Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1965, Blaðsíða 124
128
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
sem myndast milli kílstungna. I framhaldi af höfðaleturslínunni er
innskorið A og ártal. Á lokinu er annars kílstunga í hverju horni og
stór naglskurður til að taka í. Á hliðum og göflum eru höfðaleturs-
línur efst og neðst, en jurtaskreyti í reitunum milli þeirra, eins á
báðum hliðum og báðum göflum. Á annarri hliðinni eru þar að
auki tvær kílstunguraðir uppi á brúninni. Jurtaskreytin á hliðunum
eru ákaflega frumstæðir teinungsbútar, sem nánast samanstanda
af skorum með innskornum línum í kring. „Aðalskoran" gengur í
öldum, og í hverri bylgju eru nokkur „blöð“ úr skorum, ristum lín-
um og skipaskurði. Svipað er á göflunum, en þar taka skorurnar á
sig hörpumynd.' — Ekki vönduð vinna. Höfðaletrið á lokinu er
aftur á móti mjög vel gert. Það er líka mjög ólíkt stafagerðinni á
hliðum og göflum, svo að varla er um verk sama manns að ræða
(Stafirnir á lokinu minna nokkuð á letrið á snældustól nr. 24).
4. 1812.
5. Höfðaletur á loki: smda
á hliðum og göflum:
eigdusto ockin bidurþocka ester
ckinaudard frida breitinsidb alku
1. 28. Lítill stokkur úr furu. Eintrjáningur, ferkantaður í
þverskurð, en hliðarnar hallast aðeins, svo að hann er mjórri um
botn en lok. L. 12. Br. 7,2. H. 5,7.
2. Hefur bersýnilega haft rennilok, sem nú vantar. Svolítið
vantar ofan á aðra langhliðina. Gaflar lítið eitt sprungnir. Nokkuð
ormétinn. Ómálaður.
3. Útskurður á hliðum og göflum. öllum flötum er skipt í reiti
með ristum línum. I hverjum reit eru hornalínur dregnar, og í hverj-
um þríhyrningi, sem þannig kemur fram, er kílstunga. Á öðrum
gaflinum eru þessar hornalínur dregnar með tvöföldu striki. Ofan
á þeirri langhlið, sem heil er, og öðrum gaflinum er krákustígsband
milli kílskurðarstungna. — Laglega gert.
4. Ekkert ártal.
5. Engin áletrun.
1. 29. (2358) Lítill stokkur úr eik, með litlum skilrúmum úr
furu. Trénegldur, en málmnöglum bætt við síðar. Handraði með
loki, auk þess annað skilrúm lítið. L. 15,4. Br. 7,8. H. 6.
2. Lokið vantar. Sums staðar dálítið brotið úr hliðum efst. Dá-
lítið ormétinn. Ómálaður.