Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 24
28
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
hvers konar eirblendingi. Spjót þetta lá þar sem ætla má að
verið hafi fætur hins heygða, og vissi oddur aftur eftir gröf og
á ská inn í hana. Spjótið er á mörkum þess að eiga að teljast
til I-gerðar eða K-gerðar Jans Petersens; að lagi til minnir það
mikið á I-gerð, en vantar hina mörgu geirnagla þeirrar gerð-
ar og er auk þess smærra en hún er oftast, sjá Kuml og haugfé,
bls. 277—279, einnig 97. mynd. Gott vopn hefur þetta verið og
vel smíðað, en nú er á því framarlega gríðarstór ryðkúla, sem
erfitt mundi af að losa.
b. Örvaroddar, 5 talsins, en tangann vantar á einn þeirra, þann
sem var stakur, fremst í gröfinni og hér verður lýst fyrst.
1. FjöSur, tiltölulega stutt og breið, 1. 5,3 sm, br. 2,2 sm, virðist
hafa verið klunnalegastur örvaroddanna. 2. Örvaroddur heill,
1. 11,7 sm, mesta breidd fjaðrar 2 sm, tréleifar sjást á tanga, og
líkast til vottar fyrir reyrböndum; lá óhreyfður rétt framan
við miðja gröf, oddur vísaði aftur eftir gröfinni; hjá honum
lá 8. Örvaroddur lítill, 1. 7,2 sm, br. um 1,4 sm, tréleifar á tanga.
4. Örvaroddur, nú í tveimur pörtum, 1. 11 sm, br. 1,6 sm,
minnst ryðbólginn af oddunum og hefur verið laglega smíðað-
ur. 5. Örvaroddur, nú í tveimur pörtum, 1. 10 sm, br. 1,7 sm, tré-
leifar á tanga og líkast til vottar fyrir reyrböndum; auk þess
eru á fjöðrinni greinilegar leifar af skinni eða leðri. Nr. 4 og
5 voru meðal járnbrota til fóta og því ekki vitað, hvar þeir
hafa verið upphaflega. — Allir eru örvaroddar þessir ryðbólgn-
ir, svo að lítt sér, hvernig tanginn hefur verið. Óhætt mun þó
að fullyrða, að þeir séu allir af gerðinni Rygh 539, eins og
allir aðrir örvaroddar, sem hingað til hafa fundizt á Islandi, en
þeir eru reyndar ekki margir. Örvaroddar hafa fundizt í aðeins
einu kumli áður, Kaldárhöfðakumlinu, og auk þess eru nokkrir
sérfundnir. Merkilegt er, að einn örvaroddanna (nr. 3) er svo
miklu minni en hinir.
c. Skæri úr járni, nú í 6 brotum, en ekkert vantar nema örlítinn
bút í annan legginn, mjög ryðstokkin og stór ryðkökkur í bogan-
um; skærin eru með sauðaklippulagi, 23,5 sm að lengd, þar af
skálmarnar um 11,5 sm og leggirnir um 8 sm; boginn er breiður
eða 2,6 sm, en þvert yfir um hann er 4,4 sm, og dregur hann sig
því greinilega saman efst við leggina. Leggirnir eru 9—10
mm í þvermál, sívalir, skálmarnar eru eins og hnífsblöð, svo sem
vant er að vera. Að öllu leyti svipar þessum skærum mjög til
skæra frá Hrísheimum í Mývatnssveit, Þjms. 5440, Kuml og