana 2. til 4. mars. Á fundinum var m.a. fjailað um starfsreglur við skipan prófasta og um nýju skattalögin og það gagnrýnt, að þau eru ekki hliðholl hjónaband- inu. Tveir nýir prófastar voru settir f embætti á fundinum. Prófastafundurinn fjallaði um nýju skattalögin með tilliti til hjóna- bandsins. Sr. Bemharður Guð- mundsson fréttafulltrúi Þjóðkirkj- unnar sagði í samtali við Morgun- blaðið, að í áliti fundarins kæmi fram, að löggjafinn er ekki hlið- hollur hjónabandinu varðandi skattamál, eins og ítrekað hefur komið fram á kirkjunnar vettvangi. Þá ræddi fundurinn um sókna- og kirkjugarðsgjöld og um jöfnun- arsjóð sókna, sem varð til með nýj- um lögum um sóknagjöld. Tilgang- ur sjóðsins er að jafna áðstöðu á
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.