Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 147
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1964
151
Enn ber að geta afskipta safnsins af kirkjunni í Kirkj uhvammi
í Kirkjuhvammshreppi, Vestur-Húnavatnssýslu. Það er timbur-
kirkja frá 1882, nú niðurlögð sem sóknarkirkja, þar sem ný kirkja
hefur verið reist á Hvammstanga og Kirkjuhvammur kominn í eyði.
Mörgum þótti ástæðulaust að rífa Kirkjuhvammskirkju, þar sem
hún er mjög barleg, þótt hún þarfnaðist viðgerðar. Þjóðminja-
safnið átti sinn hlut að því við sóknarnefndina, að kirkjunni yrði
leyft að standa framvegis, ef auðið yrði að kljúfa þann kostnað, sem
af viðgerð hennar leiddi. Varð þetta að ráði. Með frjálsum fram-
lögum gamalla sóknarbúa og annarra tókst að safna nokkru fé, en
Friðþjófur Þorkelsson smiður tók að sér viðgerðina. Var gert við
kirkjuna að utan, grunnur treystur og hún máluð, en mikið er
eftir að gera við hana að innan. Henni er þó borgið úr þessu, og
til þess er ætlazt, að hún verði framvegis undir yfirráðum og eftir-
liti safnsins. Þór Magnússon safnvörður hafði forustu um þessa
framkvæmd og lagði ráð á um viðgerðina.
Á þessu ári hefur þjóðminjavörður átt miklar viðræður við
menntamálaráðherra um möguleika á því, að gamla steinhúsið í
Nesi við Seltjörn, Nesstofa, yrði keypt og varðveitt. Því máli hefur
verið tekið með skilningi af ríkisstjórninni, og varð það að lokum
niðurstaða fyrir hennar atbeina, að tekin var í fjárlög heimild fyrir
stjórnina til að kaupa bæði Nesstofu og Viðeyjarstofu. Ef allt fer
að óskum, ætti þá að geta farið að styttast í að þessi sögufrægu
hús komist undir fornminjavörzluna.
Þjóðminjavörður hefur á undanförnum árum nokkrum sinnum
komið að máli við ráðamenn í Hafnarfirði vegna húss Bjarna Sí-
vertsens frá 1804 og möguleika á að tryggja varðveizlu þess. Alltaf
hefur verið lögð áherzla á, að allir væru sammála um, að húsið
bæri að varðveita og aðeins væri beðið hentugs tíma og kringum-
stæðna. Á þessu ári var þjóðminjavörður kvaddur til skrafs og
ráðagerða um þetta mál, þar sem að ráði var gert, að bærinn fengi
Rotaryklúbbi Hafnarfjarðar yfirráð yfir húsinu í því skyni, að
hann beitti sér fyrir viðgerð þess. Mælti þjóðminjavörður með því
við Alþingi, að klúbburinn fengi nokkurn styrk til þessa verks, og
gekk það fram. Virðist með þessu málstaður Sívertsenshúss vera
tryggður, enda hefur verið lögð áherzla á, að viðgerð hússins færi
fram í nánu samstarfi við Þjóðminjasafnið, þótt ekki verði það
meðal þeirra húsa, sem beinlínis heyra undir það.
Vikuna 1.—6. júní voru Þór Magnússon, Þorkell Grímsson og
tveir menn með þeim að verki í Stöng í Þjórsárdal og hlóðu þar