Skírnir - 01.01.1881, Síða 66
66
ÍTALÍA.
er tekíö til smíSa á öSru skipi, sem meira er ætlaS. þaö á aS
heita Lepantó.
ViB Sikiley er mikiS veiöt upp af marbendilssmíSi («kór-
öllum»), en áriö sem leiS fundust ný sker í sjáfardjúpinu, útundan
bænum Sciacca («Selinuntix» i fornöld), og komu þangaB 1470
skipa til aö ná í þenna feng, því talnabönd og fl. kvenskraut af
«kóröllum» er eitt af dýrindunum, sem menn fá frá Ítalíu.
Menn voru svo áfjáBir í veiSinni eSa uppheirat «kórallanna»; aB
hætt var viB deilum og ófriBi, og því varB stjórnin aB senda
þangaB herskip til griöagæzlu. Sagt var í septembermánuBi, aB
menn heföu þá náB upp 13 millíónum punda, svo aB kvenþjóBin
á bjer von á miklum búBabæti.
þess manntjóns er aB geta sem varB af landskjálfta 4. marz
þ. á. á eyjunni Iscbíu — í vestur frá Napóli. Mikiil hluti af
bænum Casamicciola — hinum helzta á eyjunni — hrundi niBur
í einu vetfangi, aB kalla mátti. A hristingnum sjálfum er sagt
aB hafi ekki staBiB lengur enn 7 sekúndur, en húsahruni 8 hjelzt
þó lengur viB, sem hægt er aB skilja. Hjer urBu 300 húsa —
og sumt stórhýsi, t. d. gestahöllin — aB rústum, og þó margir
þeirra sem voru inni, kæmust út, voru fæstir ómeiddir. NokkuB
á annab hundraB manns ljetu lijer líf sitt.
Af páfa er ekkert sögulegt aB segja, enda virBist sem hann
sje helzt — sem kallaB er — dottinn úr sögunni. Leó 13di
er langt um þagmæltari eun Píus 9di — um hitt ekki aB tala,
aB hann bannfæri nokkurn manu. Ekki alls fyrir löngu hjelt
hann tölu til kardínála sinna og kvartaBi sárlega um þrengingar
heilagrar kirkju og þaB siBleysi, sem þeim væri samfara. . En
svo mun lengst verBa, aö páfarnir og klerkar þeirra haldi því
fram — þrátt fyrir þaB sem sagan kennir —, aB siBabetrun og
siBaspilling sje eingöngu komin undir uppgangi og hnignun ka-
þólksrar kirkju eöa klerkvaldsins. Leó deilir ekki svo á Italíu-
konung, sem Píus gerBi, en vill sem minnst mök við liann eiga,
og synjar allra sætta sem hínn. Samningarnir við þýzkaland
hafa oröið nær því árangursiausir, Frakkar haf'a ráðiB svo ráðum
sínum, sem sagt er frá í þættinum á undau, og ráðaneyti Belgíu-
konungs hefir ekki hikað sjer við.að bjóða páfatium byrginn (sjá