Morgunblaðið - 26.03.1988, Page 47

Morgunblaðið - 26.03.1988, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988 47 Kökubasar í Verzló Kökubasar verður haldinn í Verzlunarskóla íslands laugar- daginn 26. mars kl. 13—16. Kökubasarinn er haldinn í fjáröfl- unarskyni fyrir útskriftarferð 6. bekkjar. Velunnarar skólans eru eindregið hvattir til að líta inn. (Fréttatilkynning) . . X . Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Husfyllir var á skemmtumnm. A mnfelldu myndinni,svipmynd frá einu skemmtiatriðanna sem öll tókust mjög vel. Reykhólar: Menningar- ferð til Reylgavíkur Reykhólum. UM 70 manns fóru í gær frá Reykhólaskóla í leikhúsferð til Reykjavíkur. Ráðgert er að fara í óperuna og sjá Litla sótarann. Einnig á að fara og skoða Þjóðminjasafnið og Lista- safn íslands. Hér er um nýbreytni að ræða og er það ætlunin að koma heim á sunnudagskvöldið og má segja að þetta sé góð byrjun á páskaleyfinu. - Sveinn Lúðrasveit verkalýðsins í Langholtskirkju Lúðrasveit verkalýðsins held- ur sína árlegu vortónleika í dag, laugardag, í Langholtskirkju og hefjast þeir kl. 17. Jafnframt því sem hér eru á ferðinni árlegir tónleikar sveitarinnar eru þetta 35 ára afmælistónleikar, en sveit- in átti afmæli 8. mars sl. Á efnisskránni verða innlend sem Selfoss: Áþriðja hundrað krakkar skemmtu um 700 gestum Selfossi. KRAKKARNIR í Barnaskóla Selfoss héldu nýlega árs- hátíð og sýndu skemmtiþætti og ýmis atriði fyrir fullu húsi í íþróttahúsinu. Alls komu fram 240 krakkar í hinúm ýmsu þátturn og lætur nærri að það sé um helmingur nemenda skólans. Árs- hátíðin var vel undirbúin og allt gekk snurðulaust fyrir sig. Um 700 manns, foreldrar og aðrir gestir, voru á árshátí- ðinni og fögnuðu leikendum vel og innilega.- Sig. Jóns. erlend lög úr ýmsum áttum. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis og allir eru velkomnir með- an húsrúm leyfir. Stjómandi Lúðrasveitar verka- lýðsins er eins og undanfarin ár Ellert Karlsson. (Fréttatilkynning) , Kaupmannahöfn THOR Vilhjálmsson, rithöfund- ur, hafði viðkomu í Kaupmanna- ísafjörður: Fiðlu- og píanó- tónleikar í dag ísafirði. HLÍF Siguijónsdóttir fiðluleikari og Sólveig Anna Jónsdóttir píanóleikari halda tónleika í sal frímúrara á tsafirði í dag, laug- ardag, kl. 17. Á efnisskránni eru verk eftir Dvorák, Johan Sebast- ian Bach, Alfred Felder, Niccolo Paganini og Pablo de Sarasate. Báðar hafa þær starfað hér á ísafirði, Hlíf sem kennari við Tónlistarskólann 1981—1983 og Sólveig Anna sem hóf píanóleik hjá Ragnarni H. Ragnar. Hlíf Siguijónsdóttir lauk einleik- araprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík þar sem hún var nem- andi Bjöms Ólafssonar. Hún stund- aði síðan nám hjá Franco Gulli í Indiana í Bandaríkjunum og hjá Lorant Fenyves í Toranto á Italíu. Hún var um tíma styrkþegi við lista- skólann í Banss í Kanada en er nú fastráðin hjá Kammerhljómsveit- inni í Ziirich. Á íslandi hefur hún, auk kennslunnar á_ ísafirði, verið konsertmeistari hjá íslensku hljóm- sveitinni. Sólveig Anna Jónsdóttir hóf sinn tónlistarferil hjá Ragnari H. Ragnar hér á Ísafírði en lauk síðan prófi frá Tónlistarskólanum á Akureyri. Þaðan lá leiðin til Reykjavíkur þar sem hún lauk píanókennaranámi frá Tónlistarskólanum 1983 og einleik- araprófí þaðan ári síðar. Þá hélt hún til frekara náms í Bandaríkjun- um og nam hjá Nancy Weems við háskólann í Houston 1984—1987. - Úlfar höfn á leið sinni frá Ósló, þar sem