Morgunblaðið - 26.03.1988, Blaðsíða 66
66
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 26. MARZ 1988
ÞIMGBRÉF
STEFÁN FRIÐBJARNARSON
RÆKTl JNARim TING
ÍVA
Haf- og fiskirannsóknir
SJO
-'A
Þorskunnn er
&
„Verkefni í haf- og fiskirannsóknum hafa aukizt
síðustu áratugi eftir að íslendingar færðu út
fiskveiðilögsöguna í áf öngum.
Sóknargeta fiskveiðiflotans
hefur farið ört vaxandi á
þessu tímabili og þörfin
á þekkingu til að
stjórna veiðunum á
fræðilegum forsendum
vaxið að sama skapi.
Síðustu árin hefur
síðan komið til mikil
fjárfesting í fiskeldi án
þess að þar væri byggt á
umtalsverðum innlendum
rannsóknum“.
Hjörleifur Guttormsson (Abl/Al)
flytur ásamt fímm öðrum þing-
mönnum, úr öllum þingflokkum,
tillögu til þingsályktunar um haf-
og fískirannsóknir. Tillagan fjallar
um áætlun um auknar Qárveitingar
á næstu fímm árum til rannsókna
á þessum vettvangi, sem geymir
undirstöðu efnahagslegs sjálfstæðis
þjóðarinnar. Aðfararorð þessa pist-
ils eru upphaf greinargerðar með
tillögunni. Þar segir áfram:
„Mönnum er nú ljósara en áður
þýðing innbyrðis tengsla nytja-
stofíia, samkeppni þeirra um æti —
og áhrif veiða úr einstökum stofn-
um á vistkerfið. Umhverfísskilyrði,
svo sem ástand sjávar, valda mikl-
um sveiflum í svifdýra- og plöntu-
samfélögum hafsins sem sfðan end-
urspeglast f nýliðun og afraksturs-
getu nytjastofnanna á hveijum
tíma. Þekking á þessu samhengi
er hins vegar mjög í brotum og því
þarf að auka mjög rannsóknir á
vistkerfum íslenzkra hafsvæða."
í fjölriti frá Hafrannsóknastofn-
un, sem fjallar Um þessi mál, kem-
ur meðal annars fram, að íslending-
ar veija rétt rúmlega hálfu pró-
senti af verðmæti útfluttra sjávar-
afurða til haf- og fískirannsókna.
Það er langtum lægra hlutfall en
gerist hjá grannþjóðum, sem byggja
þó þjóðarbúskap sinn í mun minna
mæli á sjávarútvegi en við gerum.
n
í flölriti frá Hafrannsóknastofn-
un sem fylgir tillögunni segir m.a.:
„Að því er bezt verður séð eru
allir stærstu nytjastofnar nýttir til
hins ýtrasta og vaxtarmöguleikar
[heildarafla] felast því nær ein-
vörðungu í nýtingu tegunda eins
og gulllas, spærlings, kolmunna,
úthafskarfa, langlúru, skrápflúru
og tindaskötu, auk hryggleysingja
svo sem krabba- og skelfísktegunda
svo og ígulkeija."
Síðan segir — og gleður vafalítið
fólk sem man síldarævintýrið:
„Hugsanlegt er að vísu að norska
vorgotssíldin heQi ætisgöngur á ís-
landsmið aftur, en um það er ekki
hægt að fullyrða ...“
Þá er vitnað til álitsgerðar nefnd-
ar sem Rannsóknaráð ríkisins skip-
aði 1985 til þess að §alla um þróun
sjávarútvegsins, en þar segin
„Er áætlað að fískiskipaflotinn
sé um þriðjungi of stór miðað við
afrakstursgetu fískistofnanna og
hagkvæmni veiðanna frá sjónarmiði
þjóðarheildar."
Af framangreindum ástæðum
telur Hafrannsóknarstofnun ein-
sýnt, að stjóma þurfí veiðum úr
flestum_ nytjastofnum með einum
eða öðmm hætti { fyrirsjáanlegri
framtíð. Hinsvegar sé nauðsynlegt
að endurskoða forsendur og fyrir-
komulag veiðistjómunar reglulega.
