Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 106
110
ÁRBÚK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Ég vildi mega færa forstöðumanni safnsins í Ringköbing, J. Dal-
gaard-Knudsen landsréttarlögmanni, innilegar þakkir fyrir hve
vel hann bjó allt í haginn fyrir mig, þegar ég rannsakaði hlutina
sumarið 1964. Sömuleiðis þakka ég Kristjáni Eldjárn þjóðminja-
verði, sem einnig 1 þetta sinn hefur gert mér þann mikla greiða
að þýða skrána á íslenzku.
Það er að sjálfsögðu ógerningur að gera skrá um allan íslenzk-
an tréskurð, sem nú er til utan fslands. Það liggur í augum uppi,
að talsvert hlýtur að finnast í söfnum og hjá einstaklingum, sem
ekki er með í þessum skrám, en hitt ætti að vera sæmilega öruggt,
að ekkert meiri háttar safn hafi orðið útundan.
Ellen Marie Mageroy.
RÚMFJ ALIR
1. 1. (2356) Rúmfjöl úr furu. L. 103. Br. 19,5. Þ. um 1,2.
2. Dálítið sprungin og maðksmogin. Leifar af ljósri (hvítri?)
og rauðri málningu. (105. mynd).
105. mynd.
3. Útskurður á framhlið, upphleyptur, um 4 mm hár. í miðju
hringur, gerður af krákustígsbandi milli tveggja sammiðja hringa.
Innan í hringnum IHS og nokkrar skorur umhverfis til uppfylling-
ar. (Ef til vill er þetta þó fremur I TH S og þá líklega upphafs-
stafir eiganda, en ekki Kristsmerkið. Þýð.) Út frá hringnum eru
teinungsbútar til beggja hliða. Ósamhverft og óreglulega niður-
skipað. Stönglarnir eru flatir og tiltölulega breiðir með innri út-
línum og einföldum þverböndum. Greinarnar enda á uppundning-
um, sem sumir hafa lítið „hnakkablað“, sem í eru ristar ein eða
tvær skorur á langveginn. Fyrir kemur einnig köngull, fylltur út
með perluröðum, og nokkur sporöskjulöguð blöð, sem hvelft er úr