hann tók við bókmennta- verðlaunum Norðurlandaráðs. En Tryggvi Ólafsson, listmálari, var gestur Thors við afhending- una í Ósló ásamt Gerði Sigurðar- dóttur, konu sinni, og Þrándi syni þeirra. íslendingar í Kaup- mannahöfn voru svo heppnir að mega njóta listar beggja eina kvöldstund um síðustu helgi, er Trygg^vi hafði sett upp sýningu á nýjum verkum sinum í félags- heimilinu í Jónshúsi og Thor las upp úr Grámosinn glóir. Mikil kynning hefur átt sér stað á verðlaunabók Thors og höfundin- um sjálfum hér í Danmörku. Frá- bært sjónvarpsviðtal í Magasinet í danska ríkissjónvarpinu sló í gegn, en það var tekið upp heima og kom Thor þar víða við og sagði skemmti- legar sögur. Þá átti íslenzki út- varpsmaðurinn Halldór Sigurðsson viðtal við Thor fyrir danska ríkisút- varpið og grein um höfundinn og smásaga eftir hann birtust í Politik- en, svo að fátt eitt sé nefnt. Salurinn í félagsheimilinu var þéttsetinn sem aldrei fyrr, er Kristín Oddsdóttir Bonde, formaður bóka- safnsnefndar, bauð skáldið, konu hans Margréti Indriðadóttur og gesti velkomin. Kristín sagði frá frumkvæði Bergljótar Skúladóttur gestgjafa við að fá Thor í heim- sókn, en það væri íslendingum í Kaupmannahöfn mikil ánægja að Dómkórinn í Reykjavík. Dómkórinn á Kjarvalsstöðum DÓMKÓRINN í Reykjavík söngvarar og er Marteinn H. Frið- en í því verki leika tveir kórfélag- syngur á Kjarvalsstöðum i dag, riksson stjómandi þeirra. Kórinn ar, Hlín Torfadóttir og Jósep laugardag, kl. 16. syngur madrígala, þjóðlög og Gíslason, fjórhent á píanó. Áð- í kómum eru rúmlega 40 nokkra ástarvalsa eftir Brahms, gangur er ókeypis. (fréttetiikynning) fá að sjá hann og heyra. Óskaði Kristín honum til hamingju með verðlaunin og fögnuðu viðstaddir verðlaunahafanum lengi og inni- lega. Thor Vilhjálmsson lýsti gleði sinni yfir að vera kominn í Jóns- hús. Það væri algjörlega fyrir orð Bergljótar og hér væri gott að vera með íslendingum í Kaupmanna- höfn, ekki sízt þegar verk Tryggva Ólafssonar vinar hans „auka okkar geð í salnum". „Mikið gekk á í Ösló við útnefninguna," sagði Thor, „þar vom hópar manna vopnaðir tækjum til að soga úr mér sálina." Þá hófst upplestur og las höfund- ur Kvöld smajans og úr kafla, sem lesinn var í Ósló í þýðingu Peters Hallbergs og nefnist Draumur og að lokum úr áhrifamiklum þætti: Hváð felst í einu ópi? Síðar vom fyrirspumir og fór höfundur á kost- um við svörin og sagði sögur á sinn eftirminnilega hátt. Rödd úr salnum sagði Thor draga upp svo skýrar myndir í bókum sínum og hann svaraði með sögunni um manninn, sem ráðlagði honum að mála mynd- ir og skrifa svo almennilega bók á eftir! í lokin þakkaði Bergljót Skúla- dóttir rithöfundur komuna og færði honum gjöf, og sagði frá því, að listaverkabókin um Tryggva Ólafs- son, þar sem Thor ritar æviþáttinn, væri til sölu f Jónshúsi og muni listamennimir báðir árita hana um kvöldið. Sýning Tryggva Ólafssonar var opnuð daginn áður að viðstöddum Qölda gesta, en það er mikill við- burður, er Tryggvi opnar sýningu, svo þekktur sem hann er hér í Höfn. Eru málverkin langflest ný, máluð síðan hann kom hingað aftur úr frægðarför heim til Islands í nóvember, en þá hélt hann sýningu í Listasafni ASÍ og þá kom hin glæsilega listaverkabók um hann út. Fékk hvort tveggja mikla og góða umfjöllun í blöðum. Mörg málverkanna á sýningunni em þeg- ar seld, en sýningin stendur til 15. apríl. — G.L.Ásg.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.