Morgunbtaðið/Ámi Johnsen
Marktækar haf- og fiskirannsóknir
em nauðsynlegar, ekki sízt til að
byggja á hyggiiegar ákvarðanir að
þessu leyti. Að sjáifsögðu verður
einnig að taka tillit til þjóðhags-
legra sjónarmiða, sem og byggða-
hagsmuna.
m
Eldi sjávar- og vatnadýra er vax-
andi atvinnugrein víða um heim.
Norðmenn hafa vísað veginn um
margt að því er varðar fiskeldi.
„Margir sérfræðingar telja að
hafin sé ræktunarbylting i vatni
og sjó, hliðstæð þeirri sem átti
sér stað þegar jarðræktin tók við
af hjarðbúskap og veiði-
þungavigtarfyrirbæri í
þjóðarbúskap íslendinga.
Sjávarvörur gefa
langleiðina i þijár af
hverjnm fjórum krónum
útflutningstekna. Lifskjör í
landinu og efnahagslegt
sjálfstæði þjóðarinnar hvíla
ekki sízt á lifriki sjávar. Það
gerir landið byggilegt.
Sá þorskur, sem hér sést,
var 149 sm að lengd. Megi
hann eignast sem flesta
afkomendur að vexti og
verðmætum.
mennsku,“ segir f fylgiskjalinu frá
Hafrannsóknastofnun. Hér er ekki
lítið sagt.
Sem dæmi um framtak Norð-
manna má nefna að þeir framleiddu
árið 1986 um 44.000 tonn af eldis-
laxi. Þeir hafa og stigið fyrstu
skrefín f eldi ýmissa annarra nytja-
físka — og trúlega allnokkur spor
til viðbótar. „Eldi sjávarlifvera er
sérstakt áherzlusvið í norskri at-
vinnumálastefnu," segir í tilvitnuðu
fylgiskjali.
Sem fyrr segir eru flestir nytja-
stofnar hafsins hér við land fullnýtt-
Óperudeild FÍL:
Úthlutað úr
söngvarasjóði
Söngvarasjóður óperudeildar
Félags islenskra leikara styrkir
efnilega söngnema til náms og
starfandi söngvara til frekari
menntunar i list sinni. í ár er i
fyrsta sinn úthlutað samkvæmt
nýjum reglum sjóðsins. Alls sóttu
10 manns um styrk að þessu
sinni. Til styrkveidngar komu
140.000 krónur og ákvað söng-
stjórn að skipta þeirrí upphæð i
tvennt. Styrki hlutu þau Ingi-
björg Guðjónsdóttir sópran og
Sverrir Guðjónsson kontratenór.
Hlutu þau 70.000 krónur hvort.
Anna Eymundsdóttir, móðir Ingi-
bjargar, veitir styrknum viðtöku
fyrir hönd dóttur sinnar. Ingibjörg
er við nám í Indiana University
School of Music f Bandaríkjunum.
Hún stundaði áður nám í Tónlistar-
skóla Garðabæjar hjá Snæbjörgu
Snæbjamardóttur og söng þá opin-
berlega við ýmis tækifæri.
Sverrir Guðjónsson er kunnur
fyrir að syngja dægurlög og í söng-
leikjum en hefur nú snúið sér að
klassískri tónlist. Hann stundar
nám hjá Ruth L. Magnússon sem
kontratenór en það er n\jög sjald-
gæf raddtegund. Sverrir hyggst
fara f söngnám til London og hlýtur
styrk til þess.
Stjóm Söngvarasjóðs ópenideild-
ar FIL skipa þau Elfsabet Erlings-
dóttir, Július Vífill Ingvarsson og
Kristinn Hallsson,
Morgunblaðið/BAR
Frá afhendingunni. Frá vinstrí: Krístinn Hallsson, Ellsabet Erlingsdóttir, Júlíus Vífill Ingvarsson, Anna
Eymundsdóttir og Sverrir Guðjónsson.